Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 13:44 0 0°C
Laxárdalsh. 13:44 0 0°C
Vatnsskarð 13:44 0 0°C
Þverárfjall 13:44 0 0°C
Kjalarnes 13:44 0 0°C
Hafnarfjall 13:44 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-15 af 80 Næstu 16-30
KlukkanDagsetningFrétt
11:20 13. okt. 2021   Körfuboltadagur á Blönduósi
Körfuknattleikssamband Íslands heldur körfuboltadag í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi laugardaginn 16. október. Haldið verður námskeið með æfingum og farið í leiki með það að markmiði að kynna körfuboltaíþróttina fyrir krökkum á Blönduósi og úr nærsveitum. Námskeiðið verður tvískipt en fyrrihluti þess er leikjanámskeið sem verður frá klukkan 13-14 og svo loks körfuboltaæfing klukkan 14-16.
11:17 13. okt. 2021   Blönduósbær skipar samstarfsnefnd um sameiningu
Sveitarstjórn Blönduósbæjar hefur skipað Guðmund Hauk Jakobsson, Jón Örn Stefánsson og Arnrúnu Báru Finnsdóttur í samstarfsnefnd sem kanna á möguleika á sameiningu Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps. Stefnt er að því að samstarfsnefndin skili áliti sínu til sveitarstjórna í nóvember með það fyrir augum að kynning tillögunnar hefjist í desember og að kjördagur verði í janúar 2022.
10:46 12. okt. 2021   Forsetafrúin heimsótti Húnaþing vestra
Forsetafrúin Eliza Reid heimsótti Húnaþing vestra í síðustu viku ásamt Eddu dóttur sinni. Eliza var heiðursgestur alþjóðlegu brúðulistahátíðarinnar International Puppetry Festival sem fram fór á Hvammstanga um síðustu helgi. Handbendi brúðuleikhús skipulagði hátíðina og er handhafi Eyrarrósarinnar, sem er viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Eliza er verndari Eyrarrósarinnar.
10:18 12. okt. 2021   Húsnæðisskortur tefur uppbyggingu
Í húsnæðisáætlun sem Sveitarfélagið Skagaströnd birti nýlega kemur meðal annars fram að byggja þurfi 2-4 íbúðir á ári í sveitarfélaginu fram til ársins 2026 til að uppfylla þörf fyrir nýtt íbúðarhúsnæði og koma á nauðsynlegu jafnvægi. Í áætluninni segir að sveitarstjórn hafi ekki í hyggju að ráðast í byggingu á íbúðarhúsnæði en hafi hins vegar fellt niður gatnagerðargjöld við þegar tilbúnar lóðir sem hvata til nýbygginga.
11:27 11. okt. 2021   Frístundir fyrir 60 ára og eldri í Blönduósbæ
Blönduósbær hefur gefið út dagskrá fyrir frístundastarf 60 ára og eldri í sveitarfélaginu og gildir hún út árið 2021. Dagskránni verður dreift í hús. Íbúar 60 ára og eldri eru hvattir til að nýta sér það sem í boði er en þar má nefna stóla- og standandi leikfimi, vatnsleikfimi, jóga og söng- og gleðistundir.
20:26 09. okt. 2021   Vatnsleikfimi á Blönduósi fyrir 60 ára og eldri
Námskeið í vatnsleikfimi undir leiðsögn sjúkraþjálfara fer af stað á Blönduósi 12. október næstkomandi og er fyrir 60 ára og eldri. Námskeiðið verður í Íþróttamiðstöðinni á þriðjudögum klukkan 13. Í auglýsingu frá Ásdísi Öddu Ólafsdóttur sjúkraþjálfara segir að vatnsleikfimi sé skemmtileg leið til líkamsræktar og hægt að gera fjölbreyttar æfingar í vatninu svo allir ættu að geta gert æfingar við hæfi. Tíu vikna námskeið kostar 9.000 krónur eftir niðurgreiðslu frá Blönduósbæ.
19:56 09. okt. 2021   Varað við fölsuðum seðlum á Norðurlandi vestra
Lögreglan á Norðurlandi vestra biðlar til almennings og verslunareigendur að vera vel á verði gagnvart fölsuðum peningaseðlum sem eru í umferð. „Ef einhverjir kunna að búa yfir upplýsingum er málið varðar þá vinsamlegast hafið samband við lögregluna í síma 444-0700 eða tölvupóstfangið nordurland.vestra@logreglan.is,“ segir á facebooksíðu lögreglunnar.
11:13 09. okt. 2021   Störf auglýst á nýrri skrifstofu skipulags- og byggingarmála í Húnavatnssýslum
Sveitarfélögin Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blönduósbær og Skagabyggð auglýsa í dagblöðum helgarinnar laus til umsóknar embætti byggingarfulltrúa og embætti skipulagsfulltrúa á nýrri skrifstofu skipulags- og byggingarmála í Húnavatnssýslum. Starfsstöðvar eru tvær, á Hvammstanga og Blönduósi, og þjóna fulltrúarnir öllu svæðinu.
10:35 09. okt. 2021   Gætu fengið sekt vegna jafnlaunavottunar
Blönduósbær og sveitarfélögin Skagaströnd og Húnaþing vestra eru á meðal 16 sveitarfélaga sem ekki hafa fengið jafnlaunavottun og eiga á hættu að verða beitt dagsektum um áramót. Hafa þau trassað að klára ferlið sem þau áttu að ljúka fyrir tveimur árum síðan. Bæði Jafnréttisstofa og forsætisráðuneytið hafa þrýst á Samband íslenskra sveitarfélaga að ljúka málinu, að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag.
11:14 08. okt. 2021   Kirkjurnar í Austur-Húnavatnssýslu
Frá sóknarpresti
Í sunnudagaskólanum syngjum við, gleðjumst saman og biðjum fallegra bæna. Fræðandi og skemmtilegt starf fyrir alla fjölskylduna. Fermingarbörn eru hvött til að mæta með foreldrum og taka með sér kirkjulyklinn.
08:59 08. okt. 2021   Ístex leitar að öflugu og duglegu starfsfólki
Frá Ístex hf.
Ístex hf leitar að öflugu og duglegu starfsfólki í ullarþvottastöðina á Blönduósi fyrir komandi ullarvertíð frá 1. nóvember til 30 apríl. Starfshlutfall er 70-100% og möguleiki á bæði dag- og kvöldvöktum. Hvetjum öll kyn til að sækja um.
11:47 07. okt. 2021   Lærdómssamfélag í Austur-Húnavatnssýslu
Starfsmenn leik- og grunnskóla í Austur-Húnavatnssýslu taka nú þátt í þróunarverkefninu Lærdómssamfélagið í A-Hún. sem Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor við menntavísindasvið Háskóla Íslands leiðir. Verkefnið er styrkt af Sprotasjóði og er markmiðið að efla faglegt samstarf, starfsþróun og gagnvirkt nám og skapa menningu sem hvetur og viðheldur stöðugu námi meðal starfsfólks leik- og grunnskóla til að efla nám nemenda.
10:52 07. okt. 2021   Safnaðarfundur Blönduóssóknar
Frá sóknarnefnd
Safnaðarfundur Blönduóssóknar verður haldinn í Blönduóskirkju fimmtudaginn 14. október klukkan 17. Á dagskrá er kosning kjörnefndar.
10:09 07. okt. 2021   Íbúðir í Hnitbjörgum
Frá Félags- og skólaþjónustu A-Hún.
Lausar eru til umsóknar 2 íbúðir í Hnitbjörgum á Blönduósi. Hnitbjörg er kjarni tíu íbúða fyrir aldraða í sjálfstæðri búsetu. Um er að ræða tveggja herbergja íbúðir. Önnur þeirra er á 1. hæð, útgengt er í sólskála og út á verönd. Hin er á 2. hæð, útgengt er í sólskála. Íbúðirnar verða lausar til afhendingar 1. nóvember 2021 en umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 15. október 2021.
10:47 06. okt. 2021   HIP Fest á Hvammstanga um helgina
Alþjóðlega brúðulistahátíðin HIP Fest - Hvammstangi International Puppetry Festival fer fram á Hvammstanga um næstu helgi. Á hátíðina koma á þriðja tug erlendra listamanna frá átta löndum sem bjóða upp á fjölda sýninga og vinnusmiðja, auk fyrirlestra og kvikmyndasýninga með umræðum við listamennina á eftir, á meðan á hátíðinni stendur. Þetta er í annað sinn sem haldin er HIP Fest hátíð á Hvammstanga.
  1 2 3 4 5 6 Næstu 16-30
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið