Alfheimar | Tilkynningar | 22. október 2019 - kl. 21:50
Starfsmann vantar í mötuneyti og þvottahús
Tilkynning frá SAH Afurðum ehf.

SAH Afurðir ehf. á Blönduósi óska eftir að ráða starfsmann í mötuneyti og þvottahús. Um er að ræða 100% starf. Vinnutími frá 07:00 – 15:45. Íslenskukunnátta skilyrði. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 5. nóvember n.k. Nánari upplýsingar veitir Vala Hilmarsdóttir í síma 455 2200 eða á netfanginu vala@sahun.is – móttaka umsókna er á sama netfang.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga