Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 07:33 0 0°C
Laxárdalsh. 07:33 0 0°C
Vatnsskarð 07:33 0 0°C
Þverárfjall 07:33 0 0°C
Kjalarnes 07:33 0 0°C
Hafnarfjall 07:33 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 1-15 16-30 af 87 Næstu 31-45
KlukkanDagsetningFrétt
20:40 01. mars 2021   Sumarstörf við Íþróttamiðstöðina á Blönduósi
Frá Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi
Við auglýsum eftir tveimur konum til starfa við Íþróttamiðstöðina á Blönduósi fyrir sumarið 2021. Um er að ræða 100% stöðugildi, vaktavinnu og unnið um helgar skv. vaktaskipulagi. Ráðningartíminn (sumartíminn) er frá 1. júní til 20. ágúst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
16:02 01. mars 2021   Ullarþon - nýsköpunarkeppni á netinu
Lumar þú á mjúkri og hlýrri hugmynd?
Textílmiðstöð Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands halda Ullarþon daganna 25.-29. mars næstkomandi. Ullarþon er nýsköpunarkeppni haldin á netinu til að ýta undir nýsköpun og vöruþróun, auka verðmæti íslensku ullarinnar og þá sérstaklega verðminnstu ullarflokkanna. Verkefnið er styrkt af Framleiðnisjóði Landbúnaðarins.
10:07 01. mars 2021   Sameining grunnskóla stærsta málið
Jón Gíslason, formaður samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu, segir að stærsta skrefið sem stigið verði eftir sameiningu sveitarfélaganna sé sameining Blönduskóla og Húnavallaskóla. Í minnisblöðum starfshópa á vegum nefndarinnar sem kynntar verða á rafrænum íbúafundum í vikunni kemur fram að rekstrarhagræði er að því að sameina skólana. Sagt er frá þessu í Morgunblaðinu í dag.
15:07 27. feb. 2021   Lee Ann Maginnis er nýr formaður heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra
Lee Ann Maginnis var kosin formaður heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra á fundi nefndarinnar í gær. Lee Ann sem fædd er árið 1985 og er menntuð sem lögfræðingur og kennari. Hún er búsett á Blönduósi og starfar sem umsjónarmaður dreifnáms Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra.
13:19 26. feb. 2021   Kjör í stjórnir og nefndir Samstöðu
Frá Stéttarfélaginu Samstöðu
Stjórn og trúnaðarráð Stéttarfélagsins Samstöðu samþykkti á fundi sínum þann 25. febrúar síðastliðinn, tillögu uppstillingarnefndar að framboði til stjórnarkjörs í félaginu í þau embætti sem kjósa á um í ár samkvæmt lögum félagsins.
11:26 26. feb. 2021   Fjölnet og PREMIS sameinast
Upplýsingatæknifélögin Fjölnet og PREMIS hafa sameinast. Sérsvið félagana er rekstur tölvukerfa, alrekstursþjónusta og hýsing. Auk þess sinna félögin fjölbreyttri þjónustu á sviði upplýsingatækni. Áætluð velta sameiginlegs félags á árinu 2021 er á annan milljarð. Við viðskiptin verða Sigurður Pálsson og Pétur Ingi Björnsson, eigendur Fjölnets, starfandi hluthafar PREMIS, að því er fram kemur í tilkynningu. Félögin munu starfa undir nafni PREMIS með starfsstöðvar á Sauðárkróki og í Reykjavík.
09:26 26. feb. 2021   Góður árangur í ræktunarstarfinu
Frá stjórn Félags sauðfjárbænda í A-Hún.
Ár hvert halda búgreinafélög í Austur-Húnavatnssýslu sameiginlega árshátíð fyrir bændur héraðsins og veita þar viðurkenningar fyrir góðan árangur síðast liðins árs. Vegna covid-19 var ekki haldin búgreinahátíð en verðlaun voru þó veitt hjá Félagi sauðfjárbænda í A-Hún með viðhöfn. Framleiðsluárið 2020 var sauðfjárbændum í Austur-Húnavatnssýslu gjöfult. Afurðir voru með mesta móti en í sýslunni voru 28.699 vetrarfóðraðar ær og þær skiluðu að jafnaði 27,3 kg.
09:22 26. feb. 2021   Frjálsar íþróttir fyrir 3.-4. bekk
Fimmtudaginn 4. mars hefjast frjálsíþróttaæfingar fyrir börn í 3.-4. bekk. Æfingarnar verða á fimmtudögum frá klukkan 16-17. Verð fram á vor er 3.500 krónur. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á steinamagg@gmail.com. Dagana 4. mars og 11. mars verður hægt að prufa frítt. Eftir það þarf að vera búið að skrá iðkanda til að get mætt á æfingar. Þjálfari er Steinunn Hulda.
13:56 25. feb. 2021   Rafrænir íbúafundir um sameiningarmál
Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu boðar til tveggja rafrænna íbúafunda í mars. Sá fyrri fer fram miðvikudaginn 3. mars klukkan 20-23 og seinni fundurinn verður laugardaginn 6. mars klukkan 10-13. Á fundunum verður kynning á verkefninu, auk þess sem farið verður yfir afraksturinn af vinnu starfshópa sem fjallað hafa um stöðu málaflokka í starfsemi sveitarfélaganna.
13:46 25. feb. 2021   Skagaströnd auglýsir eftir atorkumiklum starfsmanni á höfn og í áhaldahús
Skagaströnd auglýsir eftir atorkumiklum starfsmanni á höfn og í áhaldahús sveitarfélagsins. Skagaströnd er fallegt sjávarþorp á norðurlandi vestra. Íbúar í sveitarfélaginu Skagaströnd eru um 480 og starfsmenn þess um 48 talsins. Í boði er 80 - 100% starf starfsmanns sem sinnir daglegum verkefnum á Skagastrandarhöfn og í áhaldahúsi sveitarfélagsins.
12:27 25. feb. 2021   Sveitarstjórn Húnavatnshrepps mótmælir lokun útbús Arion banka á Blönduósi
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps hefur bæst í hóp þeirra sem mótmæla harðlega lokun útibús Arion banka á Blönduósi. Lokunin var rædd á sveitarstjórnarfundi í gær og segir í bókun fundarins að það sé ljóst að á meðan Arion banki loki afgreiðslunni í nafni hagræðingar sé verið að skerða þjónustu og lífsgæði íbúanna á staðnum, sem margir hverjir eru háðir því að þjónustan sé fyrir hendi.
11:09 25. feb. 2021   Mótaröð Neista og SAH Afurða farin af stað
Mótaröð hestamannafélagsins Neista og SAH Afurða er farin af stað en í gærkvöldi var keppt í tölti T1 og T7 í reiðhöllinni í Arnargerði. Næsta mót verður haldið á Svínavatni 10. mars og verður þá um bæjarkeppni að ræða og keppt í barnaflokki, unglinga- og ungmennaflokki og fullorðinsflokki. Miðvikudaginn 24. mars fer fram fjórgangur í reiðhöllinni Arnargerði og 7. apríl verður keppt í þrígangi á beinni braut á skeiðvellinum.
09:33 25. feb. 2021   Erlendir fjárfestar áhugasamir um koltrefjaverksmiðju í Skagafirði
Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar, er gestur Karls Eskils Pálssonar í þættinum Landsbyggðum sem sýndur verður klukkan 20:30 í kvöld á sjónvarpsstöðinni N4. Þar verður meðal annars er rætt um koltrefjaverksmiðju í Skagafirði. Verði slík verksmiðja að veruleika er líklegt að nokkrir tugir nýrra starfa skapist í Skagafirði.
07:27 25. feb. 2021   Pósturinn býður Arion banka í samstarf á Blönduósi
Íslandspóstur hefur boðið Arion banka upp á samstarf um samnýtingu afgreiðsluhúsnæðis Póstsins að Hnjúkabyggð 32 á Blönduósi. Bjarni Jónsson, stjórnarformaður Íslandspósts, segir að Pósturinn sé nú þegar í góðu samstarfi við fjármálastofnanir um samnýtingu húsnæðis og starfsfólks víðsvegar um landið m.a. með Landsbankanum á Skagaströnd, Sparisjóði Strandamanna á Hólmavík og Arion banka í Búðardal og Bændahöllinni í Reykjavík.
21:15 24. feb. 2021   Tryggvi Guðmundsson þjálfar Kormák Hvöt
Stjórn knattspyrnudeildar Kormáks Hvatar hefur ráðið Tryggva Guðmundsson sem þjálfara meistaraflokks liðsins. „Hér er um hvalreka fyrir húnvetnskt íþróttalíf að ræða, þar sem ferilskrá Tryggva er löng og glæsileg,“ segir í tilkynningu frá stjórninni. Tryggi var markahæsti leikmaður allra tíma í deildarkeppnum á Íslandi, á tugi landsleikja að baki og spilaði með góðum árangri í sterkum liðum í atvinnumennsku erlendis.
Fyrri 1-15 1 2 3 4 5 6 Næstu 31-45
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið