Fréttir | 15. október 2019 - kl. 11:03
Ný bók eftir Sigurð H. Pétursson

Komin er út, hjá Bókaútgáfunni Merkjalæk, bókin Innbrotið eftir Sigurð H. Pétursson fyrrverandi héraðsdýralækni í Austur-Húnavatnssýslu. Bókin er 202 blaðsíðna spennusaga og gefin út í kilju. Sögusviðið er það sama og í bókinni Út í nóttina eftir Sigurð sem kom út árið 2018 og er sjávarþorpið Sandvík í afskekktu héraði á Norðurlandi og sveitirnar í kring. Sumar persónurnar eru líka þær sömu en einnig koma nýjar persónur til sögunnar. Bókin hentar bæði ungum sem gömlum, að því er segir í tilkynningu frá bókaútgáfunni.

Af kápu bókarinnar: „Láki lögga fær það verkefni að komast að því hver og hverjir brutust inn hjá mikils metnum hjónum í Sandvík og finna mikil verðmæti sem stolið var. Í fyrstu virðist málið vera augljóst ek ekki þurfi annað en að hnýta nokkra lausa enda og senda svo málið til Ríkissaksóknara. En ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið. Málið ætlar að verða Láka erfiðara en honum virtist í fyrstu. Óvænt atvik koma upp og lengi vel virðist sem Láki takist ekki að leysa málið enda kemur lausnin á óvart í lok bókarinnar.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga