09:28 |
24. nóv. 2022 |
Tækifæri til fjárfestingar í gistirýmum á Norðurlandi
Bætt nýting utan háannar, vaxandi eftirspurn og þörf fyrir fjárfestingu í gistirýmum er einkennandi fyrir þá stöðu sem blasir við í norðlenskri ferðaþjónustu. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í greiningu KPMG á gistirýmum á Norðurlandi, sem unnin var fyrir Markaðsstofu Norðurlands í haust. |
09:26 |
24. nóv. 2022 |
Húsfyllir á Hvammstanga hjá Rokkkórnum
Rokkkórin úr Húnaþingi vestra undir stjórn Ingibjargar Jónsdóttur hélt tónleika síðastliðinn laugardag fyrir fullu húsi í Félagsheimilinu Hvammstanga. Flutt voru níu lög ásamt fjögurra laga syrpu úr tónlistarverkinu Lifun eftir Trúbrot. Fimm manna hljómsveit sá um undirleik á tónleikunum sem að sögn áhorfenda heppnuðust mjög vel. |
16:33 |
23. nóv. 2022 |
Nýtt deiliskipulag fyrir atvinnusvæði auglýst
Sveitarstjórn Húnabyggðar auglýsir á vef sveitarfélagsins nýtt deiliskipulag fyrir atvinnusvæði sem liggur norðan Norðurlandsvegar, sem er þjóðvegur 1 og liggur í gegnum Blönduós. Skipulagssvæðið er 3,5 hektarar að stærð, er staðsett við Norðurlandsveginn og afmarkast af honum til suðurs, Hólabraut til vesturs, Efstubraut til austurs og Melabraut til norðurs. |
16:10 |
23. nóv. 2022 |
Starfamessan vel sótt
Um 250-300 nemendur 8.-10. bekkja grunnskóla á Norðurlandi vestra mættu á Starfsmessu sem haldin var í húsakynnum Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í gær og fræddust um 25 fjölbreytt störf sem þar voru kynnt. Viðburðurinn er samstarfsverkefni Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og grunnskóla svæðisins. Þá leggja fjöldi fyrirtækja lóð á vogaskálarnar til að ungt fólk geti spáð í framtíðarmöguleika sína með áþreifanlegum hætti. |
14:13 |
23. nóv. 2022 |
Skagaströnd með flest stig sveitarfélaga á félagssvæði Kjalar
Tíu bæjarstarfsmannafélög BSRB stóðu í vor fyrir viðhorfskönnuninni Sveitarfélag ársins. Tilgangurinn er m.a. að hvetja stjórnendur sveitarfélaganna til að veita starfsumhverfinu meiri athygli og ráðast í umbótaverkefni þar sem þess er þörf. Stefnt er að því að könnunin verði árlegur viðburður. Alls komust 15 sveitarfélög á lista könnunarinnar og þar á meðal er Skagaströnd, sem fékk flest stig sveitarfélaga á félagssvæði Kjalar stéttarfélags. |
11:43 |
23. nóv. 2022 |
Tilkynning frá félags- og tómsundastarfinu
Takið eftir, takið eftir. Félags- og tómstundastarfið í Húnabyggð fellur niður fimmtudaginn 24. nóvember. Opnum aftur á mánudaginn 28. nóvember. |
10:14 |
22. nóv. 2022 |
Skemmtileg umfjöllun um Borðeyri
Borðeyri er eitt fámennasta þorp landsins en þar búa um tíu íbúar. Í þættinum Sögur af landi sem hlusta má á vef Ríkisútvarpsins er flakkað um þetta litla þorp sem er eins og gluggi inn í liðna tíð. Rætt er meðal annars við sagnfræðinginn Vilhelm Vilhelmsson sem hefur kynnt sér náið sögu Borðeyrar og Kristínu Árnadóttur íbúa á Borðeyri um elsta hús plássins, svokallað Riishús. |
08:36 |
22. nóv. 2022 |
Kynning á námskeiðum og öðru á vegum æskulýðsnefndar hestamannafélagsins Neista
Miðvikudaginn 23. nóvember kl. 17:30 verður haldin kynning á námskeiðum og öðru sem æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Neista mun standa fyrir í vetur. |
07:47 |
22. nóv. 2022 |
Dagskrá hugmyndafunda
Í kvöld fer fram fyrri hugmyndafundurinn vegna deiliskipulags í gamla bæjarhluta Blönduóss. Fundurinn verður í Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 19-21. Seinni fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica á Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík annað kvöld á sama tíma. Á vef Húnabyggðar hefur dagskrá fundanna verið birt. |
15:43 |
21. nóv. 2022 |
Sextíu þáttakendur á TTT-móti á Löngumýri
Löng hefð er fyrir því í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi að bjóða krökkum í TTT starfi í helgardvöl bæði vor og haust. Eitt slíkt TTT-mót var haldið á Löngumýri um síðustu helgi. Þátttakendur voru úr börn úr TTT starfi kirkjunnar á Hvammstanga, Skagaströnd, Sauðárkróki, Hofsósi og Hólum ásamt leiðtogum og prestum. |
14:51 |
21. nóv. 2022 |
Jólagjöfum safnað fyrir börn í Úkraínu
Jól í skókassa er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn og fullorðna til að gleðja önnur börn, sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika, með því að gefa þeim jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa. Á vef Skagastrandar er sagt frá því að í sameiginlegu verkefni þar hafi tekist að setja saman veglegar gjafir í 45 skókassa. |
11:12 |
21. nóv. 2022 |
Starfamessa á Norðurlandi vestra
Á morgun klukkan 10-17 verður haldin Starfamessa í húsakynnum Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra. Þar munu nemendur elstu bekkja grunnskóla á Norðurlandi vestra og nemendur FNV kynna sér náms- og starfsleiðir í iðn-, tækni-, verk- og raungreinum með áherslu á tækifæri sem eru í boði í landshlutanum. |
10:24 |
21. nóv. 2022 |
Gjafabréf í heimabyggð sem jólagjöf
Á vef Húnabyggðar er auglýst eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsfólks Húnabyggðar. Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Húnabyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Húnabyggðar gegn framvísun gjafabréfsins, segir á vefnum. |
09:24 |
21. nóv. 2022 |
Vetrarferð Félags eldri borgara í Húnaþingi janúar 2023
Frá ferðanefndinni
Sunnudaginn 15. janúar verður farin dagsferð í Borgarnes. Á Sögulofti Landnámssetursins hlustum við kl. 16.00 á hinn eina sanna Gísla Einarsson. Eftir sýninguna verður borðað saman í Landnámssetrinu. Sérstakur sýningarhópmatseðill að hætti Gísla Einarssonar verður í boði. Það er mikilvægt að fá hugmynd um hugsanleg þátttakendum til að hafa hugmynd um fjölda miða sem þarf að panta.
|
14:14 |
20. nóv. 2022 |
Samstarfssamningur endurnýjaður
Selasetur Íslands og Hafrannsóknarstofnun hafa endurnýjað samstarfssamning um eflingu rannsókna á selum við Ísland á starfsstöðinni á Hvammstanga og þá sérstaklega á vöktun á stofnstærð útsels og landsels. Þá kveður samningurinn á um gagnasöfnun og rannsóknir sem stuðla að bættri ráðgjöf í samræmi við stjórnunarmarkmið stjórnvalda. |