09:11 |
11. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Héraðsmót USAH 2021
Frá mótanefnd
Héraðsmót USAH innanhús í frjálsum íþróttum verður haldið laugardaginn 20. febrúar nk. í íþróttamiðstöðinni á Blönduósi. Skráning byrjar kl. 12:00 og hefst keppni stundvíslega kl. 12:10. Mótið er fyrir krakka fædd 2011 - 2004. Keppt verður í langstökki án atrennu, kúluvarpi, hástökki, 30m spretthlaupi og boðhlaupi. Skráning er á staðnum. |
rzg
|
11:37 |
10. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Öðruvísi öskudagur
Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra vekur athygli á eftirfarandi skilaboðum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, landlæknis og heimila og skóla:
Hugmyndir á farsóttartímum á öðruvísi öskudegi.
Gerum okkur dagamun í nærumhverfinu
Höldum upp á daginn á heimavelli, í skólanum, frístundaheimilinu eða félagsmiðstöðinni. |
rzg
|
11:32 |
10. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Aðalfundur frjálsíþróttadeildar Hvatar
Frá stjórn
Aðalfundur frjálsíþróttadeildar Hvatar verður haldinn miðvikudaginn 24.febrúar kl 20:00 í Norðursal Íþróttamiðstöðvarinnar.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. |
rzg
|
11:27 |
10. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Aðalfundur Félags kúabænda í A.-Hún.
Frá stjórn
Aðalfundur Félags kúabænda í A.-Hún. verður haldinn í fundarsal BHS á Blönduósi þriðjudaginn 23. febrúar nk. kl. 13:00. Venjuleg aðalfundarstörf. Margrét Gísladóttir framkvæmdastjóri LK mætir á fundinn. Erindi frá RML. Verðlaunaafhending fyrir 2019. Veglegar kaffiveitingar í boði. Munum persónubundnar sóttvarnir. |
rzg
|
14:17 |
05. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Prjónanámskeið á netinu
Frá Textílmiðstöð Íslands
Við hitum upp fyrir Prjónagleðina 2021 með því að bjóða upp á spennandi prjónanámskeið með Deborah Gray á netinu. Langar þig að prófa eitthvað nýtt í prjóni, stíga aðeins útfyrir boxið og láta reyna á hugmyndaflugið? Hvernig líst þér á að læra að hanna og prjóna þín eigin póstkort?
Netnámskeið fimmtudagskvöldin; 18., 25. febrúar og 4. mars, kl: 19.30 - 21.30. |
rzg
|
09:30 |
05. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Tilslakanir verða á heimsóknartímum á HSN á Blönduósi
Tilkynning frá HSN
Okkur er það sönn ánægja að tilkynna ykkur að tilslakanir verða á heimsóknartímum. Munið samt að áfram þarf að fylgja reglum almannavarna, virða fjöldatakmarkanir og ítrustu sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum þar sem starfsmenn heimilanna hafa ekki verið bólusettir. |
ass
|
09:26 |
05. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Velferð eldri borgara - fræðslufundur á RÚV
Frá félagi eldri borgara í Húnaþingi
Öldrunarráð Íslands og LEB - Landssamband eldri borgara standa fyrir fræðslufundinum, Velferð eldri borgara, á RÚV þriðjudaginn 9. febrúar klukkan 13-15, þar sem víðtæk fræðsla og upplýsingamiðlun verður höfð að leiðarljósi.
ÖÍ hefur árlega staðið fyrir ráðstefnu um málefni sem varða eldri borgara. Á kórónuveirutímanum hefur ekki verið hægt að halda slíka ráðstefnu. |
rzg
|
16:26 |
02. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Starfsfólk óskast til afleysinga á Heimilið við Skúlabraut
Heimilið við Skúlabraut á Blönduósi óskar eftir starfsfólki til afleysinga í febrúar-maí 2021 með möguleika á framhaldandi ráðningu. Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfið felur í sér að aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu. |
rzg
|
09:53 |
02. feb. 2021 |
Tilkynningar |
Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu óskar eftir að ráða starfsmann
Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu óskar eftir að ráða starfsmann í samstarfi við Héraðsbókasafn Austur-Húnavatnssýslu. Um er að ræða fjölbreytt starf sem tengjast flest skjalamálum og skjalavinnslu undir leiðsögn héraðsskjalavarðar, en einnig afgreiðslu á bókasafni. Um 50-70% starfshlutfall er að ræða og æskilegast að starfsmaður geti hafið störf ekki síðar en 1. apríl 2021. Umsóknarfrestur er til 8.febrúar 2021. |
rzg
|