11:07 |
20. nóv. 2020 |
Skorað á sveitarstjórn að skipuleggja íþrótta- og útvistarsvæðið í Hvammi
Ungmennaráð Húnaþings vestra hefur áhuga á að framtíðarsýn sveitarfélagsins verði sýnileg og skorar á sveitarstjórn að fara af stað með að skipuleggja íþrótta- og útivistarsvæðið í Hvammi. Fulltrúar í ráðinu óska eftir því að taka þátt í þeirri vinnu til að hafa áhrif á hvað það er sem ungt fólk vill fá inn á svæðið enda muni ungt fólk nýta það í tengslum við íþróttir og útivist, ásamt öðrum íbúum. |
11:51 |
19. nóv. 2020 |
Breyting gerð á fjárhagsáætlun Skagastrandar
Sveitarfélagið Skagaströnd hefur gert breytingu á fjárhagsáætlun sinni vegna ársins 2020, annars vegnar vegna rekstrar og hins vegar vegna fjárfestinga. Í viðauka við fjárhagsáætlunina sem lagður var fram á fundi sveitarstjórnar í gær er gert ráð fyrir 36,8 milljón króna aukningu á útgjöldum og að fjárfestingar dragist saman um þrjár milljónir. Gert er ráð fyrir að mæta niðurstöðu viðaukans, að fjárhæð 33,8 milljón krónur, með lækkun á handbæru fé. |
11:18 |
19. nóv. 2020 |
Tveir í einangrun og einn í sóttkví
Fjöldi þeirra sem eru í einangrun og sóttkví vegna kórónuveirufarsóttarinnar á Norðurlandi vestra hefur minnkað jafnt og þétt á við síðustu vikur. Samkvæmt tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á svæðinu eru núna tveir í einangrun og einn í sóttkví. Sömu sögu er að segja um landið allt og eru nú 233 í einangrun og hafa ekki verið jafn fáir síðan um miðjan september. |
10:58 |
19. nóv. 2020 |
Íþrótta- og tómstundastyrkir til 13 þúsund barna
Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Sveitarfélögin í landinu annast afgreiðslu styrkumsókna eftir að búið er að kanna rétt til styrksins inni á Ísland.is. |
09:45 |
18. nóv. 2020 |
Atvinnuleysi lægst á Norðurlandi vestra
Almennt atvinnuleysi á landinu er sem fyrr lægst á Norðurlandi vestra en það var 3,4% í október. Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar var almennt atvinnuleysi í október á landinu öllu 9,9%, sem er nokkur aukning frá fyrri mánuðum. Samanlagt atvinnuleysi í almenna kerfinu og í minnkandi starfshlutfalli jókst allstaðar á landinu í október en minnsta aukningin var á Norðurlandi vestra, Vestfjörðum og Vesturlandi eða á bilinu 0,5-0,8%. |
09:24 |
17. nóv. 2020 |
Dregið úr samkomutakmörkunum 18. nóvember
Grímuskylda afnumin í 5.-7. bekk grunnskóla
Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis sem fela í sér varfærnar tilslakanir á gildandi samkomutakmörkunum. Breytingarnar taka gildi 18. nóvember. Þær eru helstar að íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna í leik- og grunnskólum verður heimilt á ný. Í framhaldsskólum verða fjöldamörk aukin í 25. Hægt verður að hefja ýmsa þjónustustarfsemi sem krefst snertingar eða mikillar nándar. Almennar fjöldatakmarkanir miðast áfram við 10 manns. |
14:29 |
16. nóv. 2020 |
Sex í einangrun - einn í sóttkví
Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra uppfærði í dag skráningu yfir þá sem eru í einangrun og sóttkví vegna kórónuveirufarsóttarinnar. Nú eru sex í einangrun og einn í sóttkví samanber meðfylgjandi töflu. Áfram heldur þetta að síga niður á við í rólegheitunum, segir í tilkynningu frá aðgerðastjórninni. |
10:05 |
14. nóv. 2020 |
Tóku þátt í norrænu rafíþróttamóti
Nýverið var haldið norrænt rafíþróttamót á netinu sem heitir Nordic E-Sport United og tóku félagsmiðstöðvar frá Íslandi og Danmörku þátt. Ein þeirra var félagsmiðstöðin Órion á Hvammstanga. Krakkarnir æfðu sig í nokkrar vikur á netinu fyrir mótið undir leiðsögn Jóhannesar G. Þorsteinssonar og Aðalsteins Grétar Guðmundssonar, en þeir hafa séð um Rafíþróttir í Húnaþingi sem er félag fyrir alla í Húnaþingi sem hafa áhuga á tölvuleikjaspilun. |
09:32 |
14. nóv. 2020 |
Kanna hvort þörf sé á almenningssamgöngum á Norðurlandi vestra
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri hafa gert með sér samstarfssamning um vinnu við skoðun á fýsileika þess að koma á fót almenningssamgöngum a vinnusóknarsvæðum á Norðurlandi vestra. Markmiðið með verkefninu er að komast að því hvort þörf sé á almenningssamgöngum í landshlutanum og þá hverjir myndu helst nýta sér þær, milli hvaða staða og hvernig mætti útfæra þær svo þær nýtist sem best. |
15:46 |
13. nóv. 2020 |
Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa
Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður á sunnudaginn, 15. nóvember. Tilgangurinn er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðarslysum, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni en ekki hvað síst að þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun. Að þessu sinni verður minningardagurinn sniðinn að sérstökum aðstæðum í samfélaginu. Í stað rótgróinnar minningarstundar við þyrlupallinn við Landspítalann verður árvekniátak í samfélaginu um umferðaröryggi dagana 13.-15. nóvember. |
20:45 |
12. nóv. 2020 |
Þakkar kveðjur til B&S Restaurant
Við GULLBORGARNIR Hlynur og Silla sendum hjartans þakkir til Björns Þórs og Söndru eigenda B&S Restaurant á Blönduósi.
Fengum heim að dyrum dýrindis kvöldmat, kótilettur með öllu tilheyrandi eins og allir Gullborgara á Blönduósi, sem eru 70 ára og eldri. Þetta er á annað hundrað manns. Þvílíkt framtak.
Ef eitthvað getur glatt gömul hjörtu, er það einmitt svona dásamleg gjöf sem lífgar heldur betur upp á tilveruna. |
09:26 |
12. nóv. 2020 |
Jólasjóðurinn minnir á sig
Frá stjórn Jólasjóðsins
Nú fer að líða að jólum og vill Jólasjóðurinn minn á sig. Sjóðurinn hefur fengið styrki frá félagssamtökum, sveitarfélögum og einstaklingum til að aðstoða fjölskyldur og einstaklinga á svæðinu, sem minna mega sín. Þörf fyrir aðstoð á svæðinu hefur aukist frá ári til árs, hefur Félagsþjónustan fært einstaklingum og fjölskyldum inneignarkort sem jólasjóðurinn fjármagnar með styrkjum frá ykkur. Vill sjóðurinn koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem hafa styrkt sjóðinn í gegnum árin. |
09:20 |
12. nóv. 2020 |
Tilkynning um fráfall Hauks Pálssonar á Röðli
Frá aðstandendum
Ástkæri faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Haukur Pálsson frá Röðli lést mánudaginn 9. nóvember á HSN Akureyri. Útförin fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn 14. nóvember klukkan 14. Vegna aðstæðna verða einungis nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Vefstreymi má nálgast á facebooksíðu Blönduóskirkju. |
13:02 |
10. nóv. 2020 |
B&S sendir öllum 70 ára og eldri frían kvöldmat
Hjónin Björn Þór Kristjánsson og Sandra Kaubriene sem eiga og reka veitingastaðinn B&S Restaurant á Blönduósi ákváðu nýverið að bjóða öllum Blönduósingum 70 ára og eldri að fá frían kvöldmat heim að dyrum. Á boðstólum eru íslenskar lambakótelettur í raspi með öllu tilheyrandi. Á annað hundrað manns fær kvöldmat frá B&S í vikunni og verður úthlutað eftir hverfum. Fyrsta hverfið fékk mat gær, annað í kvöld og það síðasta á fimmtudaginn. |
11:55 |
10. nóv. 2020 |
Kristín Ingibjörg er nýr menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Blönduósbæjar
Kristín Ingibjörg Lárusdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúa Blönduósbæjar. Kristín starfar nú sem launafulltrúi á skrifstofu Blönduósbæjar og mun sinna því starfi þar til nýr launafulltrúi hefur verið ráðinn. Hún mun formlega taka við hinu nýja starfi um næstu áramót, að því er segir í tilkynningu á vef bæjarins. |