Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:10 0 0°C
Laxárdalsh. 01:10 0 0°C
Vatnsskarð 01:10 0 0°C
Þverárfjall 01:10 0 0°C
Kjalarnes 01:10 0 0°C
Hafnarfjall 01:10 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 16-30 31-45 af 94 Næstu 46-60
KlukkanDagsetningFrétt
11:38 11. feb. 2020   Áminning um skráningu fyrir 12. febrúar
Til félagsmanna í Félagi eldri borgara í Húnaþingi.
Auglýst er eftir þátttöku í ferð um Borgarfjörð (stóra) og Snæfellsnes dagana 28.-30. ágúst 2020. Gist verður í tvær nætur á Langaholti á Snæfellsnesi. Leiðsögumaður um Snæfellsnes verður Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir sem er formaður „Sagnaseiðs“ á Snæfellsnesi. Félagið tekur þátt í ferðakostnaði að hluta. Nánari tilhögun og greiðsla staðfestingargjalds verður auglýst síðar. Hægt er að skrá sig fyrir 12.febrúar nk.
09:31 11. feb. 2020   Forsætisráðherra og þingmenn VG á Blönduósi
Þingmenn Vinstri grænna eru á ferð um landið á kjördæmisdögum Alþingis. Opinn fundur verður í Eyvindarstofu á Blönduósi í kvöld klukkan 20-21:30 með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra. Með henni verða þingmennirnir Lilja Rafney Magnúsdóttir, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Kolbeinn Óttarsson Proppé og Ólafur Þór Gunnarsson. „Ræðum stjórnmálin í byrjun árs og það sem á fundargestum brennur. Allir velkomnir,“ segir í tilkynningu frá VG.
08:50 11. feb. 2020   Vetrarfærð á vegum – ofsaveður á föstudaginn
Vetrarfærð er á vegum í öllum landshlutum og snjóþekja eða hálka og éljagangur á flestum leiðum á Norðurlandi. Vegurinn yfir Þverárfjall er ófær eins og er en unnið er að hreinsa hann. Veðurstofan hefur svo sent frá sér viðvörun vegna austan storms eða ofsaveðurs á föstudaginn. Gul viðvörun er í gildi fyrir allt landið þann dag. Spár gera ráð fyrir að sérlega djúp lægð nálgist landið úr suðvestri og að þrýstingur í lægðarmiðju gæti náð niður í 930 hPa.
17:21 10. feb. 2020   Árshátíð Blönduskóla í Félagsheimilinu á Blönduósi þann 14. febrúar
Árleg árshátíð Blönduskóla verður haldin 14. febrúar næstkomandi í Félagsheimilinu á Blönduósi. 8. - 10. bekkur mun sýna leikritið Annie og 7. bekkur mun sýna verkið Glerskóröskubusku passar ekki lengur í leikstjórn Rakelar Ýrar Stefánsdóttur.
14:25 10. feb. 2020   Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins á Blönduósi
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins, ásamt aðstoðar- og starfsfólki, heimsótti Blönduós í gær en nú standa yfir kjördæmisdagar á Alþingi. Heimsóknin hófst með stuttum fundi og kaffiveitingum í Heimilisiðnaðarsafninu þar sem Jóhannes Torfason, framkvæmdastjóri Ámundakinnar, Valdimar Hermannsson, sveitarstjóri Blönduósbæjar og Elín S. Sigurðardóttir, safnstjóri, fluttu stutt ávörp og kynningu. Þar voru einnig forsvarsmenn og eða eigendur þeirra fyrirtækja sem heimsótt voru í framhaldi af fundinum. Eftir líflegar umræður þakkaði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins móttökurnar.
14:12 10. feb. 2020   Eftirmál óveðursins – opinn fundur
Frá Búnaðarsambandi Húnaþings og Stranda
Fundur um eftirmál óveðursins sem gerði fyrir miðjan desember sl. verður haldinn í Víðihlíð fimmtudaginn 13. febrúar kl. 20:00. Á fundinum flytja erindi þau Einar Kristján Jónsson, sr. Magnús Magnússon, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, Benedikt Árnason og Anna Margrét Jónsdóttir. Allir íbúar hvattir til að mæta, sýna samstöðu og leggja sitt af mörkum til að bæta almannavarnir á svæðinu.
13:26 10. feb. 2020   112 dagurinn á Blönduósi
Tilkynning frá viðbragðsaðilum
Hinn árlegi 112 dagur verður haldinn á morgun, 11. febrúar. Á Blönduósi ætla viðbragðsaðilar að hittast við lögreglustöðina og fara þaðan í hópakstur um bæinn. Tækin verða til sýni við lögreglustöðina að loknum hópakstrinum eða frá kl. 16:00-18:00.
