20:39 |
20. maí 2020 |
Íþróttamiðstöðin á Blönduósi opnar á ný
Íþróttamiðstöðin á Blönduósi opnar á ný föstudaginn 22. maí klukkan 06:30. Í tilkynningu segir að vegna viðgerða opni sundlaugin seinna en að opið verði í pottana, vaðlaugina, köldu körin og gufuna. Önnur þjónusta Íþróttamiðstöðvarinnar verður ekki í boði að svo stöddu. Þreksalurinn opnar mánudaginn 25. maí klukkan 06:30. |
11:19 |
20. maí 2020 |
Stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða heimsótti Norðurland vestra
Stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða og starfsmenn Ferðamálastofu, sem annast málefni sjóðsins, voru í byrjun vikunnar á ferð um Norðurland vestra. Hópurinn heimsótti á mánudaginn nokkra af þeim stöðum sem hafa verið í umsóknarferli hjá sjóðnum í síðustu úthlutunum og eru ýmist í gangi sem verkefni eða þegar lokið. Í gær tók hópurinn svo þátt í samráðsfundi sveitarfélaga svæðisins og Fagráðs ferðaþjónustunnar á Norðurandi vestra, sem haldin er tvisvar á ári. |
08:06 |
20. maí 2020 |
Breyttir opnunartímar - bókasafnið opið á laugardögum
Tilkynning frá Héraðsbókasafni A-Hún.
Stundum er gott að breyta til, og nú langar okkur að prófa breytingar á opnunartímum bókasafnsins. Minni aðsókn hefur verið eftir kl. 17:00 undanfarið og svo virðist vera erfitt fyrir fjölskyldur að koma á safnið á virkum dögum. Því hafa opnunartímar bókasafnsins verið breytt og eru nú eftirfarandi: |
07:38 |
20. maí 2020 |
Sumarstörf fyrir námsmenn hjá SSNV
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra auglýsa tvö sumarstörf fyrir námsmenn. Störfin er studd úr átaksverkefni ríkisstjórnarinnar til fjölgunar sumarstarfa. Skilyrði er að námsmennirnir séu á milli anna, þ.e. hafi stundað nám á vormisseri, séu skráðir í nám á haustmisseri og geti framvísað staðfestingum þar um. Ráðningartími er tveir mánuðir á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst 2020. Námsmenn þurfa að vera að lágmarki 20 ára á árinu og eiga lögheimili á Norðurlandi vestra. |
07:10 |
20. maí 2020 |
Biopol vaktar ströndina á Víkum á Skaga
Sjávarlíftæknisetrið Biopol á Skagaströnd heldur úti strandvöktun samkvæmt aðferðafræði og leiðbeiningum frá OSPAR, sem er samningur um verndun hafrýmis Norðaustur-Atlantshafsins. Þetta er þriðja árið sem Biopol tekur þátt í verkefninu og vaktar ströndina á Víkum á Skaga. Ströndin er ein af sex OSPAR ströndum hér á landi. Tilgangurinn með vöktuninni er að draga úr skaðsemi vegna mengunar á hafi og ströndum með því að finna út hvaðan rusl á ströndunum kemur, hversu hratt það safnast upp á ströndunum og fleira. |
07:03 |
20. maí 2020 |
Húnahornið komið í lag
Vefur Húnahornsins lá niðri í allan gærdag vegna bilunar í hýsingu en hann er kominn í lag núna. Fréttir síðustu tveggja daga hafa því miður tapast. Við biðjumst velvirðingar á því. |
08:02 |
17. maí 2020 |
Mörg sveitarfélög illa stödd vegna hruns ferðaþjónustu
Byggðastofnun hefur gert samantekt á áhrifum niðursveiflu í ferðaþjónustu á atvinnuástand á landsbyggðinni en í henni er mikilvægi ferðaþjónustunnar greint eftir svæðum og sveitarfélögum. Niðurstöður leiða í ljós að mörg sveitarfélög verða fyrir miklum búsifjum vegna ástandsins en að mati Byggðastofnunar verða níu sveitarfélög fyrir þyngstu höggi; eitt á Norðurlandi eystra, fimm á Suðurlandi og þrjú á Suðurnesjum. |
07:55 |
16. maí 2020 |
Byrja að sekta fyrir nagladekk á fimmtudaginn
Lögreglan á Norðurlandi vestra mun byrja að sekta ökumenn fyrir notkun nagladekkja eftir 20. maí næstkomandi. Þegar vegir eru auðir slíta nagladekkin malbikið mun hraðar en önnur dekk og valda því mun meiri mengun. Lögreglan hvetur ökumenn til að skipta strax af nagladekkjum til að forða þeim frá háum sektum, sem geta numið allt að 80 þúsund krónum fyrir fólksbíl, eða 20 þúsund krónur á hvert nelgt dekk. |
14:55 |
15. maí 2020 |
Opnun sundlaugarinnar á Blönduósi seinkar vegna viðgerða
Tilkynning frá Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi
Vegna flísaviðgerða á sundlaugarsvæðinu okkar þá opnum við ekki mánudaginn 18. maí eins til stóð. Stefnt er að opna í lok næstu viku. Flísaviðgerðir eru mun meiri en áætlað var og því seinkar verkinu því miður aðeins, eins hefur veðurfar sett strik í reikninginn. |
13:38 |
15. maí 2020 |
Vilja að sveitarfélög og ríkið komi saman að viðbyggingu við verknámshús FNV
Skólanefnd Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra hefur sent Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra erindi þar sem farið er yfir brýna þörf á viðbyggingu við verknámshús skólans. Þess er farið á leit að stjórn SSNV að hún beiti sér fyrir því að sveitarfélög á starfssvæðinu og ríkið komi saman að verkefninu svo hægt verið að hefja framkvæmdir hið fyrsta. |
13:22 |
15. maí 2020 |
Átaksverkefni á Norðurlandi vestra valin
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hefur ákveðið hvaða verkefni verða styrkt í tengslum við átaksverkefni í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Alls bárust 90 hugmyndir með áætlaðan heildarkostnað á bilinu 250-300 milljónir króna. Til ráðstöfunar voru 50 milljónir, ásamt því sem farið var í endurskilgreiningu fyrri verkefna. |
11:08 |
15. maí 2020 |
Dýpkun Hvammstangahafnar nauðsynleg
Sveitarstjórn Húnaþings vestra telur afar mikilvægt að farið verði í dýpkunarframkvæmdir í Hvammstangahöfn á þessu ári þar sem ljóst þykir að sandur haldi áfram að safnast í höfnina og mögulega verði hún ófær næsta vor fyrir stærri skip. Sveitarstjórn ætlar að óska eftir því að Vegagerðin taki þátt í kostnaði við framkvæmdina vegna mikilvægi hafnarinnar fyrir flutninga inn á svæðið. |
10:51 |
15. maí 2020 |
Sumarátaksstörf fyrir námsmenn á Skagaströnd
Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir á heimasíðu sinni þrjú sumarstörf fyrir námsmenn 18 ára og eldri. Störfin eru hluti af atvinnuátaki sveitarfélagsins í samstarfi við Vinnumálastofnun til þess að fjölga tímabundið störfum fyrir námsmenn vegna kórónuveirufaraldursins. Störfin eru umhverfisstörf er varða fegrun umhverfis og bætta ásýnd sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur til og með 24. maí næstkomandi. |
09:34 |
15. maí 2020 |
Dýralæknaþjónusta í dreifðum byggðum tryggð með samningum
Samningar hafa tekist við dýralækna í dreifðum byggðum landsins um að sinna nauðsynlegri dýralæknaþjónustu til næstu fimm ára. Samhliða voru gerðir verkkaupasamningar við dýralækna um að þeir sinni opinberum störfum fyrir Matvælastofnun og gerir það stofnuninni kleift að fækka héraðsdýralæknum og hagræða í rekstri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matavælastofnun. |
14:05 |
14. maí 2020 |
Mótmæla lækkun fjárframlaga til viðhalds á varnargirðingum
Landbúnaðarráð Húnaþings vestra mótmælir því harðlega að fjárframlög til viðhalds á sauðfjarvarnargirðingum í sveitarfélaginu lækkuð í ár. Samkvæmt upplýsingum frá verktaka sem sér um viðhald varnargirðinganna hefur honum verið tilkynnt lækkun á fjárframlögum. Það þýðir að nauðsynlegt viðhald verður í lágmarki og varnir gegn smitsjúkdómum búfjár illviðráðanlegar. |