14:55 |
19. jan. 2022 |
Mótun textílklasa hafin á Íslandi
Textílmiðstöð Íslands, miðstöð nýsköpunar í textíl, vinnur að mótun Textílklasa í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og með stuðningi úr Lóu. Klasar eru taldir auka samkeppnishæfni, framleiðni og ýta undir nýsköpun og með klasasamstarfinu er leitast við að skapa vistkerfi fyrir hagaðila af öllu landinu, segir í tilkynningu frá Textílmiðstöðinni. |
20:37 |
18. jan. 2022 |
58 í einangrun á Norðurlandi vestra
Aðgerðastjórn Norðurlands vestra birti í dag nýja töflu eftir póstnúmerum yfir stöðuna á kórónuveirufaraldurinn í landshlutanum. Samkvæmt henni eru 58 í einangrun og 60 í sóttkví. Í tilkynningu segir: Mikið hefur grisjast hjá okkur í sóttkvíum og jafnframt eru fleiri og fleiri þeirra sem að greinast með covid-19 í umdæminu, í sóttkví við greiningu sem er mjög jákvætt. |
20:11 |
18. jan. 2022 |
Dagur landsbyggðafyrirtækja
#ruralbusiness day
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er þátttakandi í samstarfsverkefninu Digi2Market sem stendur fyrir #ruralbusiness samfélagsmiðladegi á morgun, 19. janúar. Markmiðið er að vekja athygli á því frábæra fólki, þjónustu og vörum fyrirtækja í landsbyggðunum, sem eiga stóran þátt í að styðja við og byggja upp samfélögin í hinum dreifðari byggðum. |
20:03 |
18. jan. 2022 |
Auglýsing vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Frá Sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaganna Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps annars vegar og Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps hins vegar laugardaginn 19. febrúar 2022. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin hjá sýslumönnum vegna kosninga um sameiningu framangreindra sveitarfélaga á auglýstum afgreiðslutíma á hverjum stað fram að kjördegi |
19:59 |
18. jan. 2022 |
Skagaströnd lýst upp um helgina
Nes listamiðstöðin á Skagaströnd ætlar að lýsa upp Skagaströnd með þátttöku listamanna sem munu búa til alls konar listaverk með lýsingu. Það verður gert með því að nota LED ljós til að varpa birtu, búa til skugga, endurskin og fleira víða um Skagaströnd og með listagöngu fyrir íbúa Norðurlands vestra dagana 22. og 23. janúar frá klukkan 18-21:30.
|
14:07 |
17. jan. 2022 |
Húsnæðisáætlun Húnaþings vestra
Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum 13. janúar síðastliðinn húsnæðisáætlun sveitarfélagsins. Reglur kveða á um að sveitarfélög skuli gera slíkar áætlanir til fjögurra ára í senn og skoða árlega hvort þörf sé á endurskoðun þeirra með tilliti til þróunar og breytinga. Hlutverk húsnæðisáætlana er að draga fram mynd af því hver staða húsnæðismála er í hverju sveitarfélagi fyrir sig. |
19:10 |
16. jan. 2022 |
Frá Félags- og tómstundarstarfi Blönduóss
Félags- og tómstundarstarfið á Þverbraut 1 á Blönduósi er opið á mánudögum og fimmtudögum frá klukkan 13:30-16:30. Fyrir handavinnu. Því miður getum við ekki eins og staðan er boðið upp á spilamennsku. Opnun fyrir spil verður endurskoðuð við breyttar reglur 2. febrúar.
Muna þarf að huga vel að sóttvörnum. Erum með grímur og spritt. |
16:19 |
14. jan. 2022 |
Þrjú framúrskarandi verkefni fengu viðurkenningu SSNV
Í desember kölluðu Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra eftir tilnefningum til fyrirmyndarverkefna á árinu 2021 á starfssvæði samtakanna. Annars vegar á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og hins vegar á sviði menningarmála. Á vef SSNV kemur fram að fjölmargar tilnefningar hafi borist og eru íbúum á svæðinu þökkuð góð viðbrögð. Stjórn SSNV ákvað á fundi sínum 11. janúar síðastliðinn að veita eftirtöldum verkefnum viðurkenningar: |
16:14 |
14. jan. 2022 |
Reglur um úthlutun 70 þorskígildistonna byggðakvóta
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutaði nýverið byggðakvóta vegna fiskveiðiársins 2021/2022 og fékk Hvammstangi 70 þorskígildistonna kvóta. Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur samþykkt hvaða reglur gilda um úthlutun kvótans.
Ákvæði reglugerðar númer 995/2021 gilda um úthlutun byggðakvóta Hvammstanga með eftirfarandi viðauka/breytingum: |
15:59 |
14. jan. 2022 |
Almennar samkomutakmarkanir hertar á miðnætti
Almennar samkomutakmarkanir verða tíu manns, heimild til aukins fjölda fólks á viðburðum með hraðprófum fellur brott, hámarksfjöldi í verslunum verður 200 manns og skemmtistöðum, krám og spilakössum verður lokað. Þetta er megininntak hertra sóttvarnaráðstafana sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið og byggjast á tillögum sóttvarnalæknis. Gildandi takmarkanir á skólastarfi verða óbreyttar. |
20:09 |
13. jan. 2022 |
Fjörutíu og níu í einangrun á Norðurlandi vestra
Sextán ný kórónuveirusmit greindust á Norðurlandi vestra í gær og þar af voru sex utan sóttkvíar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á svæðinu. Alls eru nú 49 í einangrun á Norðurlandi vestra og 88 í sóttkví. Í gær greindust 1.101 með kórónuveiruna hérlendis og er það svipaður fjöldi og í fyrradag. Nýgengi innanlandsmita síðustu 14 daga á hverja 100.000 íbúa er nú komið yfir 4.000. |
19:57 |
13. jan. 2022 |
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi og Ingunni sjúkraþjálfara
Vegna tilmæla sóttvarnaryfirvalda er leikfimi fyrir eldri borgara sem átti að hefjast 17. janúar, frestað til mánudagsins 7. febrúar 2022. |
20:38 |
12. jan. 2022 |
Íbúafundur á Skagaströnd vegna endurskoðunar á aðalskipulagi
Sveitarstjórn Skagastrandar boðar til íbúafundar um endurskoðun Aðalskipulags Skagastrandar 2019-2035. Fundurinn fer fram fimmtudaginn 13. janúar og hefst klukkan 19:30. Síðustu mánuði hefur verið unnið að heildarendurskoðun aðalskipulagsins en megin ástæður endurskoðunarinna eru að skipulagstímabili núverandi aðalskipulags er lokið, ný ákvæði skipulaglaga og reglugerða hafa tekið gildi sem og landsskipulagsstefna hefur verið staðfest. |
16:52 |
12. jan. 2022 |
Tíu gjaldfrjáls námskeið í boði
Stéttarfélögin Aldan, Kjölur, Samstaða, Sameyki og Verslunarmannafélag Skagafjarðar bjóða félagsmönnum sínum á tíu námskeið, þeim að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru haldin á vegum Farskólans á Norðurlandi vestra en þau eru öllum opin og geta aðrir en félagsmenn þessara félaga kannað rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi. |
20:14 |
11. jan. 2022 |
Aukið samstarf um rannsóknir, nýsköpun og þróun í textíl á Íslandi
Á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er sagt frá því að Textílmiðstöð Íslands vinni að mótun Textílklasa í samstarfi við samtökin. Með klasasamstarfinu verði skapað vistkerfi fyrir hagaðila af öllu landinu. Góðu klasasamstarfi fylgir ákveðinn kraftur sem hraðar ferlum og þróun sem annars tæki lengri tíma að ná fram, segir á vef ssnv.is. |