10:19 |
13. maí 2022 |
Lengri opnunartíma utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Frá sýslumanninum á Norðurlandi vestra
Laugardaginn 14. maí 2022, kjördag, verður opið hjá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna sveitarstjórnarkosninga sem hér segir: Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, frá kl. 14:00-17:00. Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, frá kl. 14:00-17:00. Vakin er athygli kjósenda á að kosning utan kjörfundar á kjördag er fyrst og fremst ætluð þeim sem ekki eiga þess kost að kjósa á kjörfundi í sinni kjördeild þann daginn vegna fjarlægðar. |
09:28 |
13. maí 2022 |
Óbundin kosning í Skagabyggð
Í Skagabyggð kom enginn framboðslisti fram fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og fer því fram óbundin kosning. Við óbundna kosningu eru allir kjósendur í sveitarfélaginu í kjöri með þeirri undantekningu að þeir sem setið hafa í sveitarstjórn eitt kjörtímabil eða lengur geta skorast undan kjöri, enda tilkynni þeir yfirkjörstjórn það fyrir lok framboðsfrests. |
10:37 |
12. maí 2022 |
Hvað á sameinað sveitarfélag að heita?
Samhliða sveitarstjórnarkosningum á laugardaginn verður hægt að taka þátt í könnun á viðhorfi íbúa til tillagna að nafni á sameinað sveitarfélag Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps. Könnunin fer fram á kjörstöðum á opnunartíma þeirra sem er frá klukkan 10 til 20. Niðurstöður könnunarinnar eru ekki bindandi og tekur ný sveitarstjórn ákvörðun um nýtt nafn þegar hún tekur til starfa. |
20:13 |
11. maí 2022 |
Lengri opnunartíma utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Frá sýslumanninum á Norðurlandi vestra
Kosið verður til sveitarstjórna laugardaginn 14. maí 2022. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst þann 15. apríl sl. og lýkur kl. 17:00 á kjördag.
Fimmtudaginn 12. maí nk. verður opið til kl. 19:00 á aðalskrifstofu sýslumanns að Hnjúkabyggð 33, Blönduósi og sýsluskrifstofu Suðurgötu 1, Sauðárkróki. |
13:21 |
11. maí 2022 |
Aðalskrifstofa sýslumanna verði á Norðurland vestra
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra óskar eftir því að aðalskrifstofa sýslumanna verði staðsett á starfssvæði samtakanna að lokinn endurskipulagningu sem fyrirhuguð er á sýslumannsembættum landsins. Nýverið fundaði framkvæmdastjóri SSNV og tveir stjórnarmenn með ráðherra um breytingarnar og mátti á máli hans merkja vilja til að efla starfsstöðvar sýslumanna á landsbyggðinni samhliða breytingunum |
10:28 |
11. maí 2022 |
Lærdómssamfélag í leik- og grunnskólum í Austur-Húnavatnssýslu
Starfsfólk leik- og grunnskóla í Austur-Húnavatnssýslu hafa verið að vinna að þróunarverkefni um lærdómssamfélag í vetur undir handleiðslu Önnu Kristínar Sigurðardóttur prófessors við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Starfsfólk fékk tækifæri til að dýpka þekkingu sína á áhugasviðum þvert á skóla og skólastig. |
15:52 |
10. maí 2022 |
Teljarar settir upp í Hrútey og Kálfshamarsvík
Ferðamálastofa hefur sett upp teljara í Hrútey og Kálfshamarsvík og hafa þá verið settir upp þrír teljarar í Húnavatnssýslum en í október 2020 var teljari settur við Hvítserk. Samkvæmt talningu heimsóttu að meðaltali 12 ferðamenn Kálfshamarsvík í apríl og voru flestir á ferð um páskana. Meðalfjöldi heimsókna á dag í Hrútey í apríl var 18 en samkvæmt teljaranum komu 178 gestir í eyjuna á einum og sama deginum þann 29. apríl. |
09:33 |
09. maí 2022 |
Tap í fyrsta leik
Kormákur Hvöt spilaði sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu í knattspyrnu karla 3. deild á föstudaginn. Liðið fór þá í heimsókn á Fjölnisvöllinn í Reykjavík og spilaði á móti Vængjum Júpíters. Liðin spiluðu bæði í 4. deildinni í fyrra og mátti því búast við hörku leik. Heimamenn komust yfir snemma leiks, eða á 12. mínútu og eftir rúmlega hálftíma leik höfðu þeir tvöfaldað forystuna. Það var svo ekki fyrr en í uppbótartíma sem Ingvi Rafn Ingvarsson lagaði aðeins stöðuna fyrir Kormák Hvöt. Lokatölur 2-1. |
09:27 |
09. maí 2022 |
Heilsueflandi samfélag í Húnaþing vestra
Á föstudaginn undirrituðu Alma D. Möller landlæknir og Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra, samning um innleiðingu Heilsueflandi samfélags í Húnaþingi vestra. Með samningnum skuldbindur Húnaþing vestra sig til að innleiða markmið Heilsueflandi samfélags í sveitarfélaginu í samræmi við samninginn. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra. |
09:12 |
09. maí 2022 |
Framboðskaffi G listans
Tilkynning frá G listanum
G listinn býður í kaffi og spjall á Brimslóð Atelier á Brimslóð 10a (bak við Hótel Blöndu). Miðvikudaginn 11. maí frá kl: 17:00 til 19:00.
Einnig verður boðið í kaffi og spjall á Húnavöllum að kvöldi miðvikudagsins 11. maí frá kl: 20 til 22.
Á báðum stöðum býðst kjósendum að hitta frambjóðendur listans og ræða við þá. |
08:17 |
09. maí 2022 |
Opinn fundur í kvöld með Bjarna Jónssyni
Tilkynning frá D-listi, Sjálfstæðismanna og óháðra
Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, heimsækir kosningaskrifstofu Sjálfstæðismanna og óháðra mánudagskvöldið 9. maí klukkan 20-22.
Allir velkomnir. |
08:06 |
09. maí 2022 |
Aðalfundur Krabbameinsfélags A-Hún.
Frá stjórn
Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 18. maí 2022 kl. 18:00 á Teni Blönduósi.
Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Veitingar.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og nýir félagar velkomnir á fundinn. |
20:56 |
06. maí 2022 |
Blönduósbær aðili að Heilsueflandi samfélagi
Í dag gerðist Blönduósbær formlegur aðili að Heilsueflandi samfélagi þegar Valdimar O Hermannsson sveitarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis. Athöfnin fór fram í matsal Blönduskóla. Valdimar sveitarstjóri flutti stutt ávarp og krakkarnir á elstu deild leikskólans Barnabæjar, ásamt nokkrum nemendum Blönduskóla úr 1.-4. bekk, sungu tvö lög fyrir gesti. |
13:47 |
06. maí 2022 |
Neikvæða rekstrarniðurstaða hjá Skagaströnd
Sveitarfélagið Skagaströnd var rekið með 55,8 milljón króna tapi á síðasta ári en síðari umræða um ársreikning þess fór fram á fundi sveitarstjórnar í dag. Rekstrartekjur sveitarfélagsins námu 706,7 milljónum árið 2021 og hækkuðu um 5,9% milli ára. Rekstrarkostnaður nam samtals 762,5 milljónum króna, þarf af voru laun 332,5 milljónir sem hækkuðu um 5,5% milli ára, annar rekstrarkostnaður 329,5 milljónir sem hækkaði um 9,6% milli ára og fjármagnskostnaður 8,2 milljónir. |
13:28 |
06. maí 2022 |
Styrkjum úthlutað til ferðamannastaða
Um 70 milljónir til verkefna í Húnavatnssýslum
Ferðamála, menningar- og viðskiptaráðherra hefur úthlutað úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða árið 2022. Að þessu sinni er úthlutunin rúmlega 548 milljónir króna en hæsti einstaki styrkurinn er 55 milljónir kr. Framkvæmdasjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. |