09:35 |
22. júl. 2021 |
415 laxar á einni viku
Veiði í helstu laxveiðiánum í Húnavatnssýslum er aðeins tekin að glæðast en hún hefur verið dræm sem af er sumri. Miðfjarðará er komin í 363 laxa og var vikuveiðin 157 laxar. Laxá á Ásum er komin í 191 lax og vikuveiðin 87 laxar. Blanda er með 179 laxa og vikuveiðin 66 laxar. Víðidalsá er með 159 laxa og vikuveiðin 63 laxar. |
08:43 |
22. júl. 2021 |
Kvartað undan lausagöngu hunda
Kvartanir hafa borist vegna lausagöngu hunda á Hvammstanga og að hundaeigendur hirði ekki upp eftir hunda sína á opnum svæðum sveitafélagsins, útivistarsvæðum, einkalóðum og gönguleiðum sem eru á Hvammstanga. Á vef sveitarfélagsins eru íbúar minntir á að samkvæmt samþykktum um hunda- og kattahald er lausaganga hunda í þéttbýli bönnuð. |
11:08 |
21. júl. 2021 |
Mjög góð aðsókn á Stofutónleika Heimilisiðnaðarsafnsins
Helga Rós Indriðadóttir sópransöngkona söng á Stofutónleikum Heimilisiðnaðarsafnsins sem haldnir voru á sunnudaginn. Fór hún á kostum ásamt píanóleikaranum Evu Þyri Hilmarsdóttur en þær fluttu mjög fjölbreytt lagaval, allt frá hugljúfum íslenskum vor- og sumarljóðum til þekktra aría. Mjög góð aðsókn var á tónleikana og fögnuðu áheyrendur ákaft og fluttu þær stöllur sem aukalag Ég skal vaka í nótt, eftir Jónas Tryggvason. |
22:04 |
20. júl. 2021 |
Nýr verkefnastjóri Sóknaráætlunar Norðurlands vestra
Ástrós Elísdóttir hefur verið ráðin til Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem verkefnisstjóri Sóknaráætlunar landshlutans og atvinnuráðgjafi. Meginstarfsstöð Ástrósar verður á Skagaströnd með fastri vikulegri viðveru á Blönduósi. Meðal verkefna hennar verður umsjón með framkvæmd Sóknaráætlunar landshlutans, þ.m.t. úthlutunarferli Uppbyggingarsjóðs. |
19:34 |
20. júl. 2021 |
Húnvetningur til Atalanta á Ítalíu
Birkir Jakob Jónsson gekk til liðs við knattspyrnufélagið Atalanta á Ítalíu á dögunum. Birkir Jakob er fæddur 2005 og er því nýorðinn 16 ára. Hann á ættir sínar að rekja til Húnavatnssýslu því foreldrar hans, Jón Guðmann Jakobsson og Halla Gísladóttir, eru bæði uppalin á Blönduósi. Í byrjun júní var Birki Jakob boðið á reynslu til Atalanta og í framhaldi af því var hann keyptur af Breiðabliki til félagsins. |
11:35 |
20. júl. 2021 |
COVID-19 smitum fjölgar verulega
Kórónuveirusmitum fjölgar hratt hér á landi þessa dagana. Í gær greindust 44 smit og þar af voru 38 innanlands. Níu voru í sóttkví við greiningu. Samkvæmt vefsíðunni covid.is eru nú 163 í einangrun og þar af er einn á Norðurlandi vestra. Alls eru 454 í sóttkví, þar af þrír á Norðurlandi vestra. Kórónuveirusmit eru í öllum landshlutum nema á Austurlandi. |
11:29 |
20. júl. 2021 |
Birgir Jónasson skipaður lögreglustjóri á Norðurlandi vestra
Dómsmálaráðherra hefur skipað Birgi Jónasson í embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra frá 19. júlí. Birgir lauk meistaraprófi í lögfræði árið 2010 og MBA gráðu árið 2017. Þá lauk hann prófi frá Lögregluskóla ríkisins árið 2000 og hefur auk þess sótt sér ýmiss konar viðbótarmenntun. |
10:05 |
19. júl. 2021 |
Eldur í Húnaþingi að fara af stað
Næsta fjölskyldu- og bæjarhátíð í Húnavatnssýslum er Eldur í Húnaþingi en hún hefst formlega á miðvikudaginn. Ýmsir viðburðir hefjast þó strax í dag eins og stuttmyndanámskeið, sem heldur svo áfram út hátíðina. Þá munu íbúar Sjúkrahússins á Hvammstanga njóta góðs af einstakri hljómgerð Svavars Knúts klukkan 14 í dag og aðrir svo í Mjólkurhúsinu á Stóru-Ásgeirsá seinna klukkan 21 í kvöld. |
09:54 |
19. júl. 2021 |
Velheppnuð Húnavaka
Velheppnaðri Húnavökuhátíð er lokið en hún hófst á fimmtudaginn og lauk í gær. Blíðskaparveður var í gær og á laugardaginn en á fimmtudag og föstudag þurfti að gera ráðstafanir með nokkra viðburði og færa þá inn í hús vegna rigningar. Fjöldi gesta heimsótti Blönduós um helgina og naut þess sem í boði var enda dagskráin sérlega fjölbreytt og hefur nú líklega aldrei verið stærri. |
22:32 |
18. júl. 2021 |
Vegagerðin býður út Þverárfjallsveg í Refasveit og Skagastrandarveg um Laxá
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í byggingu nýs Þverárfjallsvegar í Refasveit frá Hringvegi norðan Blönduóss að núverandi Þverárfjallsvegi, um 8,5 km að lengd og nýs Skagastrandarvegar frá nýjum Þverárfjallsvegi að Skagastrandarvegi norðan Höskuldsstaða, um 3,3 km að lengd. Á Skagastrandarveg skal byggja nýja 106 m langa brú á Laxá í Refasveit. |
22:25 |
18. júl. 2021 |
Húnavökumót Terra og Golfklúbbsins Óss á Blönduósi fór fram um helgina
Húnavökumót Terra umhverfisþjónustu og Golfklúbbsins Óss á Blönduósi fór fram í gær á Vatnahverfisvelli í blíðskaparveðri. Skráðir keppendur til leiks voru 30 talsins. Keppt var með puntakerfi með forgjöf í einum almennum flokki. |
12:46 |
18. júl. 2021 |
Úlfarnir sigraðir á Blönduósvelli
Kormákur/Hvöt tók á móti Úlfunum á Blönduósvelli í gær þegar leikið var í tíundu umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, 4. deild D-riðli. Fyrri hálfleikur var fjörugur og voru öll þrjú mörk leiksins skoruð í honum. Fyrsta markið kom eftir 15 mínútna leik en það gerðu gestirnir. George Razvan Chariton jafnaði leikin fyrir Kormák/Hvöt á 22. mínútu og Bjarki Már Árnason kom svo heimamönnum yfir á 42. mínútu. |
09:56 |
18. júl. 2021 |
Húnavakan senn á enda
Lokadagur Húnavöku er í dag og er ýmislegt forvitnilegt á dagskrá. Klukkan 11 geta börn og unglingar rennt sér í sápurennibraut við Blönduóskirkju og klukkan 13 en gengið verður frá hafnarsvæðinu og þaðan út á Bolabás. Stofutónleikar Heimilisiðnaðarsafnsins hefjast klukkan 15 og útgáfutónleikar Halla Guðmunds klukkan 16 í Blönduóskirkju. Þá verður boðið upp á jóga með Svövu í Kvenfélagsgarðinum. |
08:17 |
17. júl. 2021 |
Líf og fjör á Húnavöku
Húnavökuhátíðin er í fullum gangi og hefur allt gengið ljómandi vel. Stærsti dagur hátíðarinnar er í dag og er dagskráin stútfull af allskonar skemmtilegum viðburðum. Klukkan 10 hefst Húnavökugolfmót Terra á Vatnahverfisvelli og opið mót í ólympísku skeet hjá Skotfélaginu Markviss. Mótið er hluti af mótaskrá Skotíþróttasambands Íslands. Hið árlega Blönduhlaup hefst klukkan 10:30. |
14:15 |
16. júl. 2021 |
Miðfjarðará aflahæst í Húnaþingi
Miðfjarðará er aflahæst laxveiðiáa í Húnavatnssýslum sem af er sumri með 206 laxa, samkvæmt tölum frá Landssambandi veiðifélaga sem birtar eru á vefnum angling.is. Blanda og Laxá á Ásum koma þar á eftir með 113 og 104 laxa. Þetta er mun minni veiði en á sama tíma í fyrra en þá höfðu veiðst 337 laxar í Miðfjarðará, 187 í Blöndu og 188 í Laxá á Ásum. |