11:08 |
04. maí 2021 |
Byrjað að bólusetja árganga 1962-1966
Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær 3.000 skammta af bóluefni í dag og verður haldið áfram að bólusetja niður árganga með Astra Zeneca bóluefninu. Næstu árgangar eru 1962-1966. Á vef HSN segir að aðeins náist að bólusetja hluta þessa hóps í vikunni en það geti verið breytilegt eftir stöðum og á að jafnast út í næstu og þarnæstu viku. |
09:16 |
04. maí 2021 |
Húni 42. árgangur kominn út
Húni ársrit Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga er kominn út, að þessu sinni 42. árgangur. Birtar eru fréttir síðasta árs úr öllum gömlu sveitarfélögunum sem mynda Húnaþing vestra og minnst þeirra sem létust á síðasta ári á svæðinu. Einnig eru í ritinu frásagnir, ljóð og annar fróðleikur úr héraði. |
09:14 |
04. maí 2021 |
Acai allra meina bót
Frá Kormáki Hvöt
Síðasta púsl í heimsmynd Kormáks Hvatar þetta sumarið hefur verið fundið og fellur sérlega vel að restinni. Skrifað hefur verið undir samninga við varnarmanninn Acai Elvira um að binda saman vörnina í sumar og kemur hann til móts við félaga sína nú innan skamms.
Acai er reynslumikill hafsent sem er sterkur í loftinu og með glöggt auga fyrir jafnt löngum sendinum sem styttri |
13:34 |
03. maí 2021 |
Leitað að matarfrumkvöðlum og veitingastöðum til þátttöku í Matarboði Nýsköpunarvikunnar
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra leita að matarfrumkvöðlum og veitingastöðum sem hafa áhuga að taka þátt í Matarboði Nýsköpunarvikunnar. Matarboðið er samansafn viðburða sem eiga sér stað samhliða Nýsköpunarvikunni dagana 26. maí - 2. júní. Viðburðunum er ætlað að para saman matarfrumkvöðla við veitingaþjónustu og skapa einstaka matarupplifun fyrir gesti. |
09:52 |
02. maí 2021 |
Framtíðarsýnin að Austur-Húnavatnssýsla verði umhverfisvænasta samfélag landsins
Oddvitar sveitarstjóra í Austur-Húnavatnssýslu hafa átt fjarfundi með þingflokkum á Alþingi í apríl. Á þeim hefur fyrirhuguð sameining sveitarfélaganna verið kynnt og spurningum þingmanna svarað. Meginmarkmið fundanna var jafnframt að koma hagsmunamálum Húnvetninga á dagskrá. Næstu skref eru að fylgja málum eftir við ríkisstjórn. Fyrirhugað er að eiga fund samgöngu-og sveitarstjórnarráðherra á næstu dögum, segir á Húnvetningi, vef sameiningarverkefnisins. |
08:58 |
02. maí 2021 |
Yfir 100 þúsund bólusettir
Fyrir helgi voru um 109 þúsund manns búnir að fá a.m.k. fyrri sprautuna af bóluefni gegn COVID-19, sem er um 37,5% af þeim hópi sem áætlað er að bólusetja hér á landi. Búið er að bólusetja yfirgnæfandi meirihluta þeirra sem eru 60 ára og eldri og hluta fólks með undirliggjandi sjúkdóma. Áætlað er að bólusett verði með 20.000 til 30.000 skömmtum í þessari viku, þ.e. 3.-7. maí næstkomandi. |
08:51 |
02. maí 2021 |
Ný Ferðagjöf stjórnvalda
Fyrirhugað er að gefa út nýja Ferðagjöf stjórnvalda í sumar og verður fjárhæðin sú sama og árið 2020, þ.e. 5.000 kr. fyrir einstaklinga fædda 2003 eða fyrr. Enn verður hægt að nota ónýttar Ferðagjafir, útgefnar árið 2020, til 31. maí næstkomandi, en eftir það falla þær niður við endurnýjun Ferðagjafar 2021. |
11:25 |
30. apr. 2021 |
Sýndarveruleiki í Vörusmiðju Biopol
Vörusmiðja Biopol á Skagaströnd er þátttakandi í alþjóðlegu samstarfsverkefni sem heitir Digi2market. Því er ætlað að taka á ýmsum áskorunum sem fyrirtæki á jaðarsvæðum kunna að glíma við, svo sem smæð markaðar, fjarlægðar frá markaði og einangrun. Vörusmiðjan hefur unnið að efnissköpun fyrir markaðssetningu með 360 gráðu myndum. |
16:16 |
29. apr. 2021 |
Nýr rekstraraðili tjaldsvæðisins á Blönduósi
L&E ehf. er nýr rekstraraðili tjaldsvæðisins í Brautarhvammi á Blönduósi. Félagið er í eigu Liyu Yirga Behaga og Guðjóns Ebba Guðjónssonar sem eru einnig eigendur veitingastaðarins Teni á Blönduósi. Blönduósbær auglýsti í desember síðastliðnum eftir samstarfsaðila um rekstur tjaldsvæðisins en það hefur verið í umsjón Glaðheima undanfarin ár. |
15:49 |
29. apr. 2021 |
Reisa á gangnamannaskála við Gedduhöfða
Húnavatnshreppur birtir auglýsingu um skipulagsmál á vef sínum en breyta á aðalskipulagi og gera deiliskipulag fyrir nýtt 4,9 hektara afþreyingar- og ferðamannasvæði. Reisa á nýjan gangnamannaskála við Gedduhöfða á Grímstunguheiði. Skálinn verður allt að 500 fermetrar að stærð með gistipláss fyrir 60 manns og hesthús fyrir um 70 hross. |
12:23 |
29. apr. 2021 |
Auglýst eftir samstarfsaðilum
Frá Textílmiðstöð Íslands
Við ætlum að halda líflega og áhugaverða Prjónagleði 11.-13. júní næstkomandi og leitum að samstarfsaðilum á Norðurlandi vestra til þess að glæða hátíðina lífi og gleði. Viðburðir, afþreying, kynningar, þjónusta, tilboð og afslættir og hvað eina sem fólki og fyrirtækjum dettur í hug og lífgar upp á helgina kemur til greina. Tilvalið tækifæri til að bjóða upp á eitthvað áhugavert og laða að viðskipti. |
11:43 |
29. apr. 2021 |
Tuttugu lausnir í úrslit í Ullarþoni
Dómarar í stafrænu nýsköpunarkeppninni Ullarþoni hafa valið 16 teymi, sem standa að baki 20 lausnum tengdum ull með einum eða öðrum hætti, til að kynna hugmyndir sínar fyrir dómnefndum í fjórum flokkum í byrjun maí. Alls bárust 63 gildar lausnir frá 100 þátttakendum. Kynning teymanna fyrir dómnefndunum fer fram með stafrænum hætti og svo verða úrslit gerð kunn á HönnunarMars 20. maí. |
15:24 |
28. apr. 2021 |
Ipadnámskeið Arion banka á Blönduósi
Farskólinn, í samstarfi við Arion Banka, býður upp á námskeið í notkun Arion appsins og netbankans. Farið verður yfir helstu bankaaðgerðir sem viðskiptavinir geta framkvæmt sjálfir. Námskeiðið er öllum opið, gjaldfrjálst og stendur í tvær klukkustundir. |
15:16 |
28. apr. 2021 |
Örráðstefna um almenningssamgöngur
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra standa fyrir örráðstefnu um almenningssamgöngur miðvikudaginn 5. maí næstkomandi klukkan 11-12. Kynnt verður fýsileikakönnun almenningssamgangna á Norðurlandi vestra sem unnin var af Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri með styrk úr byggðaáætlun. |
17:37 |
27. apr. 2021 |
Samningur um rekstur áfangastaðastofu
Í dag undirrituðu Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og eystra samning við Markaðsstofu Norðurlands um rekstur áfangastaðastofu. Áfangastaðastofur eru samstarfsvettvangur sveitarfélaga, ríkis og atvinnugreinarinnar og eru markmiðið með stofnun þeirra að efla stoðkerfi ferðaþjónustunnar og stuðla að jákvæðum framgangi hennar. |