Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 03:00 0 0°C
Laxárdalsh. 03:00 0 0°C
Vatnsskarð 03:00 0 0°C
Þverárfjall 03:00 0 0°C
Kjalarnes 03:00 0 0°C
Hafnarfjall 03:00 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-15 af 89 Næstu 16-30
KlukkanDagsetningFrétt
16:11 16. sep. 2020   Tuttugu listamenn taka þátt í HIP Festival
Tuttugu listamenn koma fram á Alþjóðlegu brúðulistahátíðinni Hvammstangi International Puppet Festival sem haldin verður 9.-11. október næstkomandi. Á henni verða tólf sýningar með listamönnunum sem eru af níu þjóðernum. Handbendi brúðuleikhús hefur veg og vanda af hátíðinni og verða þar tónlistarviðburðir, listasýningar, fyrirlestrar og smiðjur fyrir börn.
15:46 16. sep. 2020   Nýr og ferskur Feykir kominn út
Feykir kom út í dag en í blaðinu má finna ýmislegt gagnlegt og gott frá Norðurlandi vestra, auk fastra liða eins og venjulega, afþreyingu í boði hússins í bland við skemmtilega umfjallanir og viðtöl. Í blaðinu er m.a. viðtal við Metta Manseth sem tekið var í tilefni af heimsmeti sem sett var á síðsumarsýningu á Hólum í Hjaltadal dagana 18.-21. ágúst síðastliðinn.
20:31 15. sep. 2020   Ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar í heimsókn í Austur-Húnavatnssýslu
Framkvæmdaráð sameiningarnefndar sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu bauð Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, til fundar heim í hérað í gær. Til umræðu voru meðal annars áskoranir og tækifæri svæðisins og svo heimsótti ráðherra fyrirtæki og frumkvöðla í sýslunni, t.d. gagnaverið, Vörusmiðju BioPol og Textílmiðstöð Íslands.
13:56 15. sep. 2020   Samningur um talmeinaþjónustu
Félags- og skólaþjónusta Austur-Húnavatnssýslu og Trappa ehf. undirrituðu nýverið tveggja ára samning sem hefur það að markmiði að efla talmeinaþjónustu í heimabyggð. Trappa mun nú sjá um greiningar og þjálfun barna í Austur-Húnavatnssýslu en talmeinafræðingar munu koma reglulega til að sinna greiningum og sinna þjálfun í gegnum fjarskiptaforritið Kara Connect að mestu á skólatíma barna.
09:54 15. sep. 2020   Ljósleiðari frá Hveravöllum til Skagafjarðar
Míla ehf. er að hefjast handa við lagningu ljósleiðara á 84 kílómetra leið frá Hveravöllum til Skagafjarðar og er það síðasti áfangi framkvæmda við að ljósleiðaratengja Suðurland og Norðurland. Framkvæmdum á að ljúka í nóvember, að því er segir í frétt í Morgunblaðinu í dag. Þar kemur fram að ljósleiðarinn verður plægður beint í jörð á 50-60 sentímetra dýpi. Lögnin mun þvera fjölmargar ár og læki, þar á meðal jökulána Blöndu.
09:21 15. sep. 2020   Körfuknattleiksdeild Hvatar tekin til starfa
Í fréttum Húnahornsins í júní síðastliðnum var sagt frá því að stofnuð hafi verið körfuknattleiksdeild innan Ungmennafélagsins Hvatar á Blönduósi. Deildin er nú tekin til starfa og fóru fyrstu æfingarnar fram í gær. Á vef Feykis er spjallað við formann deildarinnar sem er Lee Ann Maginnis en hún segir meðal annars að stofnendur séu allt mæður barna sem æfðu körfubolta hjá Helga Margeirs sem hefur haft veg og vanda af Körfuboltaskóla Norðurlands vestra.
16:28 14. sep. 2020   Skjólið auglýsir eftir frístundaleiðbeinendum
Félagsmiðstöðin Skjólið á Blönduósi auglýsir eftir frístundaleiðbeinendum. Umsækjendur þurfa að hafa náð að lágmarki 20 ára aldri og vera reglusamir og góðar fyrirmyndir fyrir börn og unglinga. Umsóknarfrestur er til 21. september næstkomandi.
10:27 14. sep. 2020   Námskeið fyrir bændur
og aðra áhugasama um matvælavinnslu
Farskólinn - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra stendur fyrir námskeiðum fyrir bændur og aðra áhugasama um matvælavinnslu. Allt hráefni sem notað er á námskeiðunum er innifalið í verði þeirra. Þátttakendur taka afurðirnar með sér heim að námskeiði loknu. Námskeiðin eru styrkt og niðurgreidd af Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og unnin í samvinnu við Vörusmiðjuna á Skagaströnd.
22:12 13. sep. 2020   Sigruðu Stokkseyri og efstir í B riðli
Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar sigraði B riðil 4. deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu karla en lokaumferðin var leikin í dag. Liðið á móti Stokkseyri á Blönduósvelli og endaði leikurinn 5-2. Hilmar Þór Kárason og Oliver James Kelaart Torres skoruðu tvö mörk hvor og Ingvi Rafn Ingvarsson eitt. Með sigrinum endaði liðið á toppi B riðils með 28 stig eða einu stigi meira en KFR. Bæði liðin fara í úrslitakeppni 4. deildar sem hefst laugardaginn 19. september.
21:53 13. sep. 2020   Göngum í skólann - Fjölskylduganga
Tilkynning frá Blönduskóla
Þriðjudaginn 15. september verður boðið upp á fjölskyldugöngu klukkan 17:00 í tilefni af verkefninu Göngum í skólann. Lagt verður af stað frá Íþróttamiðstöðinni og genginn rúmlega 3 km hringur um Blönduós, farið verður í gegnum Fagrahvamm, Glaðheima og Hrútey því gæti þessi leið verið torfarin fyrir kerrur/vagna. Hvetjum við fjölskyldur til að mæta með okkur í þessa göngu og eiga skemmtilega samverustund með öðrum fjölskyldum í leiðinni.
15:39 13. sep. 2020   Nemendur settu niður 600 krókusa
Nemendur í Blönduskóla tóku þátt í skemmtilegu verkefni í síðustu viku er þeir settu niður 600 haustlauka sem kallast krókusar í kirkjuhólinn á Blönduósi. Björk Bjarnadóttir, umhverfisþjóðfræðingur og fyrrverandi nemandi við skólann, hafði yfirumsjón með verkefninu og nutu nemendur aðstoð hennar auk starfsfólks Blönduskóla og Snjólaugar hjá áhaldahúsi Blönduósbæjar. Sagt er frá þessu á vef Blönduskóla.
15:11 11. sep. 2020   Áfram réttað í Húnavatnssýslum um helgina
Réttarstörf halda áfram í Húnavatnssýslum um helgina. Á morgun, laugardaginn 12. september, verður m.a. réttað í Fossárrétt, Kjalarlandsrétt og Stafnsrétt í Austur-Húnavatnssýslu og í Hamarsrétt og Þverárrétt í Vestur-Húnavatnssýslu. Landlæknir gaf nýverið út nýjar leiðbeiningar vegna gangna og rétta. Áður hafði verið miðað við tveggja metra nándarmörk og því gefin út tveggja kinda regla, en í kjölfar þess að tveggja metra reglan varð að eins metra reglu er nú í gildi einnar kindar regla.
14:41 11. sep. 2020   Mikill verðmunur á matvöru á landsbyggðinni
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði á þriðjudaginn matvöruverð í 15 minni matvöruverslunum á landsbyggðinni. Í ljós kom að í um helmingi tilfella var yfir 80% munur á hæsta og lægsta verði á þeim vörum sem verð var kannað á. Á 56 vörutegundum af þeim 103 sem kannaðar voru, var 60-140% munur á hæsta og lægsta verði og yfir 140% verðmunur á 12 vörutegundum. Mikill verðmunur var á hæsta og lægsta verði í öllum vöruflokkum.
11:16 11. sep. 2020   Hugur í norðlenskri ferðaþjónustu
Meirihluti forsvarsmanna ferðaþjónustufyrirtækja á Norðurlandi eru telja að fyrirtæki þeirra muni komast í gegnum þá erfiðleika sem Covid-19 faraldurinn hefur orsakað. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Markaðsstofa Norðurlands stóð fyrir í ágúst. Könnunin er svipuð þeirri sem var gerð á vormánuðum, en tilgangurinn var að sjá hvort eitthvað hefði breyst hjá fyrirtækjunum síðan þá.
09:03 11. sep. 2020   Gul viðvörun vegna vatnsveðurs
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir daginn í dag og fram á laugardag á Ströndum og Norðurlandi vestra. Gert er ráð fyrir talsverðri eða mikilli rigningu á norðanverðum Ströndum. Búast má við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum og getur valdið tjóni og raskað samgöngum. Fólk er hvatt til að sýna aðgát.
  1 2 3 4 5 6 Næstu 16-30
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið