16:08 |
24. nóv. 2022 |
Um 110 manns sóttu hugmyndafundi vegna deiliskipulags í gamla bænum
Í gærkvöldi fór fram í Reykjavík hugmyndafundur vegna deiliskipulags í gamla bænum á Blönduósi. Sambærilegur fundur fór fram í Félagsheimilinu á Blönduósi á þriðjudagskvöld. Fundirnir byrjuðu á því að Pétur Arason sveitarstjóri kynnti sjónarmið sveitarfélagsins gagnvart verkefninu og því næst kynnti Bjarni Gaukur Sigurðsson hugmyndir og áform InfoCapital um uppbyggingu í gamlabænum en félagið hefur keypt nokkrar eignir á svæðinu. Um 110 manns sóttu fundina, um 55-60 á Blönduósi og um 50 í Reykjavík. |
16:05 |
24. nóv. 2022 |
Aðventuhátíð í Blönduóskirkju
Sameiginleg aðventuhátíð Blönduóssóknar, Þingeyrasóknar, Undirfellssóknar, Svínavatnssóknar og Auðkúlusóknar verður haldin í Blönduóskirkju sunnudaginn 27. nóvember klukkan 20. Fermingarbörn vorsins 2023 taka þátt í stundinni með kertagöngu, lestri og söng. Kynnir er Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson. Sr. Edda Hlíf Hlífarsdóttir þjónar fyrir altari. |
10:02 |
24. nóv. 2022 |
Uppskeruhátíð búgreinafélaganna og Hestamannafélagsins Neista
Frá Hestamannafélaginu Neista
Glæsilegi uppskeruhátíð búgreinafélaganna og hestamannafélagsins Neista var haldin 19. nóvember. Þar voru knapar ársins og sjálfboðaliði ársins verðlaunaðir. Knapi ársins 2022 í fullorðinsflokki hjá Hestamannafélaginu Neista er Guðrún Rut Hreiðarsdóttir. Guðrún Rut gerði það gott á árinu, tók þátt í vetrarmótaröð Skagfirðings og félagsmóti og úrtöku Neista og Snarfara í vor. |
09:39 |
24. nóv. 2022 |
Afmælishátíð Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra
Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra hélt upp á 30 ára afmæli sitt í Félagsheimili Hvammstanga í gær, en það var stofnað þann 21. nóvember 1992. Félagið bauð öllu félögum í veislukaffi í félagsheimilinu og mættu tæplega 100 manns en félagar er nú 155 talsins. Formaður Guðmundur Haukur Sigurðsson rakti sögu félagsins, Kór eldri borgara í Húnaþingi vestra flutti 3 lög undir stjórn Ólafs E Rúnarssonar, meðleikari Elínborg Sigurgeirsdóttir. Síðan flutti Ólafur nokkur létt lög við undirleik Elínborgar. |
09:32 |
24. nóv. 2022 |
Þekktu rauðu ljósin
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi 2022
Þekktu rauðu ljósin - Soroptimistar hafna ofbeldi er slagorð íslenskra Soroptimista í 16 daga átakinu að þessu sinni. Átakið sem leitt er af Sameinuðu þjóðunum og er alþjóðlegt hefst 25. nóvember og því lýkur 10. desember. Um allan heim sameinast hin ýmsu samtök í því að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi með ýmsum hætti en roðagylltur litur er einkenni átaksins, #roðagyllumheiminn, #orangetheworld en hann á að tákna bjartari framtíð. |
09:28 |
24. nóv. 2022 |
Tækifæri til fjárfestingar í gistirýmum á Norðurlandi
Bætt nýting utan háannar, vaxandi eftirspurn og þörf fyrir fjárfestingu í gistirýmum er einkennandi fyrir þá stöðu sem blasir við í norðlenskri ferðaþjónustu. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í greiningu KPMG á gistirýmum á Norðurlandi, sem unnin var fyrir Markaðsstofu Norðurlands í haust. |
09:26 |
24. nóv. 2022 |
Húsfyllir á Hvammstanga hjá Rokkkórnum
Rokkkórin úr Húnaþingi vestra undir stjórn Ingibjargar Jónsdóttur hélt tónleika síðastliðinn laugardag fyrir fullu húsi í Félagsheimilinu Hvammstanga. Flutt voru níu lög ásamt fjögurra laga syrpu úr tónlistarverkinu Lifun eftir Trúbrot. Fimm manna hljómsveit sá um undirleik á tónleikunum sem að sögn áhorfenda heppnuðust mjög vel. |
16:33 |
23. nóv. 2022 |
Nýtt deiliskipulag fyrir atvinnusvæði auglýst
Sveitarstjórn Húnabyggðar auglýsir á vef sveitarfélagsins nýtt deiliskipulag fyrir atvinnusvæði sem liggur norðan Norðurlandsvegar, sem er þjóðvegur 1 og liggur í gegnum Blönduós. Skipulagssvæðið er 3,5 hektarar að stærð, er staðsett við Norðurlandsveginn og afmarkast af honum til suðurs, Hólabraut til vesturs, Efstubraut til austurs og Melabraut til norðurs. |
16:10 |
23. nóv. 2022 |
Starfamessan vel sótt
Um 250-300 nemendur 8.-10. bekkja grunnskóla á Norðurlandi vestra mættu á Starfsmessu sem haldin var í húsakynnum Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í gær og fræddust um 25 fjölbreytt störf sem þar voru kynnt. Viðburðurinn er samstarfsverkefni Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og grunnskóla svæðisins. Þá leggja fjöldi fyrirtækja lóð á vogaskálarnar til að ungt fólk geti spáð í framtíðarmöguleika sína með áþreifanlegum hætti. |
14:13 |
23. nóv. 2022 |
Skagaströnd með flest stig sveitarfélaga á félagssvæði Kjalar
Tíu bæjarstarfsmannafélög BSRB stóðu í vor fyrir viðhorfskönnuninni Sveitarfélag ársins. Tilgangurinn er m.a. að hvetja stjórnendur sveitarfélaganna til að veita starfsumhverfinu meiri athygli og ráðast í umbótaverkefni þar sem þess er þörf. Stefnt er að því að könnunin verði árlegur viðburður. Alls komust 15 sveitarfélög á lista könnunarinnar og þar á meðal er Skagaströnd, sem fékk flest stig sveitarfélaga á félagssvæði Kjalar stéttarfélags. |
11:43 |
23. nóv. 2022 |
Tilkynning frá félags- og tómsundastarfinu
Takið eftir, takið eftir. Félags- og tómstundastarfið í Húnabyggð fellur niður fimmtudaginn 24. nóvember. Opnum aftur á mánudaginn 28. nóvember. |
10:14 |
22. nóv. 2022 |
Skemmtileg umfjöllun um Borðeyri
Borðeyri er eitt fámennasta þorp landsins en þar búa um tíu íbúar. Í þættinum Sögur af landi sem hlusta má á vef Ríkisútvarpsins er flakkað um þetta litla þorp sem er eins og gluggi inn í liðna tíð. Rætt er meðal annars við sagnfræðinginn Vilhelm Vilhelmsson sem hefur kynnt sér náið sögu Borðeyrar og Kristínu Árnadóttur íbúa á Borðeyri um elsta hús plássins, svokallað Riishús. |
08:36 |
22. nóv. 2022 |
Kynning á námskeiðum og öðru á vegum æskulýðsnefndar hestamannafélagsins Neista
Miðvikudaginn 23. nóvember kl. 17:30 verður haldin kynning á námskeiðum og öðru sem æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Neista mun standa fyrir í vetur. |
07:47 |
22. nóv. 2022 |
Dagskrá hugmyndafunda
Í kvöld fer fram fyrri hugmyndafundurinn vegna deiliskipulags í gamla bæjarhluta Blönduóss. Fundurinn verður í Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 19-21. Seinni fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica á Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík annað kvöld á sama tíma. Á vef Húnabyggðar hefur dagskrá fundanna verið birt. |
15:43 |
21. nóv. 2022 |
Sextíu þáttakendur á TTT-móti á Löngumýri
Löng hefð er fyrir því í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi að bjóða krökkum í TTT starfi í helgardvöl bæði vor og haust. Eitt slíkt TTT-mót var haldið á Löngumýri um síðustu helgi. Þátttakendur voru úr börn úr TTT starfi kirkjunnar á Hvammstanga, Skagaströnd, Sauðárkróki, Hofsósi og Hólum ásamt leiðtogum og prestum. |