14:29 |
18. feb. 2020 |
Blönduósflugvöllur kom að góðum notum
Blönduósflugvöllur sannaði í gær enn og aftur gildi sitt og tilverurétt. Umferðarslys varð við bæinn Stóru-Giljá um miðjan dag í gær þegar tveir bílar rákust saman. Loka þurfti þjóðveginum og Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til hjálpar. Þyrlan lenti á Blönduósflugvelli sem er spölkorn frá Heilbrigðisstofnuninni og flutti þaðan slasaða til Reykjavíkur. Í síðasta mánuði lenti þyrlan á vellinum og flutti slasaða háskólanema til Reykjavíkur í kjölfar rútuslyss við bæinn Öxl. |
14:03 |
18. feb. 2020 |
Húnvetningur yfir Hljóðbókasafni Íslands
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Marín Guðrúnu Hrafnsdóttur frá Skeggstöðum í Svartárdal í embætti forstöðumanns Hljóðbókasafns Íslands. Hljóðbókasafnið er ríkisstofnun undir yfirstjórn ráðherra, stofnað 1982. Hlutverk þess er að sjá þeim sem ekki geta fært sér venjulegt prentað letur í nyt fyrir bókasafnsþjónustu með miðlun á fjölbreyttu safnefni, þar á meðal námsgögnum, í sem bestu samræmi við óskir og þarfir notenda. |
11:06 |
18. feb. 2020 |
Námskeið í stafrænum vefnaði á Blönduósi
Námskeið í stafrænum vefnaði í TC2 vefstól var haldið í Textílmiðstöð Íslands á Blönduósi um síðustu helgi en það er hluti af rannsóknar- og þróunarverkefni Textílmiðstöðvarinnar sem nefnist Bridging Textiles to the Digital Future. Á námskeiðinu voru félagar úr Textílfélagi Íslands og fatahönnuður og textílkennari frá Akureyri. Kennt var hvernig hægt er að nota Photoshop forritið til að gera vefskjöl sem ofin eru í TC2 og ófu þátttakendur nokkrar prufur hver. |
22:11 |
17. feb. 2020 |
Viðurkenningar veittar fyrir framúrskarandi verkefni 2019 á Norðurlandi vestra
Á úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra síðastliðinn fimmtudag var í fyrsta sinn veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar annars vegar og á sviði menningar hins vegar. Sýningin 1238 á Sauðárkróki sem rekin er af fyrirtækinu Sýndarveruleika ehf. hlaut viðurkenninguna í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar og sýningin um Þórð kakala sem rekin er af Kakalaskála ehf. fékk viðurkenninguna í flokki menningar. |
21:54 |
17. feb. 2020 |
Uppbyggingarsjóðurinn úthlutar styrkjum
Úthlutað var styrkjum úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra við athöfn í Félagsheimilinu á Hvammstanga síðastliðinn fimmtudag. Alls bárust sjóðnum 113 umsóknir þar sem óskað var eftir 170 milljónum króna í styrki en úthlutað var 65 milljónum til 60 aðila sem standa að baki 76 verkefnum. Ávörp fluttu Haraldur Benediktsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis og Lárus Ægir Guðmundsson, formaður úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs. |
20:55 |
17. feb. 2020 |
Aðalfundur Kirkjugarðs Blönduóss
Tilkynning frá stjórn
Aðalfundur Kirkjugarðs Blönduóss verður haldinn í Samstöðusalnum að Þverbraut 1 á Blönduósi, miðvikudaginn 19. febrúar klukkan 18.00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, framkvæmdaáætlun næstu þriggja ára og önnur mál.
|
16:53 |
17. feb. 2020 |
Umferðarslys við Stóru-Giljá
Umferðarslys varð við bæinn Stóru-Gilja fyrr í dag þegar tveir bílar sem komu úr gagnstæðri átt rákust saman. Loka þurfti þjóðveginum vegna slyssins í um eina og hálfa klukkustund. Sex voru í bílunum og voru þeir allir fluttir til skoðunar. Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti fyrir skömmu á Blönduósi og verða þrír fluttir á Landspítalann í Reykjavík. Verið er að fjarlægja bílana sem eru mikið skemmdir. |
16:18 |
17. feb. 2020 |
Nýr slökkviliðsstjóri í Húnaþingi vestra
Jóhannes Kári Bragason hefur verið ráðinn slökkviliðsstjóri Brunavarna Húnaþings vesta frá 1. mars næstkomandi til eins árs vegna leyfis Péturs Arnarssonar slökkviliðsstjóra. Jóhannes Kári er húsasmíðameistari og hefur löggildingu sem slökkviliðsmaður. Hann hefur verið starfandi hjá Brunavörnum Húnaþings vestra frá árinu 2002 til þessa dags. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra. |
16:09 |
17. feb. 2020 |
Bingó til styrktar Krabbameinsfélagi A-Hún.
