Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 11:24 0 0°C
Laxárdalsh. 11:24 0 0°C
Vatnsskarð 11:24 0 0°C
Þverárfjall 11:24 0 0°C
Kjalarnes 11:24 0 0°C
Hafnarfjall 11:24 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 1-15 16-30 af 88 Næstu 31-45
KlukkanDagsetningFrétt
07:38 18. jan. 2021   Hollvinasamtök HSB fá höfðinglega gjöf frá ELKO
Sigurlaug Þ. Hermannsdóttir, formaður Hollvinasamtaka HSB fékk heldur betur ánægjulegt símtal rétt fyrir jólin. Á línunni var Bára Sif Magnúsdóttir, barnabarn Báru Þorvaldsdóttur og Gunnars heitins Sveinssonar frá Skagaströnd. Bára Sif vinnur hjá ELKO og var það fyrir hennar tilstilli að Hollvinasamtökin fengu úthlutað 100.000 króna úttekt hjá fyrirtækinu. Þessi styrkur var notaður til kaupa á 55 tommu sjónvarpstæki sem verður á sjúkradeild B.
15:33 17. jan. 2021   Lýsir áhyggjum yfir stöðu dýralæknaþjónustu í Húnaþingi vestra
Landbúnaðarráð Húnaþings vestra lýsir áhyggjum yfir fyrirkomulagi og stöðu dýralæknaþjónustu í sveitarfélaginu. Í bókun sem samþykkt var á fundi ráðsins í síðustu viku segir að á komandi vormánuðum sé óvíst hvort starfandi dýralæknir verði með viðunandi aðstöðu í sveitarfélaginu og valdi það bændum áhyggjum. Landbúnaðarráð telur mikilvægt að málið verði skoðað með tilliti til þeirrar stöðu sem nú er uppi í sveitarfélaginu.
15:19 17. jan. 2021   Áfangastaðaáætlun Norðurlands gefin út í annað sinn
Áfangastaðaáætlun fyrir Norðurland, sem gildir árin 2021-2023 hefur nú verið gefin út. Hún er unnin af Markaðsstofu Norðurlands í samstarfi við Ferðamálastofu og nær yfir allt starfssvæði Markaðsstofu Norðurlands, frá Hrútafirði yfir á Bakkafjörð. Á svæðinu eru 20 sveitarfélög og tvö landshlutasamtök, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE).
15:51 16. jan. 2021   Skorað á ráðherra að hafna kaupum á Núpsdalstungu í Miðfirði
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur óskað eftir umsögn sveitarfélagsins Húnaþings vestra vegna kaupa einkahlutafélagsins Flaums á jörðinni Núpsdalstungu í Miðfirði. Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins eiga Flaumur og tengdir aðilar 5.548 hektara lands fyrir kaupin. Í jarðalögum er kveðið á um ákveðin skilyrði fyrir kaupum á jörð ef kaupandi og tengdir aðilar fara yfir ákveðið hámark í fjölda jarða og hektara. Stjórn Félags sauðfjárbænda í Vestur-Húnavatnssýslu hefur skorað á ráðherra að hafna kaupunum.
11:40 15. jan. 2021   Nýjar bifreiðar Slökkviliðs Skagastrandar og Björgunarsveitarinnar Strandar
Slökkvilið Skagastrandar og Björgunarsveitin Strönd festu kaup á nýjum bifreiðum síðastliðið haust sem hafa verið teknar í notkun. Nýi slökkvibíllinn var keyptur frá Feuerwehrtechnik Berlin og er af gerðinni MAN TGM, 2020 árgerð. Bíllinn er hinn glæsilegasti með 3.000 lítra vatnstanki og 300 lítra froðutanki ásamt því að vera búin öllum helsta búnaði sem nauðsynlegur er til slökkvistarfa.
11:26 15. jan. 2021   Hlutfall erlendra ríkisborgara hæst á Blönduósi af sveitarfélögum á Norðurlandi vestra
Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum en tölurnar miðast við 1. desember 2020. Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 44% niður í 1%, þó að jafnaði sé hlutfallið um 14% þegar horft er til allra sveitarfélaga. Af sveitarfélögum á Norðurlandi vestra er hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara á Blönduósi eða 14,6%. Meðaltal landshlutans er 9,1%.
11:11 15. jan. 2021   Nýrri grænbók stjórnvalda um byggðamál fagnað
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar fagnar nýrri grænbók stjórnvalda um byggðamál. Meginmarkmið hennar er að byggðir og sveitarfélög um land allt verði sjálfbær og að þjónusta samgöngu- og fjarskiptakerfa mæti þörfum samfélagsins. Áherslur og leiðir eru einnig brýnar, þ.e. að jafna aðgengi að þjónustu, jafna tækifæri til atvinnu og stuðla að sjálfbærri þróun byggða um land allt.
10:56 15. jan. 2021   Okkur vantar garn dokkur og hespur
Frá Félags- og tómstundarstarfi Blönduóss
Ágætu Húnvetningar. Við leitum til ykkar um hvort þið eigið garn dokkur eða hespur sem má vinda upp. Garn dokkur eru undnar upp en við endur vindum þær. Þetta mega líka vera hnyklar (ekki lopi). Það er yndislega kona, hún Herdís Ellertsdóttir, sem styttir sér stundir við að vinda upp bæði heima og í starfinu hjá okkur.
15:15 14. jan. 2021   Hestamannafélagið Neisti auglýsir námskeið í hestamennsku
Veturinn 2021 ætlar Neisti að bjóða upp á eftirfarandi námskeið á Blönduósi, en námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og tímasetningar og hópaskiptingar verða auglýstar að loknum síðasta skráningardegi á heimasíðu Neista.
14:51 14. jan. 2021   Félags- og tómstundarstarfið á Blönduósi opnar
Félags- og tómstundarstarfið á Blönduósi, að Þverbraut 1, er opið á mánudögum og fimmtudögum frá klukkan 14-17. Getum nú tekið á móti 20 manns. En því miður getum við ekki eins og staðan er boðið upp á spilamennsku. Muna þarf tveggja metra regluna og grímuskildu ef við getum ekki uppfyllt tveggja metra regluna. Erum með grímur og spritt.
10:29 14. jan. 2021   Iða Marsibil býður sig fram í 2.-3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi
Iða Marsibil Jónsdóttir býður sig fram í 2.-3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2021. Iða Marsibil er fædd árið 1977 og uppalin á Bíldudal. Að loknum grunnskóla lá leið hennar á Laugarvatn þar sem hún sótti nám við Menntaskólann. Nokkru síðar á lífsleiðinni stundaði Iða Marsibil nám við Háskólann á Bifröst og útskrifaðist þaðan sem viðskiptafræðingur árið 2006.
09:26 14. jan. 2021   Stefán Vagn vill leiða lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi
Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn á Norðurlandi vestra ætlar að gefa kost á sér til að leiða lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Greindi hann frá þessi á Facebook síðu sinni í gær og er ákvörðunin tekin í ljósi þess að Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, ætlar að bjóða sig fram í Reykjavíkurkjördæmi norður.
09:13 14. jan. 2021   Guðveig Lind gefur kost á sér í 1.-2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi
Guðveig Lind Eyglóardóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1.-2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2021. Frá árinu 2014 hefur Guðveig Lind verið oddviti Framsóknarflokksins í Borgarbyggð. Guðveig Lind er búsett í Borgarnesi. Ein af sjö systkinum, börnum Eyglóar Lind Egilsdóttur. Fædd árið 1976, og er gift Vigfúsi Friðrikssyni verslunarmanni og saman eiga þau þrjú börn.
16:07 13. jan. 2021   Nýr fulltrúi Ós-lista í sveitarstjórn
Jón Örn Stefánsson er nýr fulltrúi Ó-lista í sveitarstjórn Blönduósbæjar. Hann tekur sæti Birnu Ágústsdóttur sem hefur beðist lausnar frá störfum í sveitarstjórn og nefndum á vegum sveitarfélagsins. Birna var nýlega skipuð í starf sýslumanns á Norðurlandi vestra. Valgerður Hilmarsdóttir verður jafnframt nýr varamaður í sveitarstjórn.
12:20 13. jan. 2021   Tveir í einangrun á Norðurlandi vestra
Samkvæmt nýrri tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra eru nú tveir einstaklingar í einangrun í umdæminu vegna kórónuveirusmits. Tekið er fram að smitin eru landamærasmit og eru þau því ekki tilkomin á svæðinu. Í gær greindust sex með kórónuveiruna á landinu og voru þrír í sóttkví. Tíu greindust með virk smit á landamærunum en tveir reyndust með mótefni. Nú eru 164 í einangrun vegna Covid-19 á Íslandi og 242 í sóttkví.
Fyrri 1-15 1 2 3 4 5 6 Næstu 31-45
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið