11:00 |
07. sep. 2020 |
Nýjar rafbílahleðslustöðvar á Húnavöllum
Settar hafa verið upp tvær rafbílahleðslustöðvar á Húnavöllum. Hver stöð er 2x22 kílóvött og hægt að hlaða fjóra rafbíla í senn. Húnavatnshreppur fékk styrk frá Orkusjóði til framkvæmdarinnar en hann hefur styrkt sambærileg verkefni víðs vegar um landið síðasta árið. Hönnun raflagna og uppsetning hleðslustöðvanna var framkvæmd af Átak ehf. á Blönduósi. |
10:51 |
07. sep. 2020 |
Ungmennaráð Blönduósbæjar uppfyllir skilyrði um aldursskiptingu
Menningar-, tómstunda- og íþróttanefnd Blönduósbæjar telur að aldursskipting í ungmennaráði sveitarfélagsins uppfylli skilyrði sem sett eru fram af umboðsmanni barna um aldursskiptingu. Ungmennaráðið er samsett af fimm fulltrúum og er skiptingin þannig að þrír koma úr 8.-10. bekk Blönduskóla og tveir eru á aldrinum 16-25 ára. Embætti umboðsmanns barna sendi í síðasta mánuði bréf til allra sveitarfélaga þar sem minnt var á hlutverk og tilgang ungmennaráða og sérstaklega mikilvægi þess að í þeim sitji fulltrúar yngri en 18 ára. |
10:28 |
07. sep. 2020 |
Vildi kaupa gamla Álafossúlpu á 700 þúsund
Á baksíðu Morgunblaðsins í dag er fjallað um Gallerí Bardúsa á Hvammstanga þar sem verslunarsaga staðarins er rakin í máli og myndum. Rætt er við Þuríði Þorleifsdóttur sem staðið hefur vaktina í verslunarminjasafninu síðan í maí 2018. Þuríður er ánægð með viðtökurnar og segir að allir sem þangað komi hafi sagt að heimsóknin hafi verið skemmtileg og þá sé takmarkinu náð. |
09:30 |
07. sep. 2020 |
Réttarstörfin gengu vel um helgina
Réttarstörf gengu almennt vel fyrir sig um helgina í Húnavatnssýslum. Ljómandi gott veður var á laugardaginn en þá var m.a. réttað í Auðkúlurétt í Svínavatn. Vegna þoku og leiðinda veðurs kom féð seinna niður af Grímstungu- og Haukagilsheiði því var réttað í Undirfellsrétt í Vatnsdal á sunnudaginn en þann dag var einnig réttað í Skrapatungu rétt. Róbert Daníel Jónsson var mættur í réttirnar um helgina með flygildið sitt og tók magnaðar myndir sem fylgja hér þessari frétt. |
09:06 |
07. sep. 2020 |
Rýmri samkomutakmarkanir
Á miðnætti tóku nýjar og rýmri samkomutakmarkanir gildi. Nálægðarreglan fer úr tveimur metrum í einn metra og hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman fer úr 100 manns í 200. Hámarksfjöldi á sund- og baðstöðum og líkamsræktarstöðvum fer úr helmingi af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi í 75%. |
21:31 |
06. sep. 2020 |
Sameiginlegt Texas Scramble golfmót
Gólfklúbburinn Ós á Blönduósi og Golfklúbbur Skagastrandar héldu í sameiningu Texas Scramble golfmót í blíðskaparveðri á golfvöllum félaganna í gær en það er orðinn árlegur viðburður. Keppendur, sem voru 32 talsins, hófu leik á Vatnahverfisvelli og enduðu síðan á Háagerðisvelli við Skagaströnd. Góður rómur var gerður að mótinu í gær og allir sammála um að þetta sé skemmtilegasta mót sumarsins. |
09:35 |
05. sep. 2020 |
Tap á Eimskipsvellinum í gær
Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar tapaði fyrir liði SR á Eimskipsvellinum í Reykjavík í gærkvöldi. Eftir 20 mínútna leik höfðu heimamenn skorað tvö mörk og þannig stóðu leikar í hálfleik 2-0 fyrir SR. Eftir 60 mínútna leik versnaði staða svo enn meira fyrir Kormák/Hvöt þegar SR skoraði þriðja mark sitt í leiknum. Áður en flautað var til leiksloka náði Kormákur/Hvöt klóra í bakkann og skora tvö mörk en lengra komst liðið ekki, lokatölur 3-2 fyrir SR. |
14:28 |
04. sep. 2020 |
Réttað í Undirfellsrétt á sunnudaginn
Réttarstörf áttu að hefjast í Undirfellsrétt í Vatnsdal í dag en svo verður ekki þar sem gangnamenn þurftu frá að hverfa við smölun í gær sökum þoku. Smölun hófst á ný í morgun þar sem skyggni var orðið þokkalegt en snjór er yfir öllu og lágskýjað. Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins var rætt við Jón Gíslason, bónda á Hofi en hann gisti í Álkuskála á Haukagilsheiði í nótt ásamt fleiri mönnum. |
13:20 |
04. sep. 2020 |
AA fundur í safnaðarheimili Blönduóskirkju
Tilkynning frá AA samtökunum
Fundir hjá AA samtökunum á Blönduósi verða á laugardögum kl. 21:00 og verða þeir í safnaðarheimili Blönduóskirkju. Fyrsti fundur verður á morgun laugardaginn 5. september en fyrsti fundur hvers mánaðar verður opinn fundur. |
11:43 |
04. sep. 2020 |
Hvöt fær styrk til að mæta áhrifum COVID-19
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur tilkynnt um úthlutun sértækra styrkja til íþróttahreyfingarinnar til að mæta áhrifum Covid-19. Úthlutunin nemur rúmlega 150 milljónum króna og kemur í kjölfar 300 milljóna króna framlags ríkisins til íþróttahreyfingarinnar sem úthlutað var í maí. Knattspyrnudeild Hvatar á Blönduósi fær úthlutað 516.000 krónum vegna sértækra aðgerða og 280.836 krónur vegna almennra aðgerða. |
14:15 |
03. sep. 2020 |
Haustbragur kominn á laxveiðina
Húnvetnsku laxveiðiárnar bera þess merki að haustið er komið og ekki líður á löngu þar til árnar skili inn lokatölum. Miðfjarðará er enn í efsta sæti á lista þeirra vatnakerfa sem byggja veiði ekki alfarið á seiðasleppingum. Alls hafa veiðst 1.407 laxar í ánni og síðasta veiðivika skilaði 124 löxum sem er góður árangur. Áin er í þriðja sæti yfir aflahæstu ár landsins samkvæmt vef Landssambands veiðifélaga. |
13:21 |
03. sep. 2020 |
Undanþága veitt frá fjöldatakmörkunum í Undirfellsrétt og Auðkúlurétt
Um helgina verður rétta í fjölmörgum fjárréttum í Húnavatnssýslum. Sökum sóttvarnaráðstafana vegna Covid-19 og fjöldatakmarkana, sem miðast við 100 manns, verður gestum ekki heimilt að koma í réttir eins og verið hefur. Undanþága hefur verið veitt fyrir Undirfellsrétt í Vatnsdal, sem hefst á morgun og stendur fram á laugardag, og mega 150 manns vera við réttarstöf hvorn dag. Auðkúlurétt hefur einnig fengið undanþágu og mega 175 manns vinna við réttarstörf á laugardaginn. Aðgöngumiðar hafa verið sendir til fjáreigenda og kemst enginn í réttirnar án þeirra. |
11:26 |
03. sep. 2020 |
Lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna hríðar
Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna norðanhríðar sem gert er ráð fyrir að gangi yfir landið seinna í dag og á morgun. Yfirlýsingin er í samráði við lögreglustjóra á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Austurlandi. Í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir að óvissustig almannavarna þýði að aukið eftirlit sé haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. |
11:16 |
03. sep. 2020 |
Sæluviku Skagfirðinga aflýst
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur ákveðið að aflýsa Sæluviku 2020 sem fara átti fram dagana 27. september til 3. október. Vegur þyngst í þeirri ákvörðun hertar sóttvarnaraðgerðir almannavarna og ekki fyrirséð hvenær þeim verður aflétt, segir á vef sveitarfélagsins. |
14:37 |
02. sep. 2020 |
Bæta öryggi svæðis umhverfis vegi
Vegagerðin vinnur þessa dagana að því að bæta umferðaröryggi á nokkrum vegaköflum á Norðurlandi, þar á meðal við bæina Stóru-Giljá og Öxl þar sem nokkuð hefur verið um slys að undanförnu. Mbl.is greinir frá þessu. Haft er eftir Margréti Silju Þorkelsdóttur, deildarstjóra tæknideildar á norðursvæði Vegagerðarinnar að aðgerðir til að bæta öryggi á svæðinu hafi byrjaði í síðustu viku. |