Fréttir | 23. janúar 2020 - kl. 14:32
Hvammstangi International Pubbet Festival er heiti á nýrri alþjóðlegri brúðuhátíð sem haldin verður á Hvammstanga 9.-12. október í haust. Handbendi brúðuleikhús hefur veg og vanda af hátíðinni og samkvæmt heimasíðu hennar verður boðið upp á þrjú sýningarpláss við höfnina og í miðbæ Hvammstanga. Verið er að velja þátttakendur á hátíðina sem koma víðsvegar að úr heiminum en einnig er leitað eftir áhugasömu brúðugerðar- og brúðusýningarfólki, sem og brúðuframleiðendum til að taka þátt.
Umsóknarfrestur er til 4. maí 2020. Hægt er að senda umsókn á vefnum www.thehipfest.com.
Hátíðin er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands vestra, Húnaþingi vestra og Seal Travel.