09:33 10. feb. 2020   Lýðheilsa og áhrifavaldar í Húnaþingi vestra
Í síðasta mánuði var fyrsti fyrirlesturinn í fyrirlestraröð Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga haldinn í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga. Knattspyrnukonurnar og systurnar Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur héldu fyrirlestur sem fjallaði um andlegan styrk og mikilvægi fjölbreytts mataræðis. Mæting var þokkaleg eða um 30-40 manns. Á vef USVH er fjallað um fyrirlesturinn.
09:24 10. feb. 2020   Skíðakennsla fyrir byrjendur í Tindastól
Dagana 15.-16. febrúar 2020 verður byrjendakennsla á skíðum fyrir börn fædd 2015 og eldri. Kennt verður frá 13-15 á laugardeginum og 11-13 á sunnudeginum. Búnaður fyrir námskeiðið er innifallinn í verði fyrir þá sem að þurfa. Skráningar sendist á helgadan63@gmail.com fyrir 13. febrúar.
12:39 09. feb. 2020   Norðan hríðarveðri spáð á mánudaginn
Gul veðurviðvörun verður í gildi á morgun, mánudag, en spáð er norðan hvassviðri á Norðurlandi vestra, 13-20 metrum á sekúndu, með snjókomu eða skafrenningi og slæmu skyggni. Búast má við vondum akstursskilyrðum og eru ferðalangar hvattir til að sýna varkárni. Á vegum landsins er vetrarfærð, hálka og hálkublettir víðast hvar og sumstaðar éljagangur. Vegagerðin varar við skemmdum á vegum vegna hlýinda en víða eru slæmar holur í bundnu slitlagi.
12:21 07. feb. 2020   Ekki málefnalegt tilefni að breyta samþykktum Byggðasamlags um brunavarnir í A-Hún.
Á fundi byggðaráðs Blönduósbæjar í gær voru gerðar athugasemdir við bókun sveitarstjórnar Húnavatnshrepps, á fundi 28. janúar síðastliðnum, er varðaði samþykktir Byggðasamlags um brunavarnir í Austur-Húnavatnssýslu. Sveitarstjórn Húnavatnshrepps telur nauðsynlegt að gera breytingar á samþykktunum, þar sem m.a. verði kveðið á um framkvæmdastjóra. Nýlega skipaði Blönduósbær nýja stjórnarmenn í stjórn byggðasamlagsins eftir athugasemd frá Húnavatnshreppi um að stjórn Brunavarna Austur-Húnvetninga væri ekki rétt kjörin.
11:02 07. feb. 2020   Læsisstefna leik- og grunnskóla í Húnavatnssýslum og Strandabyggð
Á vefjum Blönduósbæjar, Skagastrandar og Húnaþings vestra er athygli vakin á læsisstefnu Austur-Húnavatnssýslu, Húnaþings vestra og leikskóla Strandabyggðar. Leik- og grunnskólar í Húnavatnssýslum og í Strandabyggð hafa um nokkurt skeið unnið að læsisstefnu skólanna. Markmiðið með sameiginlegri læsisstefnu var að samræma kennsluhætti og námsmat og efla læsi. Unnin var heildstæð stefna af fulltrúum allra leik- og grunnskóla á svæðinu ásamt fræðslustjóra Austur-Húnavatnssýslu.
11:42 06. feb. 2020   Fjölmargar tilnefningar bárust um framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra
Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra bars 31 tilnefning um 20 framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra árið 2019. Viðurkenningar verða veittar fyrir verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar annars vegar og á sviði menningar hins vegar. Í síðasta mánuði var auglýst eftir tilnefningum og rann frestur út 2. febrúar síðastliðinn.
10:18 06. feb. 2020   Sameiningaviðræður að fara af stað aftur
Jón Gíslason, formaður sameiningarnefndar sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu, sagði í samtali við Ríkisútvarpið í gær að sameiningaviðræður væru að fara af stað aftur núna. Hlé hafi verið gert á þeim síðastliðið vor og ákveðið að bíða og sjá hvað yrði úr væntanlegri lagasetningu. Sagði hann að alltaf hafi verið horft til þess að viðræðum lyki með kosningum og sameining tæki gildi við næstu sveitarstjórnarkosningar árið 2022.
20:51 05. feb. 2020   Samningur um fýsileikakönnun á auknu samstarfi safna og setra á Norðurlandi vestra
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa gert samning við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Ströndum um gerð fýsileikakönnunar um aukið samstarf og mögulegar sameiningar safna á Norðurlandi vestra. Um er að ræða verkefni sem hefur vísun í byggðaáætlun 2018-2024 og er fjármagnað af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Markmið verkefnisins er að efla safnastarf í landshlutum.
Fyrri 16-30 1 2 3 4 5 6 7 Næstu 46-60
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið