10:37 |
12. apr. 2019 |
Kjarni kærleikans
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
Kjarni kærleikans er hjarta Guðs sem breytir refsingu í fyrirgefningu, vonleysi og myrkri í von og eilíft líf. Hann er ljósið í heiminum. Höfundur himins og jarðar, lífsins, kærleikans, vonarinnar og friðarins. Hann sem er ljósið sem blásið var á en logar nú blítt og yljar og vermir þeim sem í það leita. |
15:24 |
08. apr. 2019 |
Kærleikurinn sigrar allt
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
Kærleikurinn er ekki einhver þreyttur lagabókstafur eða steinrunnir stafir. Heldur síungt og ferskt hjartalag. Hugarþel, athöfn og verk sem spyrja ekki um endurgjald eða hvernig standi á. Kærleikurinn er ekki þrasgjarn. Hann gefur sig ekki út fyrir að vita alltaf allt best og hann veður ekki yfir. Hann hlustar og sýnir skilning. Hann virðir, umvefur, uppörvar og hvetur. Hann sér og hlustar með hjartanu. |
12:54 |
01. apr. 2019 |
Stökuspjall: Upp var hann boðinn velkominn!
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Hákarl og veiðar á þeirri lítt þekktu skepnu voru fundarefni í Húnabúð nú á útmánuðum. Byggðasafnsnefnd félagsins skipulagði fundina, sem hófust með frásögnum Þórs Magnússon fv. þjóðminjavarðar og Péturs í Ófeigsfirði tengdar hákarlaskipinu Ófeigi sem varðveittur er á safninu á Reykjum í Hrútafirði. Einnig las Þór ljóðið Í hákarlalegum sem birtist hér að hluta, síðar í greininni. |
14:39 |
21. mars 2019 |
Blá fátækt í boði Bjarna
Eftir Guðjón S. Brjánsson
Hvers vegna hefur tafist hjá starfshópi um kjör eldri borgara sem standa höllum fæti, sem ráðherra skipaði í vor og var ætlað að skila tillögum fyrir 1. nóvember 2018, að skila tillögum sínum og hvenær er von á tillögum frá hópnum?
Þessa spurningu lagði Ellert B. Schram fyrir félagsmálaráðherra þegar hann tók sæti á Alþingi í nokkra daga fyrr á þessu ári, elsti þingmaðurinn til að setjast á þing í lýðveldissögunni. |
07:04 |
06. mars 2019 |
Þú ert handarfar skaparans
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
Sú var tíðin að ég rembdist eins og rjúpan við staurinn við að reyna að vera eitthvað. En þá var ég aldrei neitt, nema sýndarmennskan og ein stór vonbrigði.
Það var ekki fyrr en ég gafst upp og hætti að rembast að mér opinberaðist að í sjálfum mér væri ég svo sem ekki neitt, en þó óendanlega dýrmætur í augum Guðs, að mér fannst ég verða eitthvað, vera einhvers virði. |
10:11 |
01. mars 2019 |
Öryggisþjónusta í uppnámi
Eftir Guðjón S. Brjánsson
Eitt hinna mikilvægustu samfélagsverkefna er heilbrigðisþjónusta en hún hefur þróast á ýmsa vegu á Íslandi á undanförnum áratugum. Einstaka þættir hennar hafa sprottið fram fyrir tilstuðlan félagasamtaka án hagnaðarsjónarmiða og þar má nefna sjúkraflutninga í landinu.
Félagar í Rauða Krossinum hófu sjúkraflutninga í sjálfboðaliðavinnu fyrir nærfellt einni öld og hafa staðið vörð um þennan þátt æ síðan. |
08:17 |
01. mars 2019 |
Í þakklæti og virðingu fyrir heilbrigðisstarfsfólki
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
Alltaf er nú gott að hrósa fólki, taka eftir öllu því jákvæða sem er að gerast í lífi okkar og tilveru og þakka fyrir það sem vel er gert.
Mikið ber ég mikla virðingu fyrir og er þakklátur fyrir allt okkar hlýja, góða og vandaða heilbrigðisstarfsfólk, sem leggur sig fram dag eftir dag til að gera okkur ævigönguna bærilegri. Hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða, geislafræðinga, líftækna, sjúkraþjálfara og aðra sem starfa í kringum þá. |
12:42 |
24. feb. 2019 |
Bæn fyrir þeim sem glíma við krabbamein
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
Lifandi Guð og frelsandi lífgjafi! Þú sem elskar, kannt að hlusta og finna til. Þú sem yfir okkur vakir og berð raunverulega umhyggju fyrir hverju barni þínu í öllum kringumstæðum. Þú sem lofaðir að yfirgefa okkur ekki! Miskunna þú okkur nú í vanmætti okkar og máttleysi er við í einlægri bæn vonumst til að þú heyrir ákall okkar og skynjir vonbrigði okkar og umkomuleysi. |
18:57 |
17. feb. 2019 |
Stökuspjall: Yndi hljóðra sumarnátta
Gamall bær með sögu og sál, sunnanblær og lömb í haga, vorið hlær um vötn og ál
vermir kæra æskudaga (GBH). Öldungur úr Blöndudal og þó einnig af Laxárdal hefur kvatt okkur og við þökkum góð kynni, hraustleg handtök, ódeigan hug og hvassa tungu, listamann sem saumaði, orti, ritaði blaðagreinar og lét sig ekki muna um löng ferðalög til að taka þátt í árlegum samkomum með hagyrðingum og vinum: Á Hveravöllum, Núpi, Bændahöllinni og víðs vegar um land en fyrst hittist hópurinn hjá flóanum heima, haustið 1989 á Skagaströnd. |
18:42 |
16. feb. 2019 |
Fjögur ár
Eftir Rúnar Þór Njálsson
Í 4 ár hef ég unnið hörðum höndum með aðeins eitt markmið, að láta minn helsta draum rætast, að ferðast alla leið til Nýja-Sjálands. Ég hef gert allt sem ég get til að hann rætist og gangi eins snuðrulaust fyrir sig og hægt er. Ég hef komið mér á framfæri, skrifað greinar og pósta um þetta, farið í viðtöl í blöðum og sjónvarpi, sent heilan helling tölvupósta á fyrirtæki þessa lands og gert margt til að fjármagna þetta eins og að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. |
12:44 |
06. feb. 2019 |
Setur veðra og vinda við Húnaflóa? - Uppfærsla Hafíssetursins á Blönduósi
Eftir Þór Jakobsson
Nýlega fjallaði huni.is um Hafíssetrið á Blönduósi og hægfara stöðnun þess sem hófst af ýmsum ástæðum fyrir nokkrum árum. Hafíssetrið gekk vel fyrstu árin en hamlandi aðstæður urðu til þess að ekki þótti fært að reka það áfram. Sýningin er í frekar þröngu Hillebrandtshúsinu sem er merkilegur safngripur eitt og sér en eðlilega annmörkum háð fyrir sýningarhald. Endurnýjun varð ekki sem skyldi og aðsókn fór dvínandi með árunum. |
12:51 |
30. jan. 2019 |
Bæn fyrir lögregluþjónum, slökkviliðsmönnum, landhelgisgæslu og björgunarsveitarfólki
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
Almáttugi verndari, kærleiksríki, umhyggjusami og hjálpsami Guð, Þú sem ert höfundur og fullkomnari lífsins!
Þakka þér fyrir þau öll sem gefa kost á sér til þeirra vandasömu starfa sem fylgir því að vera starfsmenn lögreglu, slökkviliðs, sjúkraflutninga, landhelgisgæslu eða liðsmenn björgunarsveita á okkar landi og um heim allan og vinna sín störf í öllum veðrum oft við mjög erfiðar aðstæður. |
07:46 |
17. jan. 2019 |
Tækifæri í ferðaþjónustu
Eftir Arnheiði Jóhannsdóttur
Ferðaþjónustuaðilar frá öllu landinu fjölmenna nú í lok janúar til höfuðborgarinnar í sjötta skiptið til þess að taka þátt í ferðasýningunni Mannamóti. Mikill kraftur einkennir ferðaþjónustuna eins og áður og eru fyrirtæki frá landshlutunum 270 talsins en þeim fylgir hópur hátt í 400 einstaklinga sem munu taka á móti gestum sínum frá höfuðborgarsvæðinu og kynna fyrir þeim þjónustu, spennandi áfangastaði og ýmsar nýjungar. |
20:58 |
15. jan. 2019 |
Hver kann svo sem að biðja?
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
Bara svo því sé nú haldið til haga þá tel ég mig vera all nokkurn bæna mann. Fel Guði reglulega og jafnvel oft á dag mig og mína og það sem ég fæst við hverju sinni. Mér finnst gott að biðja. Ég finn fyrir friði og öryggi sem ég get ekki tekið mér sjálfur.
Ég tek það þó fram að ég kann bara alls ekkert að biðja. Ég kann engar formúlur í þeim efnum. |
09:36 |
14. jan. 2019 |
Stökuspjall: Sjóndeildarhringur með eyktamörkum
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Á nýju ári kvikna nýjar sögur, nýjar samkomur og sambönd, kannski ný ljóð og vísur. Húnvetningar nokkrir og Jón á Kirkjubóli í Steingrímsfirði sendu frá sér bækur í vetur og þjóðfræðingurinn Dagrún Ósk Jónsdóttir flutti fyrirlestur með veggspjaldasýningunni: Skessur sem éta karla. |