Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 15:57 0 0°C
Laxárdalsh. 15:57 0 0°C
Vatnsskarð 15:57 0 0°C
Þverárfjall 15:57 0 0°C
Kjalarnes 15:57 0 0°C
Hafnarfjall 15:57 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 1-15 16-30 af 96 Næstu 31-45
KlukkanDagsetningFrétt
16:09 17. feb. 2020   Bingó til styrktar Krabbameinsfélagi A-Hún.
Nemendur í viðburðarstjórnun í Höfðaskóla héldu Bingó á laugardaginn. Veglegir vinningar voru í boði og einnig var hægt að kaupa veitingar í hléi. Samtals söfnuðu nemendurnir 107.700 krónum og gáfu þau allan ágóðann til Krabbameinsfélags Austur-Húnavatnssýslu. Glæsilega gert. Nemendurnir þakka þeim sem mættu kærlega fyrir stuðninginn.
09:19 17. feb. 2020   Lýðheilsa og áhrifavaldar í Húnaþingi vestra
Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga býður til fyrirlesturs föstudaginn 28. febrúar klukkan 18 í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga. Þar munu þau Þorsteinn V. Einarsson og Sólborg Guðbrandsdóttir halda fyrirlestur undir heitinu #karlmennskan og #fávitar, sem þau hafa hlotið lof fyrir víða um land. Sólborg ræðir um kynferðislega áreitni og ofbeldi sem fólk verður fyrir á samfélagsmiðlum og Þorsteinn um víðtækar hugmyndir um karlmennsku í samfélaginu og neikvæða pressu sem margir verða fyrir vegna þeirra.
09:14 17. feb. 2020   Komum reiðhöllinni í betra horf fyrir 20 ára afmælið
Reiðhöllin í Arnargerði á Blönduósi á 20 ára afmæli 11. mars næstkomandi. Að því tilefni stendur til að bjóða félagsmönnum í Hestamannafélaginu Neista að koma saman og eiga góð stund á afmælinu. Þann dag standa einnig vonir til að hægt verði að taka formlega í notkun endurbættan sal reiðhallarinnar. Stjórn Neista vinnur nú að skipulagningu þessa verkefnis og óskar eftir aðstoð frá félagsmönnum, sem og öðrum, sem eru tilbúin að aðstoða við að koma reiðhöllinni í betra horf. „Það er mikið verk fyrir höndum og verður fyrsta vinnuhelgi í reiðhöllinni 29. febrúar - 1. mars“, segir á vef Neista.
13:10 16. feb. 2020   Veiðileyfi í Blöndu og Svartá komin í sölu
Veiðisvæði Blöndu og Svartár eru komin í sölu á veiðileyfavefnum veiða.is. Veiðifélagið Starir er nýr leigutaki svæðanna og hafa miklar breytingar verið gerðar á veiðifyrirkomulaginu fyrir komandi veiðitímabil sem snúa að leyfilegu agni, kvóta og fjölda stanga. Breytingarnar eiga að stuðla að uppbyggingu svæðanna til framtíðar.
15:50 15. feb. 2020   Engar þvingaðar sameiningar á næstu árum
Í drögum að frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum, sem innleiðir á ný ákvæði um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga, er haldið í þá reglu sem áður var að finna í sveitarstjórnarlögum frá 1986 og 1998, um að miða skuli við að íbúafjöldi sveitarfélaga þurfi að vera undir lágmarksíbúðamarkinu þrjú ár í röð, áður en ráðuneyti sveitarstjórnarmála ber að hafa frumkvæði að sameiningu sveitarfélagsins við annað eða önnur félög. Þá verður ráðherra fengin heimild til að veita sveitarfélagi tímabundna undanþágu til allt að fjögurra ára frá skilyrði um lágmarksíbúafjölda, ef sérstakar félagslegar eða landfræðilegar aðstæður eru til staðar.
16:30 14. feb. 2020   Rafræn íbúagátt hjá Húnaþingi vestra
Á vef Húnaþings vestra hefur verið opnuð rafræn íbúagátt. Í henni geta íbúar nálgast útgefna reikninga frá sveitarfélaginu og skráð sig inn á svæði hitaveitunnar. Þar finna þeir allar helstu upplýsingar eins og um notkun, álestra, hreyfingayfirlit, reikninga og viðskiptastöðu. Notendur skrá sig inn á íbúagáttina með íslykli. Með íbúagáttinni er sveitarfélagið að auka þjónustu við íbúa sveitarfélagsins og stuðla að umhverfisvænum rekstri. Og með henni mun Húnaþing vestra hætta útprentun hitaveitureikninga.
13:31 14. feb. 2020   Tjón á tveimur bæjum í Húnaþingi
Töluvert tjón hefur orðið í óveðrinu á tveimur bæjum í Vatnsdal og Víðidal. Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn á Norðurlandi vestra sagði í viðtali við Ríkisútvarpið í hádeginu að mikið tjón hafi orðið í Vatnsdal þar sem útihús, vélar og íbúðarhús hafi skemmst og að viðbragðsaðilum gangi illa að komast á vettvang vegna veðurs. Nokkur viðbúnaður er hjá yfirvöldum en aðgerðarstjórn er á Sauðárkróki og vettvangsstjórn er á Blönduósi.
12:05 14. feb. 2020   Frumvarp um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga komið í samráðsgáttina
Drög að frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum sem innleiðir á ný ákvæði um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Samkvæmt frumvarpinu verður lágmarksíbúafjöldi 250 frá almennum sveitarstjórnarkosningum árið 2022 og 1.000 frá almennum sveitarstjórnarkosningum árið 2026. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila umsögn er til og með fimmtudagsins 27. febrúar 2020.
11:24 14. feb. 2020   Norðurlandsmót í júdó á Blönduósi
Norðurlandsmót í júdó var haldið á Blönduósi um síðustu helgi og mættu 35 keppendur frá þremur júdófélögum á Norðurlandi; Tindastóli á Sauðárkróki, Pardusi á Blönduósi og KA á Akureyri. Norðurlandsmót, sem er samstarfsverkefni júdófélaganna, hafa verið haldin á Blönduósi frá árinu 2015 og var nú haldið í fimmta sinn í röð. Halda átti mótið í byrjun nóvember á síðasta ári en var frestað. Sagt er frá þessu á vef Tindastóls.
10:56 14. feb. 2020   Augnlæknir á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi
Tilkynning frá HSN
Örn Sveinsson augnlæknir verður með móttöku á Heilbrigðsstofnun Norðurlands á Blönduósi dagana 25. - 27. febrúar 2020.
06:58 14. feb. 2020   Fjallvegir lokaðir – ekkert ferðaveður
Appelsínugult ástand
Ekkert ferðaveður er landinu og eru fjallvegir meira og minna lokaðir. Á Norðurlandi er vegirnir um Holtavörðuheiði, Vatnsskarð, Þverárfjall, Siglufjarðarvegur og Öxnadalsheiði lokaðir. Appelsínugul veðurviðvörun tók gildi klukkan 05:00 í morgun á Norðurlandi vestra og er hún í gildi til klukkan 22:00 í kvöld. Gera má ráð fyrir austan stormi eða roki í dag með vindhrapa á bilinu 20-30 metrum á sekúndu, hvassast á fjallvegum. Förum varlega.
15:41 13. feb. 2020   Eftirmál óveðursins – FUNDI FRESTAÐ
Opnum fundi um eftirmál óveðursins sem halda átti í Víðihlíð í kvöld er frestað. Gestir fundarins að sunnan treysta sér ekki til að mæta vegna slæmrar veðurspár. Nýr fundartími auglýstur síðar.
15:40 13. feb. 2020   Skólahald raskast í Húnaþingi á morgun
Fréttin hefur verið uppfærð
Allt skólahald í Húnavatnssýslum fellur niður á morgun, föstudaginn 14. febrúar vegna slæmrar veðurspár. Íþróttahúsið og sundlaugar verða einnig lokaðar. Vegagerðin hefur birt yfirlit yfir þá vegi sem eru á óvissustigi vegna veðursins sem er á leiðinni. Á Norðurlandi vestra má búast að veginum um Holtavörðuheiði verði lokað frá klukkan 04:00 í fyrramálið. Búast má við að veginum um Vatnsskarð verði lokað frá klukkan 04:00 í fyrramálið og að lokunin standi til 07:00 15. febrúar.
15:33 13. feb. 2020   Árshátíð Blönduskóla færð til um einn dag vegna slæmrar veðurspár á morgun
Árshátíð Blönduskóla hefur verið færð aftur um sólarhring vegna veðurofsans sem spáð er á morgun föstudaginn 14. febrúar. Verður hún því laugardaginn 15. febrúar kl. 19:00 í Félagsheimilinu á Blönduósi.
15:28 13. feb. 2020   Íþróttamiðstöðin á Blönduósi lokuð föstudaginn 14. febrúar
Tilkynning frá forstöðumanni
Vegna slæmrar veðurspár er Íþróttamiðstöðin á Blönduósi lokuð á morgun, föstudaginn 14. febrúar.
Fyrri 1-15 1 2 3 4 5 6 7 Næstu 31-45
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið