14:34 |
16. nóv. 2022 |
Ungt og upprennandi listafólk í Höfðaskóla
Nemendur á unglingastigi í Höfðaskóla sem voru í myndmenntavali eyddu síðustu tímunum í listamiðstöðinni Nesi. Þar lærðu þeir að búa til sitt eigið screen printing frá grunni og prófuðu að prenta á bæði pappír og boli, að því er segir á vef Höfðaskóla. Þar segir að verkefnið hafi verið mjög áhugavert og að krakkarnir hafi fengið að kynnast því hve mikil vinna og bras felist oft í gerð listaverka. Útkoman hafi verið allskonar og að þau hafi fagnað bæði því sem misheppnaðist og því sem lukkaðist. |
14:19 |
16. nóv. 2022 |
Velferðasjóður Húnaþins vestra minnir á sig
Hlutverk Velferðasjóðs Húnaþings vestra er að styrkja einstaklinga og fjölskyldur fyrir hátíðir og merkisviðburði í fjölskyldu. Einstaklingar sem búa við þröng fjárráð geta sótt um fyrir 13. desember 2022. Nánari upplýsingar hjá undirrituðum og í tölvupósti: siggi@hunathing.is. Húnaþing vestra, Húnavatnssýsludeild Rauða kross Íslands, Þjóðkirkjan og frjáls framlög standa að sjóðnum. |
11:54 |
16. nóv. 2022 |
Jólamarkaður í Skagabúð
Frá Kvenfélaginu Heklu
Kvenfélagið Hekla heldur Jólamarkað í Skagabúð sunnudaginn 27. nóvember. Þeir sem hafa áhuga á að vera með söluborð geta haft samband fyrir 20. nóvember á netfangið karenhsteins@gmail.com eða í síma 865 8426, 453 6525 eða 848 2732. |
19:03 |
15. nóv. 2022 |
Fengu 100 sálmabækur að gjöf
Tilkynning frá söfnuðinum
Söfnuði Blönduóskirkju barst höfðingleg gjöf síðastliðin sunnudag er haldin var Sálmabókamessa í Blönduóskirkju. Þangað voru mættir afkomendur þeirra hjóna Skúla Jakobssonar Bergstað og Gunnhildar Erlu Þórmundsdóttur og færðu söfnuðinum 100 sálmabækur að gjöf í minningu þeirra hjóna. |
15:32 |
15. nóv. 2022 |
Styður eflingu félagslega hluta fiskveiðistjórnunarkerfisins
Sveitarfélagið Skagaströnd hefur sent inn umsögn við tillögu til þingsályktunar um eflingu félagslega hluta fiskveiðistjórnunarkerfisins sem nokkrir þingmenn hafa lagt fram á Alþingi. Með tillögunni er lagt til að stækka þann hluta sem tekinn er af aflaheimildum hvers árs úr 5,3% í 8,3% af úthlutuðum aflaheimildum heildarafla. Í greinargerð með tillögunni segir að félagslegar veiðar séu mikilvæg byggðaráðstöfun, þær efli atvinnu og auki fjárfestingu á sviði sjávarútvegs. |
13:37 |
15. nóv. 2022 |
Íbúafundi frestað um viku
Kosningu um nýtt byggðarmerki Húnabyggðar lýkur á miðnætti í kvöld. Hægt er að kjósa rafrænt til miðnættis eða koma á skrifstofu Húnabyggðar fyrir klukkan 15 í dag og kjósa þar. Íbúafundurinn sem vera átti í kvöld hefur verið frestað um viku og því verður ekki hægt að kjósa á honum líkt og til stóð, að því er fram kemur í facebookfærslu frá Húnabyggð. |
12:42 |
15. nóv. 2022 |
Jólasjóðurinn minnir á sig
Frá stjórn Jólasjóðsins
Nú fer að líða að jólum og vill Jólasjóðurinn minn á sig. Sjóðurinn hefur fengið styrki frá félagasamtökum, sveitarfélögum og einstaklingum til að aðstoða fjölskyldur og einstaklinga á svæðinu, sem minna mega sín. Þörf fyrir aðstoð á svæðinu hefur aukist frá ári til árs, hefur Félagsþjónustan fært einstaklingum og fjölskyldum inneignarkort sem jólasjóðurinn fjármagnar með styrkjum frá ykkur. |
14:13 |
14. nóv. 2022 |
Tónleikar Rokkkórsins á Hvammstanga
Rokkkórinn á Hvammstanga heldur tónleika laugardaginn 19. nóvember í Félagsheimilinu Hvammstanga klukkan 21. Flutt verða níu lög við undirspil fimm manna hljómsveitar. Kórmeðlimir munu syngja einsöng og einn gestasöngvari kemur fram, Luis Aquino frá Brasilíu og syngur á móðumáli sínu, portúgölsku. Sigurvaldi Ívar Helgason verður hljóð- og ljósamaður og mun hann útbúa sérstaka ljósasýningu fyrir hvert lag. |
11:02 |
12. nóv. 2022 |
Kynvættir meðal vors í Listakoti Dóru
Málverkasýningin Kynvættir meðal vors verður opnið í sýningarsal Listakots Dóru í Vatnsdalshólum laugardaginn 19. nóvember klukkan 13-18 og verður hún opin til 20. desember. Listakonan, Guðrún Ósk Aðalsteinsdóttir verður á staðnum opnunarhelgina en eftir það sé eigandi sýningarsalarins um sýninguna. Þema hennar eru kynvættir úr þjóðsögum sem eru nánast gleymdir í skjölum og geymslum. |
10:49 |
12. nóv. 2022 |
Framkvæmdir í Spákonufellshöfða heimilar
Umhverfisstofnun hefur veitt leyfi fyrir framkvæmdum í Spákonufellshöfða en fyrirhugað er að reisa þar fuglaskoðunarhús, bæta og afmarka bílaplan, bæta merkingar og gera úrbætur og viðbætur á göngustígum fólkvangsins. Spákonufellshöfði er friðlýstur og því öll mannvirkjagerð og hvers konar annað jarðrask óheimilt nema með leyfi Umhverfisstofnunar. |
14:24 |
11. nóv. 2022 |
Sálmabókamessa í Blönduóskirkju
Sálmabókamessa verður haldin í Blönduóskirkju á sunnudaginn, 13. nóvember klukkan 11. Ný sálmabók verður tekin í notkun og sungnir nýir sálmar í bland við gamla.Kirkjukór Blönduóskirkju leiðir safnaðarsöng við undirleik Eyþórs Franzsonar Wechner. Sr. Edda Hlíf þjónar fyrir altari. Myndir til að lita, kex og djús í boði fyrir krakkana niðri í safnaðarsal meðan á messu stendur. Öll hjartanlega velkomin. |
14:19 |
11. nóv. 2022 |
Æfðu notkun björgunarklippu
Slökkviliðsmenn Brunavarna Austur-Húnvetninga halda reglulega æfingar til þess að viðhalda faglegri þekkingu sinni og þjálfa færni sína í starfi en nýlega æfðu þeir notkun björgunarklippu. Á facebooksíðu Brunavarna A-Hún. er sagt frá æfingunni og þar má sjá myndir frá henni. Fram kemur að æfingin hafi verið vel sótt og gengið einstaklega vel, þrátt fyrir mikla rigningu. |
11:32 |
10. nóv. 2022 |
Alvarlegur veikleiki í öryggisinnviðum
Skagaströnd án net- og símasambands í sex klukkustundir
Föstudaginn 4. nóvember síðastliðinn voru íbúar, fyrirtæki og stofnanir á Skagaströnd án net- og símasambands í sex klukkustundir þar sem ljósleiðari fór í sundur vegna framkvæmda í Refasveit. Atvikið afhjúpar alvarlega veikleika í öryggisinnviðum í sveitarfélaginu og ef upp hefðu komið tilfelli er varða líf og heilsu íbúa voru engar bjargir til staðar eða möguleiki til að kalla eftir aðstoð þar sem ekki náðist í 112 símleiðis. |
14:56 |
09. nóv. 2022 |
Kosið um nýtt nafn á grunnskólann
Hundrað og nítján tillögur bárust skólaráði Grunnskóla Húnabyggðar um nýtt nafn á skólann. Skólaráðið hefur ákveðið að kosið verði um þrjú nöfn en þau eru Grunnskóli Húnabyggðar, Húnaskóli og Þórdísarskóli. Rafræn kosning er í boði en einnig er möguleiki á að kjósa hjá ritara í grunnskólanum á opnunartíma klukkan 7:45-16. Kosningin er einungis fyrir þá sem eiga lögheimili í Húnabyggð og má aðeins kjósa einu sinni. |
09:04 |
09. nóv. 2022 |
Hugum að auðlindinni okkar - stillum kerfin og drögum úr sóun
RARIK býður viðskiptavinum hitaveitunnar á Blönduósi og Skagaströnd að fá til sín fagmann til að yfirfara hitakerfi í híbýlum sínum, sér að kostnaðarlausu. Með þessu vill RARIK hvetja viðskiptavini hitaveitunnar til að huga að þessari auðlind samfélagsins og taka þátt í að lágmarka sóun á heita vatninu. |