Bergþór Ólason
Bergþór Ólason
Fréttir | 14. janúar 2020 - kl. 07:19
Vill Isavia og ráðuneytið fyrir þingnefnd

Bergþór Ólason, formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, segir ástæðu til þess að kalla fyrir þingnefndina fulltrúa Isavia og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins til þess að fá það á hreint hver beri ábyrgð á því að viðhaldsstig flugvalla sem skilgreindir eru sem lendingarstaðir sé með þeim hætti að hægt sé að nýta þá. Málið má rekja til umræðu sem varð um helgina í kjölfar slyss skammt frá Blönduósi þegar flytja þurfti þrjá með þyrlu frá Blönduósflugvelli. Morgunblaðið segir frá þessu í dag.

Guðmundur Haukur Jakobsson, formaður byggðaráðs Blönduósbæjar hefur gagnrýnd Isavia harðlega fyrir að sinna ekki viðhaldi flugvvallarins og fyrir almenns áhugaleysis á honum. Isavia vísaði á samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið sem á móti benti á að flugvellir landsins væri í umsjón Isavia sem ætti að tryggja að þeir væru í nothæfu ástandi.

„Eina svarið við þessu er að fá báða aðila fyrir umhverfis- og samgöngunefnd og fá botn í það hvar vandinn liggur. Það blasir við að pólitíska ábyrgðin liggur hjá samgönguráðherra,“ segir Bergþór í Morgunblaðinu í dag og vísar til þjónustusamnings ráðuneytisins við Isavia. „Ef ráðuneytið vill meina að það sé engin pólitísk sýn í þeim þjónustusamningi heldur bara endurómuð greining Isavia þá verður ráðuneytið samt sem áður að bera ábyrgðina.“

Hann segir viðhaldi ekki hafa verið sinnt í langan tíma á þeim flugvöllum þar sem innanlandsflug var lagt af og bendir meðal annars á flugvellina á Blönduósi, Rifi, Patreksfirði og Stykkishólmi. „Þetta eru staðir sem ég tel ástæðu til þess að halda við til að tryggja að þarna séu vellir sem geta tekið við sjúkraflugi og þyrlum eftir því sem við á. Við höfum auðvitað byggt upp heilbrigðisþjónustu landsins þannig að meginþungi þjónustunnar er á höfuðborgarsvæðinu. Þannig að það er ekki nema eðlilegt að menn geri ráðstafanir svo að í bráðatilvikum sé hægt að komast hratt til og frá aðalspítalanum.“

Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.

Tengdar fréttir:

Blönduósflugvöllur verði skilgreindur fyrir sjúkraflug

Bentu ráðuneytinu á mikilvægi Blönduósflugvallar í september

Hver ber ábyrgð á viðhaldsleysi Blönduósflugvallar?

Ráðuneytið ræður, ekki Isavia

Formaður byggðaráðs gagnrýnir Isavia

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga