Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 06:13 0 0°C
Laxárdalsh. 06:13 0 0°C
Vatnsskarð 06:13 0 0°C
Þverárfjall 06:13 0 0°C
Kjalarnes 06:13 0 0°C
Hafnarfjall 06:13 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 1-15 16-30 af 73 Næstu 31-45
KlukkanDagsetningFrétt
09:32 24. nóv. 2022   Þekktu rauðu ljósin
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi 2022
Þekktu rauðu ljósin - Soroptimistar hafna ofbeldi er slagorð íslenskra Soroptimista í 16 daga átakinu að þessu sinni. Átakið sem leitt er af Sameinuðu þjóðunum og er alþjóðlegt hefst 25. nóvember og því lýkur 10. desember. Um allan heim sameinast hin ýmsu samtök í því að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi með ýmsum hætti en roðagylltur litur er einkenni átaksins, #roðagyllumheiminn, #orangetheworld en hann á að tákna bjartari framtíð.
09:28 24. nóv. 2022   Tækifæri til fjárfestingar í gistirýmum á Norðurlandi
Bætt nýting utan háannar, vaxandi eftirspurn og þörf fyrir fjárfestingu í gistirýmum er einkennandi fyrir þá stöðu sem blasir við í norðlenskri ferðaþjónustu. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í greiningu KPMG á gistirýmum á Norðurlandi, sem unnin var fyrir Markaðsstofu Norðurlands í haust.
09:26 24. nóv. 2022   Húsfyllir á Hvammstanga hjá Rokkkórnum
Rokkkórin úr Húnaþingi vestra undir stjórn Ingibjargar Jónsdóttur hélt tónleika síðastliðinn laugardag fyrir fullu húsi í Félagsheimilinu Hvammstanga. Flutt voru níu lög ásamt fjögurra laga syrpu úr tónlistarverkinu Lifun eftir Trúbrot. Fimm manna hljómsveit sá um undirleik á tónleikunum sem að sögn áhorfenda heppnuðust mjög vel.
16:33 23. nóv. 2022   Nýtt deiliskipulag fyrir atvinnusvæði auglýst
Sveitarstjórn Húnabyggðar auglýsir á vef sveitarfélagsins nýtt deiliskipulag fyrir atvinnusvæði sem liggur norðan Norðurlandsvegar, sem er þjóðvegur 1 og liggur í gegnum Blönduós. Skipulagssvæðið er 3,5 hektarar að stærð, er staðsett við Norðurlandsveginn og afmarkast af honum til suðurs, Hólabraut til vesturs, Efstubraut til austurs og Melabraut til norðurs.
16:10 23. nóv. 2022   Starfamessan vel sótt
Um 250-300 nemendur 8.-10. bekkja grunnskóla á Norðurlandi vestra mættu á Starfsmessu sem haldin var í húsakynnum Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í gær og fræddust um 25 fjölbreytt störf sem þar voru kynnt. Viðburðurinn er samstarfsverkefni Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og grunnskóla svæðisins. Þá leggja fjöldi fyrirtækja lóð á vogaskálarnar til að ungt fólk geti spáð í framtíðarmöguleika sína með áþreifanlegum hætti.
14:13 23. nóv. 2022   Skagaströnd með flest stig sveitarfélaga á félagssvæði Kjalar
Tíu bæjarstarfsmannafélög BSRB stóðu í vor fyrir viðhorfskönnuninni „Sveitarfélag ársins.“ Tilgangurinn er m.a. að hvetja stjórnendur sveitarfélaganna til að veita starfsumhverfinu meiri athygli og ráðast í umbótaverkefni þar sem þess er þörf. Stefnt er að því að könnunin verði árlegur viðburður. Alls komust 15 sveitarfélög á lista könnunarinnar og þar á meðal er Skagaströnd, sem fékk flest stig sveitarfélaga á félagssvæði Kjalar stéttarfélags.
11:43 23. nóv. 2022   Tilkynning frá félags- og tómsundastarfinu
Takið eftir, takið eftir. Félags- og tómstundastarfið í Húnabyggð fellur niður fimmtudaginn 24. nóvember. Opnum aftur á mánudaginn 28. nóvember.
10:14 22. nóv. 2022   Skemmtileg umfjöllun um Borðeyri
Borðeyri er eitt fámennasta þorp landsins en þar búa um tíu íbúar. Í þættinum Sögur af landi sem hlusta má á vef Ríkisútvarpsins er flakkað um þetta litla þorp sem er eins og gluggi inn í liðna tíð. Rætt er meðal annars við sagnfræðinginn Vilhelm Vilhelmsson sem hefur kynnt sér náið sögu Borðeyrar og Kristínu Árnadóttur íbúa á Borðeyri um elsta hús plássins, svokallað Riishús.
08:36 22. nóv. 2022   Kynning á námskeiðum og öðru á vegum æskulýðsnefndar hestamannafélagsins Neista
Miðvikudaginn 23. nóvember kl. 17:30 verður haldin kynning á námskeiðum og öðru sem æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Neista mun standa fyrir í vetur.
07:47 22. nóv. 2022   Dagskrá hugmyndafunda
Í kvöld fer fram fyrri hugmyndafundurinn vegna deiliskipulags í gamla bæjarhluta Blönduóss. Fundurinn verður í Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 19-21. Seinni fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica á Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík annað kvöld á sama tíma. Á vef Húnabyggðar hefur dagskrá fundanna verið birt.
15:43 21. nóv. 2022   Sextíu þáttakendur á TTT-móti á Löngumýri
Löng hefð er fyrir því í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi að bjóða krökkum í TTT starfi í helgardvöl bæði vor og haust. Eitt slíkt TTT-mót var haldið á Löngumýri um síðustu helgi. Þátttakendur voru úr börn úr TTT starfi kirkjunnar á Hvammstanga, Skagaströnd, Sauðárkróki, Hofsósi og Hólum ásamt leiðtogum og prestum.
14:51 21. nóv. 2022   Jólagjöfum safnað fyrir börn í Úkraínu
Jól í skókassa er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn og fullorðna til að gleðja önnur börn, sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika, með því að gefa þeim jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa. Á vef Skagastrandar er sagt frá því að í sameiginlegu verkefni þar hafi tekist að setja saman veglegar gjafir í 45 skókassa.
11:12 21. nóv. 2022   Starfamessa á Norðurlandi vestra
Á morgun klukkan 10-17 verður haldin Starfamessa í húsakynnum Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra. Þar munu nemendur elstu bekkja grunnskóla á Norðurlandi vestra og nemendur FNV kynna sér náms- og starfsleiðir í iðn-, tækni-, verk- og raungreinum með áherslu á tækifæri sem eru í boði í landshlutanum.
10:24 21. nóv. 2022   Gjafabréf í heimabyggð sem jólagjöf
Á vef Húnabyggðar er auglýst eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsfólks Húnabyggðar. „Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Húnabyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Húnabyggðar gegn framvísun gjafabréfsins,“ segir á vefnum.
09:24 21. nóv. 2022   Vetrarferð Félags eldri borgara í Húnaþingi janúar 2023
Frá ferðanefndinni
Sunnudaginn 15. janúar verður farin dagsferð í Borgarnes. Á Sögulofti Landnámssetursins hlustum við kl. 16.00 á hinn eina sanna Gísla Einarsson. Eftir sýninguna verður borðað saman í Landnámssetrinu. Sérstakur sýningarhópmatseðill að hætti Gísla Einarssonar verður í boði. Það er mikilvægt að fá hugmynd um hugsanleg þátttakendum til að hafa hugmynd um fjölda miða sem þarf að panta.
Fyrri 1-15 1 2 3 4 5 Næstu 31-45
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið