Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Fimmtudagur, 18. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 00:35 0 0°C
Laxárdalsh. 00:35 0 0°C
Vatnsskarð 00:35 0 0°C
Þverárfjall 00:35 0 0°C
Kjalarnes 00:35 0 0°C
Hafnarfjall 00:35 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 1-15 16-30 af 90 Næstu 31-45
KlukkanDagsetningFrétt
09:49 26. sep. 2020   Söfnun á birkifræi
Skógræktin og Landgræðslan taka nú höndum saman og óska eftir stuðningi landsmanna við að breiða birkiskóga landsins út. Hafið er átak við að safna birkifræi sem verður dreift á völdum beitarfriðuðum svæðum í öllum landshlutum. Hugmyndin er að almenningur og hópar vítt og breitt um landið safni birkifræi í nágrenni sínu eða í völdum birkiskógum í sínum landshluta.
13:43 25. sep. 2020   Afburða leikmenn með rætur til Skagastrandar
Á vef Skagastrandar er sagt frá því að fjórir afburða leikmenn íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu eigi rætur að rekja til staðarins. Það eru þær Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Sonný Lára Þráinsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir.
13:10 25. sep. 2020   Vonast eftir sérþjálfuðum COVID-leitarhundum
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra, Stefán Vagn Stefánsson, vonast til að fá sérþjálfaða COVID-leitarhunda til landsins, gefi þeir góða raun erlendis. Segir hann í samtali við Ríkisútvarpið að lögreglan sé í stöðugu sambandi við stofnanir í Bretlandi sem þjálfi hunda og rannsaki hvort þeir geti orðið að liði í greiningu kórónuveirusýna. Samkvæmt fréttum frá Finnlandi benda fyrstu niðurstöður til þess að hundar geti greint jákvæð sýni með um 90 prósenta nákvæmni en COVID-leitarhundar tóku til starfa á flugvellinum í Helsinki í Finnlandi í fyrradag.
16:21 24. sep. 2020   Stjórnmálaályktun kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi
Á aðalfundur kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi sem haldinn var í Borgarnesi 13. september síðastliðinn var samþykkt stjórnmálaályktun. Í henni segir m.a. að algjört forgangsatrið sé að tryggja samfélagslegan arð af auðlindum þjóðarinnar þar sem fullt gjald komi fyrir afnotin og að stuðla þurfi að sjálfbæru landbúnaðarkerfi sem auki hagkvæmni í framleiðslu landbúnaðarafurða og tryggi þannig aukna verðmætasköpun. Þá leggur Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi þunga áheslu á tafarlausar umbætur í samgöngumálum.
08:10 24. sep. 2020   Áskorun til íbúa Húnavatnssýslu
Frá velunnurum
Við sem búum á þessu svæði höfum verslun sem hefur þjónað okkur ansi lengi. Það er Kjörbúðin okkar. Viljum við ekki örugglega hafa hana áfram? Hún sér okkur ekki bara fyrir nauðsynjavörum heldur skapar hún líka mörg störf. Þegar ferðamaðurinn hverfur er ennþá nauðsynlegra að við sem búum á þessu svæði VERSLUM Í HEIMABYGGÐ.
20:37 23. sep. 2020   KÁ sigrað - ÍH næst
Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar tók á móti Knattspyrnufélagi Ásvalla á Blönduósvelli klukkan 16 í dag. Leikurinn var síðari viðureign liðanna í úrslitakeppni 4. deildar en fyrri leiknum lauk með jafntefli 2-2 í Hafnarfirði síðastliðinn laugardag. Strax á 6. mínútu skoraði Oliver James Kelaart Torres fyrir heimamenn og varð það eina mark leiksins. Kormákur/Hvöt er því komið áfram í úrslitakeppninni og mætir Íþróttafélagi Hafnarfjarðar í næstu umferð.
13:24 23. sep. 2020   N4 í heimsókn á Húnavöllum
Norðlenska sjónvarsstöðin N4 var á ferðinni í Húnavatnshreppi nýverið. Sjónvarpsfólkið kom við á Húnavöllum, heimsótti Húnavallaskóla og ræddi við Einar Kristján Jónsson, sveitarstjóra sveitarfélagsins um rafhleðslustöðvar. Rætt er við Sigríði Bjarneyju Aadnegard, skólastjóra Húnavallaskóla og stærðfræðikennarana Kristínu Jónu Sigurðardóttur og Jóhönnu Stellu Jóhannsdóttur, um tungumál stærðfræðinnar og stærðfræðispjalli, en það er aðferð sem notuð er í skólanum til að tala um stærðfræði.
13:02 23. sep. 2020   Umfjöllun um kirkjugarðinn á Blönduósi á N4
Mikið starf hefur verið unnið í kirkjugarðinum á Blönduósi undanfarin þrjú ár sem vakið hefur verðskulda athygli víða, m.a. hjá norðlensku sjónvarpsstöðinni N4 sem tók nýlega tal af Valdimari Guðmannssyni, formanni kirkjugarðsráðs. Veðrið var ekki upp á sitt vesta þegar sjónvarpsfólkið mætti á Blönduós og því fór viðtalið fram í kúluhúsi Valdimars sem staðsett er í garðinum hans en ekki í kirkjugarðinum eins og til stóð.
09:28 23. sep. 2020   Virðum fjarlægðarmörk og mætum með grímu
Tilkynning frá HSN
HSN á Blönduósi vill ítreka við þá sem koma til okkar að mæta með maska, mæta á réttum tíma og virða fjarlægðarmörk.
17:29 22. sep. 2020   Inngangur að neyðarvörnum - netnámskeið
Frá Rauða krossinum í Húnavatnssýslum
Námskeiðið Inngangur að neyðarvörnum verður haldið í fjarnámi fimmtudaginn 24. september næstkomandi. Námskeiðið kemur í stað námskeiðanna sem halda átti á Blönduósi og Hvammstanga og er sérstaklega miðað að svæði Húnavatnssýsludeildar en kennsla fer fram í gegnum fjarfundarforritið Zoom. Ókeypis er á námskeiðið og skráning fer fram hér.
14:39 22. sep. 2020   Meirihluti bænda hefur áhuga á ullarræktun
Í skýrslu Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, sem unnin var fyrir Textílmiðstöð Íslands, þar sem kannað er viðhorf sauðfjárbænda til ullarræktunar og hvernig hægt sé að auka verðmæti hennar, kemur fram að rúmlega helmingur svarenda hefur mjög eða frekar mikinn áhuga á ullarræktu en 18% höfðu frekar lítinn eða mjög lítinn áhuga. Könnunin náði til 1.080 búa eða allra sauðfjárbænda 18 ára og eldri með bú skráð í Landssamtök sauðfjárbænda um allt land. Svarhlutfall var 53%.
09:36 22. sep. 2020   Opið hús í Nesi listamiðstöð
Opið hús verður í Nesi listamiðstöðinni að Fjörubraut 8 á Skagaströnd á morgun, miðvikudaginn 23. september klukkan 16:30-18:30. Sex mánuðir eru liðnir síðan haldið var opið hús síðast í listamiðstöðinni. Listamennirnir sem þar dvelja bjóða gestum að koma og sjá verk sín en þeir eru Hannah Witner, Erin Strada, Andolie Marguerite, Shinae Kim Kor, Andra Watkins og Sophie Cousins.
10:47 21. sep. 2020   Viðhorf bænda til ullarinnar
Nýlega lauk skoðanakönnun á vegum Textílmiðstöðvar Íslands um viðhorf bænda til ullarinnar. „Ýmis tækifæri liggja í notkun og meðhöndlun á ull, en við vildum vita meira um viðhorf bænda. Hver er áhuginn á úrvinnslu á ullinni? Má bæta ullina og þá hvernig? Hvað finnst bændum um ullarverðið? Fleiri spurningar vöknuðum,“ segir Jóhanna E. Pálmadóttir, verkefnastjóri hjá Textílmiðstöðinni.
21:50 20. sep. 2020   Ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra í heimsókn í Austur-Húnavatnssýslu
Frá sameiningarnefndinni
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, heimsótti Austur-Húnavatnssýslu síðastliðinn mánudag ásamt aðstoðarmanni sínum, Ólafi Teiti Guðnasyni. Heimsóknin var í boði sameiningarnefndar sveitarfélaganna í sýslunni og var tilgangur hennar að kynna nýsköpun og atvinnuþróun á svæðinu, sem og þau tækifæri og áskoranir sem íbúar svæðisins standa frammi fyrir.
19:59 19. sep. 2020   Hörku leikur í Hafnarfirði
Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar mætti í Hafnarfjörðinn í dag og atti kappi við lið Knattspyrnufélags Ásvalla en um var að ræða fyrri leik liðanna í úrslitakeppni 4. deildar. Þrátt fyrir rok og rigningu með köflum var boðið upp á skemmtilegan og dramatískan knattspyrnuleik. Kormákur/Hvöt byrjaði leikinn af miklum krafti og var staðan 0-2 gestunum í vil eftir 25 mínútna leik.
Fyrri 1-15 1 2 3 4 5 6 Næstu 31-45
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið