Fréttir | 21. október 2019 - kl. 15:36
Biblíumaraþon í Hólaneskirkju

Unglingar í Æskulýðsfélagi Hólaneskirkju ætla að halda Biblíumaraþon í kirkjunni í kvöld frá klukkan 20:00-21:15. Tekið verður við áheitum til að fjármagna ferð þeirra á Landsmót æskulýðsfélaga þjóðkirkjunnar sem haldi er í Ólafsvík um næstu helgi. Lesið verður upp úr Markúsarguðspjalli. Þá verður spurningaleikur og sýndar ljósmyndir sem teknar voru í þemanu Græn í garði Guðs.

Hægt verður að fá sér kökur, kaffi, djús og kakó fyrir vægt verð. Allir hvattir til að líta við í Hólaneskirkju í kvöld.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga