Félagsheimilið Hvammstanga. Ljósm: hunathing.is
Félagsheimilið Hvammstanga. Ljósm: hunathing.is
Fréttir | 07. nóvember 2019 - kl. 12:59
Jólamarkaður á Hvammstanga 30. nóvember

Árlegur jólamarkaður verður haldinn í Félagsheimili Hvammstanga 30. nóvember næstkomandi frá klukkan 11 til 17. Eins og undanfarin ár verður dýrindis handverk, matvara beint frá bónda og fleira á boðstólum. Jólastemmningin mun ráða ríkjum, ljúffengar vöfflur og rjúkandi heitt kaffi og svo verður kveikt á jólatrénu klukkan 17.

Borðapantanir standa yfir fyrir þá sem vilja selja vörur sínar á markaðnum. Upplýsingar má fá í síma 655 9052 og á netfanginu kristin@vatnsnesyarn.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga