Fréttir | 13. desember 2019 - kl. 10:25
Stofutónleikar í Heimilisiðnaðarsafninu

Stofutónleikar verða haldnir í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi á sunnudaginn, 15. desember, og hefjast þeir klukkan 15:00. Hugrún og Jonni sjá um tónlistarflutning með aðstoð Siggu og Halldórs. Heitt súkkulaði og smákökur verða í boði að afloknum tónleikunum. Aðgangseyrir er 1.500 krónur en ókeypis fyrir börn. Athygli er vakin á því að ekki er tekið við greiðslukortum.

Sóknaráætlun Norðurlands vestra styrkir tónleikana.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga