Fréttir | 21. október 2019 - kl. 16:39
Ný sóknaráætlun metnaðarfullt plagg

Ný Sóknaráætlun Norðurlands vestra fyrir árin 2020-2024 var samþykkt samhljóða á haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem fram fór á Sauðárkróki á föstudaginn. Vinna við gerð hennar hefur staðið yfir frá því á vordögum og var lögð rík áhersla á víðtækt samráð við íbúa og aðra hagaðila. Ætla má að vel á fimmta hundrað manns hafi komið að gerð áætlunarinnar með einum eða öðrum hætti, að því er segir á vef SSNV.

Unnur Valborg Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri samtakanna segir nýja sóknaráætlun metnaðarfullt plagg sem muni, ef vel er haldið á spöðum, skila landshlutanum miklum ávinningi. „Það víðtæka samráð sem viðhaft var gefur áætluninni aukið vægi enda í henni áherslur íbúa í forgrunni“ segir Unnur.

Sóknaráætlanir landshluta eru stefnumótandi áætlanir sem taka til starfssvæða landshlutasamtaka sveitarfélaga. Í þeim koma fram stöðumat viðkomandi landshluta, framtíðarsýn, markmið og aðgerðir til að ná þeim markmiðum. Í sóknaráætlunum landshluta er mælt fyrir um svæðisbundnar áherslur sem taka mið af meginmarkmiðum byggðaáætlunar, landsskipulagsstefnu, skipulagsáætlunum, menningarstefnu og, eftir atvikum, annarri opinberri stefnumótun.

Í Sóknaráætlun Norðurlands vestra, sem lesa má hér, er unnið úr frá fjórum lykilmálaflokkum: Atvinnuþróun og nýsköpun, menningarmálum, umhverfismálum og að síðustu menntun og lýðfræðilegri þróun. Í hverjum málaflokki eru sett markmið og jafnframt tilgreind dæmi um aðgerðir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga