21:53 |
20. maí 2014 |
Ágætu íbúar Húnavatnshrepps
Eftir Ólaf Magnússon
Nú eru sveitasjórnarkosninar að ganga í garð. Hér í Húnavatnshreppi á að kjósa samhliða sveitastjórnakosningunum um hvort íbúar hreppsins vilji sameinast öðrum bæjar eða sveitarfélögum hér í sýslunni. Ég tel að nú verðum við að láta slag standa og kjósa sameiningu. |
19:13 |
19. maí 2014 |
Um velferðamál á Blönduósi
Pistill eftir Gerði Betu Jóhannsdóttur sem skipar 6. sæti á L-listanum
Ég hef búið á Blönduósi síðastliðin 6 ár ásamt fjölskyldu minni og tel það vera forréttindi að búa á svona fjölskylduvænum stað. Ég starfa sem hjúkrunarfræðingur og í sjúkraflutningum á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi. Heilbrigðismál og heilsutengd málefni hafa alltaf verið mér hugleikin. |
16:05 |
18. maí 2014 |
Blönduós er okkar bær
Eftir Valgarð Hilmarsson sem skipar 1.sæti á L-listanum
Ágætu kjósendur í Blönduósbæ.
L-listinn bíður fram krafta sína í annað sinn í sveitarstjórnarkosningum 2014. Listan skipa einstaklingar á öllum aldri með mismunandi reynslu og menntun. Í hópnum eru aðilar sem starfað hafa í bæjarstjórn á undanförnum árum með mikla reynslu af málefnum sveitafélaga. Frambjóðendur listans hafa óbifandi trú á byggðarlagi sínu og vilja bjóða fram krafta sína til að takast á við verkefnin framundan.
|
19:19 |
17. maí 2014 |
Ferðaþjónusta, söfn og setur
Eftir Hörð Ríkharðsson sem skipar 1. sæti J-listans
Með þessum línum hér vil ég vekja athygli á mikilvægum málefnum sem varða samfélagið miklu til framtíðar og vona að sem flestir leiði hugann að þessum málum og leggi sitt til stefnumótunar inn í framtíðina.
Ferðaþjónusta hefur vaxið atvinnugreina mest á síðastliðnum árum.
|
09:22 |
12. maí 2014 |
Nokkur orð um atvinnumál
Eftir Hörð Ríkharðsson, frambjóðanda Umbótasinna á Blönduósi
Samþykkt var á Alþingi 15. janúar 2014 þingsályktunartillaga um átak stjórnvalda og sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu til atvinnuuppbyggingar. Það er mikilvægt að samþykkt þessarar tillögu sé fylgt eftir með kerfisbundnum hætti þannig að stofnunum og fyrirtækjum ríkisins sé gert ljóst hver vilji alþingis og heimamanna er. |
18:23 |
02. maí 2014 |
Menntun í heimabyggð – stöndum saman
Eftir Ásdísi Ýr Arnardóttur umsjónarmann Dreifnáms í A-Hún.
Fyrir ári síðan var ákveðið að fara af stað með verkefnið Dreifnám í A-Hún. Dreifnám í A-Hún er samstarfsverkfefni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Félags- og skólaþjónustu A-Hún. Starfsemi dreifnámsins er tvíþætt, annars vegar er um að ræða hefðbundið bóknám sem kennt er í dreifnámi og hins vegar aðstöðu til fjarnáms í öllum fjarnámsáföngum sem Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra býður upp á hverju sinni. |
16:51 |
29. apr. 2014 |
Kærar þakkir fyrir stuðninginn í vetur
Eftir Snjólaugu, Guðmann og Elyass Kristinn
Þá er 39. Andrésar andar leikunum lokið. En þeir fóru fram í Hlíðarfjalli á Akureyri dagana 23-26 apríl. Elyass Kristinn nemandi í Blönduskóla var að keppa á sínum 3 leikum aðeins 8 ára gamall. Mikill kostnaður er í þessari íþrótt eins og öðrum og viljum við senda sérstakar þakkir til allra þeirra sem að styrktu hann með kaupum á Kólus nammi í vetur. |
15:55 |
18. apr. 2014 |
Organistapistill
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Nú líður að páskum, passíusálmar verða lesnir í Blönduóskirkju að kvöldi föstudagsins langa, kórinn syngur milli lestra og einnig kl. 8 á páskadagsmorgni þegar hátíðarmessa verður í kirkjunni. Á þriðjudagskvöldi, hittust til æfinga í Svínavatnskirkju, aðstandendur fermingarbarna og sóknarmenn úr Svínadal, Blöndudal og af Hálsum svo organisti bregði fyrir sig málfari Sturlungualdar en þar voru bæir austanvert við vatnið heimfærðir svo. |
07:29 |
11. apr. 2014 |
Ekki mjög sexy setning................en gæti skipt þig miklu máli
Eftir Hörð Ríkharðsson fræðsluerindreka
Á raunfærnimat erindi við þig?
Ef þú hefur ekki menntun í starfsgrein sem þú hefur samt mikla starfsreynslu í gætir þú bætt stöðu þína á vinnumarkaði með því að fara í raunfærnimat. Þú gætir tekið stór skref í átt að starfsréttindum og auknu starfsöryggi. |
15:16 |
25. mars 2014 |
Organistapistill
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
Í síðustu viku æfði kirkjukórinn uppi á Baðstofu í Héraðshælinu. Tilefnið var áttræðisafmæli hjá elsta bassanum, Olla frá Hvammi, sem starfað hefur með kórnum í áratugi. Enn lengur hefur hann þó sungið með karlakórnum þar sem hann var formaður um árabil. Minnisstæður er hann líka, okkur karlakórsaðdáendum, þegar þeir Sigfús Guðmundsson brugðu sér í gervi stúdentanna kátu í Ævintýri á gönguför. |
22:19 |
18. mars 2014 |
Húsnæðisvandi ungs fólks
Eftir Ástu Berglindi Jónsdóttur
Á síðustu árum hefur leiga og kaupverð á íbúðum farið töluvert hækkandi. Lánin sem fólk tók hækka og peningarnir hverfa. Þetta gerir það að verkum að ekki er auðvelt fyrir ungt fólk að finna sér húsnæði sem það ræður við að borga. Þegar kemur að framhaldsmenntun þurfum við að leita út fyrir okkar heimasveit og það er ekki auðvelt fyrir alla. |