10:34 |
14. mars 2023 |
Kvennakórinn Sóldís með tónleika á Skagaströnd og Hvammstanga á laugardaginn
Kvennakórinn Sóldís heldur tónleika á Skagaströnd og Hvammstanga laugardaginn 18. mars næstkomandi og bera þeir yfirskriftina Eitt lag enn - Eurovision, glimmer og gleði en á fjölbreyttri efnisskrá verða flutt Eurovision lög. Tónleikarnir á Skagaströnd fara fram í Hólaneskirkju klukkan 15 og á Hvammstanga í Félagsheimilinu klukkan 20. |
10:03 |
14. mars 2023 |
Skagaströnd auglýsir námsstyrki
Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir á vef sínum námsstyrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi. Nemendur sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á námsstyrk. Umsóknum um styrki þarf að skila á netfangið skagastrond@skagastrond.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins og er umsóknarfrestur til og með 31. mars næstkomandi. |
08:29 |
14. mars 2023 |
Krakkar frá Umf. Fram kepptu á Akureyrarmóti UFA um helgina
Flottir og frábærir krakkar frá UMF. Fram á Skagaströnd kepptu á Akureyrarmóti UFA og Norðlenska sem var haldið á Akureyri laugardaginn 11. mars. |
15:51 |
13. mars 2023 |
Skemmti- og menningarferð FSAH
Fyrirhuguð er skemmtiferð á vegum Félags sauðfjárbænda í Austur-Húnavatnssýslu. Ferðin verður farin þann 25. mars næstkomandi og er áætlað að heimsækja sauðfjárbændur í Dalabyggð. Eftirfarandi bæir verða heimsóttir: Svarfhóll, Ásgarður, Breiðabólsstaður, Klifmýri og Magnússkógar III. Dagurinn endar svo á Laugum í Sælingsdal þar sem verður sameigilegur kvöldverður. |
15:39 |
13. mars 2023 |
Ómetanlegt samstarf Höfðaskóla og Nes listamiðstöðvar
Nemendur í myndmennt í Höfðaskóla á Skagaströnd fengu í síðustu viku að fara í Nes listamiðstöð til að spreyta sig á kínverskri leturgerð hjá Martin og Wen-Hsi. Þá lærðu nemendurnir um hina ýmsu siði og öðruvísi menningu fólks sem er frá Asíu, m.a. um það hvernig nýju ári er fagnað og hvaða stjörnuspá er farið eftir í heimshlutanum. Martin og Wen-Hsi búa í Bretlandi en Wen-Hsi er upprunalega frá Taívan.Sagt er frá þessu á vef Höfðaskóla. |
19:01 |
12. mars 2023 |
USAH vann flest gullverðlaun á Akureyri
Þrjátíu og níu krakkar frá Ungmennasambandi Austur-Húnvetninga tóku þátt á Akureyrarmóti UFA og Norðlenska sem fram fór á Akureyri í gær. Þrjátíu og fimm krakkar komu frá Ungmennafélagin Hvöt sem er metþátttaka síðan frjálsíþróttadeildin var endurvakin. Á facebooksíðu frjálsíþróttadeildar Hvatar segir frá því að krakkarnir hafi staðið sig vel, margir hafi hrósað sigri yfir persónulegri bætingu og sumir fagnað verðlaunum á palli. Þá hafi nokkrir verið að stíga sín fyrstu skref í keppni og staðið sig vel. |
18:19 |
12. mars 2023 |
Þýskur vefmiðill vekur athygli á Þrístöpum
Þýska vefsíða Island besuchen eða Heimsæktu Ísland er vefmiðill sem segir frá áhugaverðum stöðum á Íslandi til að heimsækja. Nýverið sagði hann frá Þrístöpum í Húnabygggð, þar sem síðasta aftakan á Íslandi fór fram 12. janúar 1830. Síðustu ár hafa framkvæmdir staðið yfir í kringum Þrístapa, sem eru samliggjandi smáhólar og partur af Vatnsdalshólum. Í sumar er áætlað að svæðið verði að mestu tilbúið til að taka á móti ferðamönnum og öðrum gestum sem geta þá fengið heildstæða upplifun af sögunni og svæðinu. |
15:07 |
11. mars 2023 |
Jónína Margrét setur landsliðsskautana á hilluna
Blönduósingurinn Jónína Margrét Guðbjartsdóttir, landsleikjahæsta kona Íslands í íshokkí, hefur ákveðið að leggja landsliðskautana á hilluna. Jónína, sem er nýorðin 42 ára og varð Íslandsmeistari í 21. skipti með SA á dögunum. |
14:33 |
10. mars 2023 |
Opnir fundir Landnets um Holtavörðuheiðarlínu
Landsnet boðar til opinna funda á Blönduósi og Laugarbakka 13. og 14. mars næstkomandi vegna Holtavörðuheiðarlínu 3. Á fundunum verða niðurstöður valkostagreiningar kynntar. Landsnet hefur hafið undirbúning að mati á umhverfisáhrifum Holtvörðuheiðarlínu 3 frá Holtavörðuheiði að Blöndu. Á vef Landsnets segir að lagning Holtavörðuheiðarlínu 3 sé mikilvægur hlekkur í endurnýjun á núverandi byggðalínu og verði línan, 220 kV raflína, hluti af nýrri kynslóð byggðalínu. |
11:15 |
09. mars 2023 |
Úthlutun lóða svar við eftirspurn
Eins og fram kom í fréttum Húnahornsins í síðasta mánuði auglýsir Húnabyggð 33 lóðir til úthlutunar í nýju hverfi á Blönduósi. Um er að ræða 22 einbýlishúsalóðir og 11 par- og raðhúsalóðir. Heildarfjöldi íbúða er á bilinu 49-75 og heildar byggingamagn á bilinu 8.810-11.080 fermetrar. Lóðirnar eru staðsettar við Hólabraut, Holtabraut, Lækjarbraut og Fjallabraut. Úthlutunin hefur vakið athygli Ríkissjónvarpsins sem sagði frá málinu í Tíufréttum á þriðjudaginn. |
10:55 |
09. mars 2023 |
Húsnæði Tónlistarskóla A-Hún. í slæmu ástandi
Húsnæði Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga á Húnabraut 26 á Blönduósi er í slæmu ástandi og bregðast þarf við leka og rakaskemmdum sem þar eru. Þetta kemur fram í minnisblaði Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur skólastjóra skólans sem lagt var fram á fundi sveitarstjórnar Skagastrandar í gær. Þar kemur fram að búið sé að kaupa efni til að ráðast í úrbætur utanhúss, til að laga lekann og að lagt hafi verið til hliðar fjármagn frá aðildarsveitarfélögum til að standa straum af kostnaði við framkvæmdir. |
09:17 |
09. mars 2023 |
Mesta fjölgun íbúa á Íslandi frá upphafi
Hagstofan birtir í dag upplýsingar um mannfjölda á Íslandi 1. janúar 2023 og þar kemur fram að hann var 387.758 og hefur íbúum fjölgað um 11.510 frá 1. janúar 2022, eða um 3,1%. Er það mesta fjölgun síðan árið 1734 eða eins langt og mannfjöldatölur fyrir Ísland ná. Alls voru 199.826 karlar, 187.800 konur og 132 kynsegin/annað búsett á landinu í upphafi ársins og fjölgaði körlum um 3,5% árið 2022, konum um 2,6% og kynsegin/annað um 80,8%. |
13:39 |
08. mars 2023 |
Rannsókn á verbúðaminjum í Höfnum á Skaga fékk styrk úr Fornminjasjóði
Fornminjasjóður úthlutaði styrkjum nýverið fyrir árið 2023. Alls bárust 65 umsóknir í sjóðinn að heildarfjárhæð um 237 milljónir króna. Fjörutíu verkefni fengu úthlutað úr sjóðnum að heildarfjárhæð um 107 milljónir og þar af er verkefni sem heitir Verbúðarlíf á Höfnum en um er að ræða rannsókn á verbúðaminjum sem eru í háttu í Höfnum á Skaga. Umsækjandi var Fornleifastofnun Íslands ses. |
09:37 |
08. mars 2023 |
Vatnsnesvegur verði eitt forgangsverkefna í samgöngubótum
Vatnsnesveg bar á góma í umræðum á Alþingi í gær en vegurinn er orðinn landsfrægur fyrir hversu ömurlegur hann er og stórhættulegur. Það var Bjarni Jónsson, alþingismaður í Norðvesturkjördæmi, sem nefndi veginn á nafn en fyrir 14 mánuðum spurði hann innviðaráðherra hvað liði framkvæmdum við uppbyggingu vegarins og flýtingu þeirra. Enn hefur lítið gerst og benti Bjarni á að vegurinn sé á kafla umferðamesti malarvegurinn í landshlutanum og á landinu öllu. |
07:24 |
08. mars 2023 |
Farsældarteymi Húnaþings vestra
Á vef Húnaþings vestra er sagt frá starfi farsældarteymis sveitarfélagsins, sem starfar samkvæmt lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Helstu verkefni farsældarteymis eru að fara yfir og greina þjónustuþætti er snerta öll börn í Húnaþingi vestra og gera tillögur að leiðum til að styðja þau í leik og starfi. Farsældarteymið vinnur nú að verklagi samþættingar vegna barna í móðurkviði til 18 ára aldurs. |