12:44 |
15. jan. 2023 |
Tilboð opnuð í Víðidalsá
Sporðaköst, veiðivefur mbl.is, segir frá því að tilboð í Víðidalsá hafi verið opnuð í gær og að tilboð hafi borist frá fimm aðilum. Samkvæmt heimildum vefsins er leiguverð Víðidalsár nú í kringum 80 milljónir króna á ári en nokkur tilboðanna í gær voru vel yfir 100 milljónir og hæsta boð hljóðað upp á 115 milljónir á ári. Ljós sé því að leiga fyrir veiðiréttindi í Víðidalsá muni hækka um tugi milljóna króna. |
11:12 |
15. jan. 2023 |
Örvar nýr framkvæmdastjóri Selasetursins
Stjórn Selaseturs Íslands hefur ráðið Örvar Birki Eiríksson sem framkvæmdastjóra Selasetursins og tekur hann við starfinu af Páli Línberg Sigurðssyni sem hefur gegnt því síðastliðin tvö ár. Örvar er Húnvetningur, fæddur á Syðri-Völlum í Kirkjuhvammshreppi í Vestur-Húnavatnssýslu árið 1976. Hann hefur verið tíður gestur á heimaslóðum í gegnum tíðina þar sem foreldrar hans búa enn og á því mikla og sterka tengingu við samfélagið í Húnaþingi vestra, eins og segir í tilkynningu frá stjórn Selasetursins. |
16:43 |
13. jan. 2023 |
Blöndublótið haldið laugardaginn 28. janúar
Blöndublótið verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi laugardaginn 28. janúar næstkomandi. Húsið opnar klukkan 19:30 og borðhald hefjast hálftíma síðar. Hafa gaman ehf. sér um veislumatinn og skemmtilega nefndin sér um að kitla hláturtaugar gesta og rifja upp atburði í samfélaginu síðustu ár. Hljómsveitin Smóking spila undir í fjöldasöng að loknu borðhaldi og heldur svo uppi stuðinu fram á rauða nótt. |
14:40 |
13. jan. 2023 |
Barnaverndarþjónusta Mið-Norðurlands tók til starfa um áramótin
Þann 1. janúar síðastliðinn tók Barnaverndarþjónusta Mið-Norðurlands til starfa. Þjónustan er samstarf sex sveitarfélaga á Norðurlandi, frá Hrútafirði í vestri að Eyjafirði í austri. Skagafjörður er leiðandi sveitarfélag í Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands og ber ábyrgð á barnavernd í nánu samstarfi við aðildarsveitarfélögin. Íbúar sem heyra undir þjónustuna eru 9.371, þar af 1.893 börn. |
07:40 |
13. jan. 2023 |
Húnavökuritið 2022
Frá Ungmennasambandi Austur-Húnvetninga
Húnavökuritið 2022 er komið úr prentun og farið í dreifingu. Ritið er samkvæmt venju fullt af fróðleik um menn og málefni í Austur-Húnavatnssýslu. Í ár er dreifing ritsins með svipuðum hætti og síðustu ár. Ritið er borið í hús til þeirra sem greiddu valgreiðslukröfu við útgáfu síðasta rits og ættu þær bækur að berast núna um helgina. Með þessu fyrirkomulagi vill USAH þakka þeim kærlega sem greiddu fyrir ritið síðast og um leið afhenda þeim Húnavökuritið 2022 (árgangar 61 og 62). Húnavökuritið 2022 kostar 3.000 kr. og verður valgreiðslukrafa stofnuð og mun hún birtast í heimabanka. |
22:39 |
12. jan. 2023 |
Innilegar þakkir frá Björgunarfélaginu Blöndu
Tilkynning frá stjórn félagsins
Björgunarfélagið Blanda vill þakka innilega þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem gerðu okkur kleift að bjóða uppá glæsilega flugeldasýningu á gamlárskvöld. |
22:31 |
12. jan. 2023 |
Ungir einleikarar 2023
Einn af þremur sigurvegurum keppninnar Ungir einleikarar 2023 er Húnvetningurinn Ólafur Freyr Birkisson frá Höllustöðum en Ólafur er gamall nemandi Tónlistarskóla A-Hún. Keppnin var haldin í tuttugasta skiptið og er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands og Sinfoníuhljómsveitar Íslands. |
14:06 |
12. jan. 2023 |
FNV sigraði í fyrstu umferð Gettu betur
Gettu betur lið Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra mætti Menntaskólanum í Kópavogi í fyrstu umferð keppninnar mánudagskvöldið 9. janúar síðastliðinn og hafði sigur. Lið FNV skipa þau Íris Helga Aradóttir, Alexander Viktor Jóhannesson og Óskar Aron Stefánsson. Íris og Alexander þreyttu frumraun en Óskar Aron tók þátt í þriðja skipti. |
13:05 |
12. jan. 2023 |
Skatturinn skorar á eigendur 1.165 skráðra félaga um að skrá raunverulega eigendur
Í gær birti Skatturinn auglýsingu í Lögbirtingarblaðinu þar sem skorað er á eigendur 1.165 skráðra félaga um að skrá raunverulega eigendur félaganna. Verði það ekki gert á næstu tveimur vikum mun ríkisskattstjóri taka ákvörðun um að krefjast slita eða skipta á félögunum. Nokkur félög á listanum eru á Norðurlandi vestra, þar á meðal Lionsklúbbur Blönduóss, Leikklúbbur Skagastrandar, Starfsmannafélag Kaupfélags Skagfirðinga og Vörubílsstjórafélag Vestur-Húnavatnssýslu. |
16:25 |
11. jan. 2023 |
Húnabyggð auglýsir námsstyrki
Húnabyggð auglýsir á vef sínum námsstyrki sem veittir eru ungu fólki í viðurkenndu framhaldsnámi, alls 60.000 krónur á önn. Námstyrkirnir eru greiddir út eftir hverja önn að staðfestri skólavist. Aldur styrkþega miðast við 22 ára og þá við árið sem nemandinn verður 22 ára, ekki síðar. Þá þurfa nemendur sem óska eftir styrk að eiga lögheimili í Húnabyggð. |
16:12 |
11. jan. 2023 |
Árið byrjar af krafti í ferðaþjónustu á landsvísu
Ferðakaupstefnan Mannamót Markaðsstofa landshlutanna verður haldin fimmtudaginn 19. janúar í Kórnum í Kópavogi á milli 12 og 17. Viðburðurinn er sá fjölmennasti í íslenskri ferðaþjónustu og hefur skipað sér sess sem einn sá allra mikilvægasti í íslenskri ferðaþjónustu. Gert er ráð fyrir að fjöldi gesta verði á bilinu 600-800 og því má með sanni segja að árið 2023 byrji með krafti í ferðaþjónustu, eins og segir í tilkynningu frá Markaðsstofu landshlutanna. |
18:00 |
10. jan. 2023 |
Mótmælir harðlega litlum byggðakvóta
Sveitarstjórn Húnabyggðar mótmælir því harðlega að ekki sé úthlutaður meiri byggðakvóti til sveitarfélagsins fyrir fiskveiðiárið 2022/2023 en þau 15 þorskígildistonn sem úthlutað var nýverið. Byggðakvótinn sé svo lítill að af því sé skömm enda dugi hann ekki til að sjá einum sjómanni fyrir atvinnu og því sé vandséð hvernig úthlutunin styrki atvinnulíf í sveitarfélaginu. Sveitarstjórn segir það óásættanlegt að kvótinn sé ekki í samræmi við þá úthlutun sem nágrannasveitarfélögin fá og skorar á matvælaráðuneytið að leiðrétta þennan mismun samstundis. |
07:28 |
10. jan. 2023 |
Færir ráðuneyti sitt tímabundið um allt land
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, heldur áfram á þessu ári að færa skrifstofu sína tímabundið út á land, líkt og hún gerði í fyrra. Áslaug ákvað þegar hún tók við ráðuneytinu að það yrði vinnustaður án staðsetningar og með því að færa sig sjálf um set vill hún sýna fram á hversu gerlegt það er. Þannig ætlar hún að staðsetja skrifstofu sína víðs vegar um landi á kjörtímabilinu. |
21:18 |
09. jan. 2023 |
Byggðarráð Húnaþings vestra samþykkir reglur um úthlutun byggðakvóta
Byggðarráð Húnaþings vestra hefur samþykkt reglur um úthlutun 130 þorskígildistonna byggðakvóta sem sveitarfélagið fékk úthlutað fyrir fiskveiðiárið 2022/2023. Helmingur kvótans verður skipt milli fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og fengið hafa úthlutun samkvæmt reglugerð númer 919/2021 vegna aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa og uppfylla ákvæði reglugerðar númer 995/2021 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022. |
20:01 |
09. jan. 2023 |
Nýtt byggðarmerki og ný heimasíða
Skagabyggð hefur tekið í notkun nýja heimasíðu en á henni eru birtar fundargerðir sveitarstjórnar og annað efni sem sveitarfélagið telur mikilvægt að sé miðlægt fyrir íbúa. Heimasíðan er enn í þróun og því eru allar ábendingar um hana vel þegnar og skulu þær sendast beint á Erlu Jónsdóttur oddvita. Skagabyggð hefur líka fengið nýtt byggðarmerki sem hannað er af Birgi Breiðfjörð starfsmanni Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. |