Nemendur í viðburðarstjórnun í Höfðaskóla héldu Bingó á laugardaginn. Veglegir vinningar voru í boði og einnig var hægt að kaupa veitingar í hléi. Samtals söfnuðu nemendurnir 107.700 krónum og gáfu þau allan ágóðann til Krabbameinsfélags Austur-Húnavatnssýslu. Glæsilega gert. Nemendurnir þakka þeim sem mættu kærlega fyrir stuðninginn. |
09:19 |
17. feb. 2020 |
Lýðheilsa og áhrifavaldar í Húnaþingi vestra
Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga býður til fyrirlesturs föstudaginn 28. febrúar klukkan 18 í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga. Þar munu þau Þorsteinn V. Einarsson og Sólborg Guðbrandsdóttir halda fyrirlestur undir heitinu #karlmennskan og #fávitar, sem þau hafa hlotið lof fyrir víða um land. Sólborg ræðir um kynferðislega áreitni og ofbeldi sem fólk verður fyrir á samfélagsmiðlum og Þorsteinn um víðtækar hugmyndir um karlmennsku í samfélaginu og neikvæða pressu sem margir verða fyrir vegna þeirra. |
09:14 |
17. feb. 2020 |
Komum reiðhöllinni í betra horf fyrir 20 ára afmælið
Reiðhöllin í Arnargerði á Blönduósi á 20 ára afmæli 11. mars næstkomandi. Að því tilefni stendur til að bjóða félagsmönnum í Hestamannafélaginu Neista að koma saman og eiga góð stund á afmælinu. Þann dag standa einnig vonir til að hægt verði að taka formlega í notkun endurbættan sal reiðhallarinnar. Stjórn Neista vinnur nú að skipulagningu þessa verkefnis og óskar eftir aðstoð frá félagsmönnum, sem og öðrum, sem eru tilbúin að aðstoða við að koma reiðhöllinni í betra horf. Það er mikið verk fyrir höndum og verður fyrsta vinnuhelgi í reiðhöllinni 29. febrúar - 1. mars, segir á vef Neista. |
13:10 |
16. feb. 2020 |
Veiðileyfi í Blöndu og Svartá komin í sölu
Veiðisvæði Blöndu og Svartár eru komin í sölu á veiðileyfavefnum veiða.is. Veiðifélagið Starir er nýr leigutaki svæðanna og hafa miklar breytingar verið gerðar á veiðifyrirkomulaginu fyrir komandi veiðitímabil sem snúa að leyfilegu agni, kvóta og fjölda stanga. Breytingarnar eiga að stuðla að uppbyggingu svæðanna til framtíðar. |
15:50 |
15. feb. 2020 |
Engar þvingaðar sameiningar á næstu árum
Í drögum að frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum, sem innleiðir á ný ákvæði um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga, er haldið í þá reglu sem áður var að finna í sveitarstjórnarlögum frá 1986 og 1998, um að miða skuli við að íbúafjöldi sveitarfélaga þurfi að vera undir lágmarksíbúðamarkinu þrjú ár í röð, áður en ráðuneyti sveitarstjórnarmála ber að hafa frumkvæði að sameiningu sveitarfélagsins við annað eða önnur félög. Þá verður ráðherra fengin heimild til að veita sveitarfélagi tímabundna undanþágu til allt að fjögurra ára frá skilyrði um lágmarksíbúafjölda, ef sérstakar félagslegar eða landfræðilegar aðstæður eru til staðar. |
16:30 |
14. feb. 2020 |
Rafræn íbúagátt hjá Húnaþingi vestra
Á vef Húnaþings vestra hefur verið opnuð rafræn íbúagátt. Í henni geta íbúar nálgast útgefna reikninga frá sveitarfélaginu og skráð sig inn á svæði hitaveitunnar. Þar finna þeir allar helstu upplýsingar eins og um notkun, álestra, hreyfingayfirlit, reikninga og viðskiptastöðu. Notendur skrá sig inn á íbúagáttina með íslykli. Með íbúagáttinni er sveitarfélagið að auka þjónustu við íbúa sveitarfélagsins og stuðla að umhverfisvænum rekstri. Og með henni mun Húnaþing vestra hætta útprentun hitaveitureikninga. |
13:31 |
14. feb. 2020 |
Tjón á tveimur bæjum í Húnaþingi
Töluvert tjón hefur orðið í óveðrinu á tveimur bæjum í Vatnsdal og Víðidal. Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn á Norðurlandi vestra sagði í viðtali við Ríkisútvarpið í hádeginu að mikið tjón hafi orðið í Vatnsdal þar sem útihús, vélar og íbúðarhús hafi skemmst og að viðbragðsaðilum gangi illa að komast á vettvang vegna veðurs. Nokkur viðbúnaður er hjá yfirvöldum en aðgerðarstjórn er á Sauðárkróki og vettvangsstjórn er á Blönduósi. |