Fréttir | 13. janúar 2020 - kl. 16:17
Bentu ráðuneytinu á mikilvægi Blönduósflugvallar í september

Síðastliðið haust sendi Blönduósbær athugasemdir til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins við drög að flugstefnu fyrir Ísland. Í henni er m.a. vakin athygli á mikilvægi þess að Blönduósflugvelli verði áfram haldið við sem sjúkraflugvelli með tilheyrandi lágmarksbúnaði og aðstöðu. Bent er á að um Húnavatnssýslur liggi 150 kílómetra langur kafli af þjóðvegi eitt með umferð sem sé vel yfir 700 þúsund bílar á hverju ári með tilheyrandi slysahættu. Slíkt kalli á viðeigandi öryggisviðbragði fyrir íbúa, ferðamenn og aðra sem fari um Norðurland vestra.

Í athugasemdum Blönduósbæjar, sem sendar voru 2. september 2019, kemur fram að Isavia hafi gert úttekt á Blönduósflugvelli árið 2019, eins og á öðrum flugvöllum á landinu. Samkvæmt heimildum Húnahornsins hefur úttektin ekki verið send til Blönduósbæjar og því liggur ekki fyrir hvað þurfi nákvæmlega að gera til að halda vellinum við, sem viðbragð við slysum, bæði fyrir sjúkraflugvélar og þyrlur.

Guðmundur Haukur Jakobsson, formaður byggðaráðs Blönduósbæjar hefur sagt í fréttum að Blönduósingar hafi lengi tuðað yfir ástandi flugvallarins og að það sé alveg galið að loka honum og láta hann drabbast niður. Sagði hann að aðflugshallaljós væru ekki stillt og því ekki hægt að nota hann fyrir flugvélar. Þá hafi rúða brotnað í flugturninum og hann fyllst af snjó.

Tengdar fréttir:

Hver ber ábyrgð á viðhaldsleysi Blönduósflugvallar?

Ráðuneytið ræður, ekki Isavia

Formaður byggðaráðs gagnrýnir Isavia

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga