14:45 |
15. jún. 2021 |
Vísitasía biskups Íslands
Tilkynning frá Blönduóskirkju
Guðsþjónusta í Blönduóskirkju í dag þriðjudaginn 15. júní og hefst hún kl. 18:00. Súpa og kaffi á eftir. Allir hjartanlega velkomnir. |
14:40 |
15. jún. 2021 |
Guðna forseta boðið á Eldinn
Skipulagsnefnd Elds í Húnaþingi hefur sent Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, bréf þar sem honum og fjölskyldu hans er boðið á hátíðina sem haldin verður 19.-25. júlí í sumar. Í bréfinu, sem birt er á facebooksíðu Elds í Húnaþingi, segir að íbúar í Húnaþingi vestra séu mjög stoltir af hátíðinni og að hún sé vettvangur til að gleðjast og bjóða gestum heim til að sýna allt það fjölskrúðuga menningarlíf sem búi í sveitarfélaginu. |
12:48 |
15. jún. 2021 |
Frá Skagastrandarprestakalli
Messað verður í Hólaneskirkju klukkan 10 og í Bólstaðarhlíðarkirkju klukkan 13 á þjóðhátíðardegi Íslendinga 17. júní. Ferming fer fram í messunum. Prestur er Bryndís Valbjarnardóttir, organisti Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og söngur er almennur safnaðarsöngur. |
09:46 |
15. jún. 2021 |
Nú mega 300 manns koma saman
Á miðnætti gengu nýjar reglur í gildi um samkomutakmarkanir en þær eru í samræmi við minnisblað sóttvarnalæknis frá 10. júní. Nú mega 300 manns koma saman í stað 150 og nándarreglan verður einn metri í stað tveggja. Á sitjandi viðburðum verður engin nándarregla en öllum skylt að bera grímu. Opnunartími veitingastaða lengist um klukkustund, þ.e. til miðnættis. |
08:56 |
15. jún. 2021 |
Íbúafundur á Borðeyri um nýtingu vindorku
Í dag fer fram íbúafundur og kynning í Húnaþingi vestra á hugmyndum um nýtingu vindorku í landi Sólheima í Dalabyggð. Fundurinn fer fram í Tangarhúsi á Borðeyri og hefst klukkan 17. Fulltrúar Qair og EFLU munu kynna stöðu skipulagsmála og fyrirtækið Qair - vindorkugarð í landi Sólheima. Að loknum kynningum munu fara fram umræður þar sem kostur gefst á að bera fram spurningar. |
08:17 |
15. jún. 2021 |
Háls-, nef- og eyrnalæknir á HSN á Blönduósi
Tilkynning frá HSN
Erlingur Hugi Kristvinsson háls,- nef og eyrnalæknir verður með móttöku á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi miðvikudaginn 23. júní 2021. Tímapantanir í síma 432-4100 milli kl 08:00 og 16:00. |
17:57 |
14. jún. 2021 |
Stór bóluefnasending til Norðurlands
Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær á morgun um 6.400 skammta af bóluefni og er þetta stærsta einstaka bóluefnasendingin sem stofnunin hefur fengið. Pfizer bóluefnið verða meðal annars nýtt í seinni bólusetningu þeirra sem fengu Pfizer bóluefni 26. maí - 28. maí. Astra Zeneca bóluefnið mun eingöngu verða notað fyrir seinni bólusetningu. |
13:41 |
14. jún. 2021 |
Jákvæð rekstrarniðurstaða í erfiðu umhverfi
Sveitarfélagið Húnaþing vesta skilaði 33,4 milljón króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu á síðasta ári samkvæmt ársreikningi sem samþykktur var af sveitarstjórn í síðustu viku. Hagnaðurinn er talsvert minni en árið 2019 þegar hann nam 103 milljónir. Sveitarstjórn segir stöðu sveitarfélagsins góða og að rekstur þess sé í jafnvægi þrátt fyrir heimsfaraldur kórónuveiru sem hafði áhrif á reksturinn líkt og hjá öðrum sveitarfélögum. |
10:40 |
14. jún. 2021 |
Kormákur/Hvöt með treyju uppboð
Keppnistreyja Kormáks/Hvatar hefur vakið verðskuldaða eftirtekt í leikjum sumarsins, enda einstök á allan hátt. Aðdáendasíða Kormáks/Hvatar á Facebook hefur opnast gluggi til að bjóða upp eina treyju til styrktar starfinu og gefa þannig tískuþyrstum tækifæri á að eignast hana, áritaða af leikmönnum ef vill. |
10:14 |
14. jún. 2021 |
Fréttavefur Húnvetninga í 20 ár
Í dag eru 20 ár frá því að fyrsta fréttin var skrifuð og birt á Húnahorninu, sem þýðir að vefmiðillinn er 20 ára í dag. Vefurinn var fyrst og fremst settur á laggirnar til gagns og gamans fyrir Húnvetninga nær og fjær með áherslu á að segja frá skemmtilegu mannlífi, atvinnulífi, framkvæmdum og framförum í Húnavatnssýslu. Einnig eflingu byggðar og öllu því sem gerir héraðið sérstakt og jákvætt að lifa og starfa í eða heimsækja sem ferðamaður. |
23:15 |
13. jún. 2021 |
Listi VG samþykktur í NV-kjördæmi
Bjarni Jónsson, fiskifræðingur og sveitarstjórnarmaður, leiðir lista Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs í Norðvesturkjördæmi, en listinn var samþykktur á fjölsóttum fundi á Hótel Laugabakka í Miðfirði í dag. Bjarni sagði meðal annars í ræðu á fundinum að til framtíðar lægju miklir möguleikar í sterkara VG á sveitarstjórnarstiginu og samvinnu landsmálanna og sveitarstjórnamálanna. |
19:43 |
13. jún. 2021 |
Sumarsýning Heimilisiðnarsafnsins var opnuð í dag
Sumarsýning Heimilisiðnarsafnsins sem opnuð var í dag ber heitið Spor Textílbókverk eða Traces Textile book art. Nafn sýningarinnar vísar til nýrra spora sem ef til vill má rekja til troðinna slóða: rótgróinna aðferða og leiða í íslensku textílhandverki að fornu og nýju. Í dagskrá sýningarinnar segir m.a. Sum verkanna vísa í íslenskar textílhefðir, vefnað, útsaum, jurtalitun og fleira, auk þess að vera innblásin af náttúru Íslands, menningu kvenna og sögu. |
19:32 |
13. jún. 2021 |
Ámundakinn ehf. hélt aðalfund sinn á dögunum
Aðalfundur Ámundakinnar ehf. var haldinn föstudaginn 11. júní sl. í Eyvindarstofu á Blönduósi en félagið stundar útleigu fasteigna og er þátttakandi í rekstri fyrirtækja á starfssvæði sínu. Ámundakinn ehf. Er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja hjá Credit info eitt árið enn en fyrirtækinu hefur hlotnast sá heiður hátt í áratug. |
18:34 |
13. jún. 2021 |
Hátíðardagskrá á þjóðhátíðardaginn 17. júní
Þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga 17. júní verður haldinn hátíðlegur á Blönduósi og hefst dagskrá dagsins með því að allir draga íslenska fánann að húni. Ýmislegt verður á dagskrá s.s. andlitsmálun við leikskólann, skrúðganga frá leikskólanum Barnabæ að Blönduskóla þar sem verður hátíðardagskrá á skólalóð Blönduskóla. |
08:43 |
13. jún. 2021 |
Umsóknarfrestur um styrki úr Húnasjóði
Húnaþing vestra auglýsir eftir umsóknum um styrk úr Húnasjóði vegna ársins 2021 og er sótt um með rafrænum hætti á vef sveitarfélagsins. Umsóknum skal skilað í síðasta lagi 8. júlí næstkomandi. Úthlutunarreglur sjóðsins má einnig finna á vef Húnaþings vestra.
Húnasjóð stofnuðu hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir til þess að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga, sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920. |