Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Föstudagur, 29. mars 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2024
SMÞMFL
252627282912
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31123456
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 14:24 0 0°C
Laxárdalsh. 14:24 0 0°C
Vatnsskarð 14:24 0 0°C
Þverárfjall 14:24 0 0°C
Kjalarnes 14:24 0 0°C
Hafnarfjall 14:24 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
22. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
17. mars 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
15. mars 2024
Eftir Bjarna Jónsson
11. mars 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 1-15 16-30 af 92 Næstu 31-45
KlukkanDagsetningFrétt
23:32 05. jún. 2021   Sveitarfélögin fjögur sameinast ekki
Kjörstjórnir hafa lokið talningu atkvæða í Blönduósbæ, Húnavatnshreppi, Skagabyggð og Sveitarfélaginu Skagaströnd. Tillaga um sameiningu sveitarfélaganna fjögurra var felld. Íbúar í Blönduósbæ samþykktu sameiningu þar sem 89,4% sögðu já og 9,5% nei. Íbúar í Húnavatnshreppi samþykktu einnig sameiningu þar sem 56,6% sögðu já og 41,8% nei. Íbúar í Skagabyggð og á Skagaströnd felldu sameiningartillöguna.
22:53 05. jún. 2021   Enginn lax veiddist á opnunardegi Blöndu
Laxveiði hófst í Blöndu í dag en þau undur og stórmerki gerðust að enginn fiskur kom á land. Fara þarf mörg ár aftur í tímann til að finna jafn lélega opnun. Sporðaköst, veiðivefur mbl.is segir frá því að tveir reyndir veiðimenn, sem opnað hafa ána síðustu tólf árin, hefðu farið á alla veiðistaði og ekki náð að landa fiski.
22:41 05. jún. 2021   Sameiningartillagan felld í Skagabyggð
Meirihluti íbúa í Skagabyggð sögðu nei við sameiningartillögu samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Á kjörskrá voru 70 og greiddu 53 atkvæði eða 76%. Tuttugu og níu sögðu nei við tillögunni og tuttugu og fjórir sögðu já.
19:38 05. jún. 2021   Sætur sigur í Fagralundi
Kormákur/Hvöt mætti Vatnaliljunum í Fagralundi í Kópavogi nú síðdegis þegar leikið var í fjórðu umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, 4. deild D-riðli. Kormákur/Hvöt hóf leik á móti vindi og sat frekar aftarlega á vellinum og beitti skyndisóknum. Úr einni slíkri kom fyrsta mark leiksins þegar George Razvan Chariton vann boltann af harðfylgi og skoraði laglegt mark. Vatnaliljurnar náðu að jafna leikinn áður en flautað var til hálfleiks.
06:16 05. jún. 2021   Kosið um sameiningu í dag
Í dag fara fram kosningar um sameiningu Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar. Rétt til að kjósa hafa allir 18 ára og eldri sem eru á kjörskrá í viðkomandi sveitarfélagi. Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki. Kjörfundir fara fram í hverju sveitarfélagi og verða þeir opnir sem hér segir:
15:05 04. jún. 2021   Sýrlensk hátíð á Hvammstanga í gær
Í gær var því fagnað að tvö ár eru liðin síðan að 23 Sýrlendingar settust þar að á Hvammstanga. Formlegri aðstoð við hópinn er nú lokið og nú teljast þessir nýbúar fullgildir íbúar á Hvammstanga. Þrettán börn eru í þessum fjölskyldum og það var gaman hjá þeim á Hvammstanga í gær. Sagt var frá þessu í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í gær og rætt var við nýbúana og Ragnheiði Jónu Ingimarsdóttur, sveitarstjóra Húnaþings vestra.
08:15 04. jún. 2021   Jákvæður rekstur á Húnavatnshreppi
Húnavatnshreppur var rekinn með rúmlega 14 milljón króna jákvæðri afkomu í fyrra, samanborið við tæplega 18 milljón króna tap árið 2019. Rekstrartekjur námu 523 milljónum og jukust um 53 milljónir milli ára eða um 11%. Rekstrargjöld námu 464 milljónum og jukust um 14 milljónir eða um 3%. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði var því jákvæð um tæplega 59 milljónir, samanborið við rúmlega 19 milljón króna jákvæða afkomu 2019.
18:42 03. jún. 2021   Frá Skagastrandarprestakalli
Guðsþjónusta í Hólaneskirkju Sjómannadaginn 6. júní 2021 kl. 11.00. Skrúðganga leggur af stað frá hafnarsvæðinu til Hólaneskirkju kl. 10.30. Í guðsþjónustunni syngjum við saman sjómannalög og sálma undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista. Séra Bryndís Valbjarnardóttir þjónar fyrir altari. Ræðumaður dagsins er Guðmundur Finnbogason.
09:36 03. jún. 2021   Jöfnunarsjóður tilbúinn að styrkja umhverfisakademíu á Húnavöllum
Sveitarfélögin í Austur-Húnavatnssýslu fá 20 milljóna króna styrk úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að undirbúa og stofna umhverfisakademíu á Húnavöllum. Sameiningarnefnd sveitarfélaganna sótti um styrkinn til að geta hafist handa við undirbúning. Styrkur Jöfnunarsjóðsins er með fyrirvara um að af sameiningu sveitarfélaganna verði og að mennta- og menningarmálaráðuneytið veiti jákvæða umsögn um starfsemi skólans
11:40 02. jún. 2021   Opnunartími kjörstaða vegna kosningana á laugardaginn 5. júní.
Ítrekun vegna opnunartíma kjörstaða vegna Sameiningarkosningar í Austur-Húnavatnssýslu laugardaginn 5. júní. Áður auglýstur opnunartími var rangur en hér fyrir neðan er réttur tími. Opið verður til kl. 22:00 á Blönduósi og Skagaströnd.
07:35 02. jún. 2021   Nýr upplýsingavefur um samgöngur, fjarskipti og byggðamál
Vegvísir.is er nýr gagnvirkur upplýsingavefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis. Vefnum er ætlað að vera leiðarvísir almennings að lykilupplýsingum um samgöngur, fjarskipti og byggðamál. Á vef stjórnarráðsins segir að vegvísirinn marki tímamót með nýstárlegri framsetningu á opinberum gögnum, en þar verður hægt að fylgjast með fjármögnun, framvindu og árangri í yfir 500 verkefnum og stöðu 60 árangursmælikvarða.
07:03 02. jún. 2021   Ferðagjöf 2021 aðgengileg þeim sem vilja
Ferðagjöf 2021 er aðgengileg hér á Ísland.is og þurfa allir sem ætla að nýta sér gjöfina að skrá sig aftur inn og sækja nýja Ferðagjöf. Allir einstaklingar með lögheimili á Íslandi, fæddir 2003 og fyrr, fá Ferðagjöf að andvirði 5.000 krónur. Ferðagjöfin er afhent í formi strikamerkis sem hægt er að sýna eða lesa upp þegar greitt er fyrir þjónustu hjá ferðaþjónustufyrirtæki sem er með í verkefninu.
16:39 01. jún. 2021   Sósíalistar með fund á Skagaströnd
Sósíalistar boða fólk á Skagaströnd og nágrenni til umræðu fimmtudagskvöldið 3. júní klukkan 20 um hvað kosningarnar í haust muni snúast. Hvað brennur á fólki? Og hvaða tilboð til kjósenda munu sósíalistar leggja fram? Fundurinn er á Kaffi Bjarmanesi á Skagaströnd. Húsið opnar klukkan 19:30 og samræðurnar hefjast klukkan 20:00.
14:44 01. jún. 2021   Fasteignamat hækkar um 7,4%
Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 7,4% frá yfirstandandi ári og verður 10.340 milljarðar króna, samkvæmt fasteignamati Þjóðskrár fyrir árið 2022. Þetta er umtalsvert meiri hækkun en tilkynnt var um fyrir ári síðan þegar fasteignamat hækkaði um 2,1% á landinu öllu. Fasteignamat íbúða hækkar um 8,9% á höfuðborgarsvæðinu á meðan hækkunin er 5,2% á landsbyggðinni.
13:08 01. jún. 2021   Áin Blanda innblástur nýrrar plötu Kviku
Hljómsveitin Kvika gefur út sína þriðju breiðskífu 10. júní næstkomandi. Hún ber nafnið The River og í tilkynningu kemur fram að uppspretta nafnsins kemur úr þremur ólíkum áttum m.a. frá lokaupptökum sem áttu sér stað í sumarbústað við ána Blöndu. Auk þess vísar nafnið til tveggja laga á plötunni og til aðstæðna Kvikumanna í Krakow, þar sem unnið var við lagasmíðar.
Fyrri 1-15 1 2 3 4 5 6 7 Næstu 31-45
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið