07:44 |
04. maí 2020 |
Breyttar reglur um samkomur taka gildi
Breytt fyrirkomulag samkomubanns tók gildi á miðnætti. Nú mega 50 manns koma saman í stað 20. Leyfilegt verður að fara í klippingu, nudd og sjúkraþjálfun, og til tannlæknis og læknis eða fara á snyrtistofu, svo dæmi séu tekin. Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar verða áfram lokaðar, en skólasund og æfingar eru leyfðar með takmörkunum. Tveggja metra reglan er enn í gildi. |
20:38 |
03. maí 2020 |
Aðgengi að Félags- og skólaþjónustunni
Tilkynning
Nú stendur til að aflétta að hluta þær takmarkanir sem hert samkomubann hefur gilt um vegna COVID-19 og verður það gert í litlum skrefum. Reglur um tveggja metra fjarlægð haldast þó óbreyttar. Við biðlum til fólks að panta tíma áður en komið er á skrifstofuna. |
20:33 |
03. maí 2020 |
Gul veðurviðvörun á mánudaginn
Tími veðurviðvarana er ekki liðinn þó sumarið sé komið samkvæmt dagatalinu. Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs sem gildir á morgun fyrir Strandir og Norðurland vestra, Norðurland eystra og miðhálendið. Frá klukkan 11 er búist við suðvestanátt, víða 15-23 metrum á sekúndu, en hvassara í vindstrengjum á Tröllaskaga og á Ströndum. Búist er við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 40 m/s. Varasamt verður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. |
09:27 |
02. maí 2020 |
Hróplegt ósamræmi í úthlutun styrkja
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps brýnir stjórnvöld til þess að horfa til Norðurlands vestra varðandi framtíðarúthlutanir úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Eins og fram hefur komið í fréttum veitti sjóðurinn, sem er í vörslu Ferðamálastofu, nýverið styrki til 33 verkefna um land allt vegna ársins 2020 og nam heildarfjárhæðin rúmlega 500 milljónum króna. Einungis 34 milljónir runnu til verkefna á Norðurlandi vestra. |
15:32 |
30. apr. 2020 |
Hrútey opin fyrir almenning frá 5. maí
Sveitarstjórn Blönduósbæjar hefur nú aflétt þeirri tímabundnu lokun sem verið hefur á aðgengi að fólkvanginum í Hrútey á vorin. Eyjan verður því alveg opinn fyrir almenning og heimsóknir gesta frá og með 5. maí næstkomandi. Hvatt er til varfærni í umgengni yfir aðal varptímanna. Aukið verður við merkingar gönguleiða og bætt við upplýsingaskiltum eftir þörfum í eyjunni, það því er fram kemur í tilkynningu frá Blönduósbæ. |
11:43 |
30. apr. 2020 |
Samskiptasáttmáli Húnvetnings
Frá sameiningarnefndinni
Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagaströnd hafa átt í viðræðum um mögulega sameiningu sveitarfélaganna undanfarin tvö ár. Um síðustu áramót var ákveðið að setja aukinn kraft í vinnuna og ráðgjafafyrirtækið RR ráðgjöf fengið til samstarfs. Undanfarin misseri hefur verið unnið að framgangi verkefnisins með tíðari fundum sveitarstjórnarfólks, greiningu á helstu hagsmunum Húnvetninga og forgangsröðun aðgerða. |
21:46 |
29. apr. 2020 |
Sögulegar kvikmyndir aðgengilegar á nýjum vef
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, opnaði á dögunum streymisvefinn Ísland á filmu þar sem einstakt efni í vörslu Kvikmyndasafns Íslands er nú aðgengilegt almenningi. Nú eru á vefnum 300 myndskeið sem sýna Ísland á ótal vegu, mannlíf og menningu, sögulega atburði, náttúru og fjölbreytt mannlíf, þar á meðal úr Hrútafirði og frá Hvammstanga. Elsta efnið á vefnum er frá árinu 1906, en ekki er vitað til þess að eldri kvikmyndir frá Íslandi séu til. Vefurinn er unninn í samstarfi við Dansk Film Institut. |
21:24 |
29. apr. 2020 |
Söngelskir Skagfirðingar
Skagfirðingar hafa tekið sig saman og gert tónlistarmyndband við lagið Látum sönginn hljóma eftir Geirmund Valtýsson og texta Hjálmars Jónssonar. Tónlistarmaðurinn Sigfús arnar Benediktsson óskaði eftir þátttakendum á Facebook og létu viðbrögðin ekki á sér standa. Hann segir í samtali við Ríkisútvarpið að hugmyndin hafi komið upp eftir Góða ferð myndbandið. |
14:11 |
29. apr. 2020 |
Starf flokksstjóra hjá Húnavatnshreppi
Húnavatnshreppur auglýsir á vef sínum eftir flokksstjóra til að hafa umsjón með vinnuhópum hjá vinnuskóla sveitarfélagsins í sumar. Flokkstjóri sér um verkstjórn með sumarvinnu unglinga og leiðbeinir yngri ungmennum í vinnuskólanum. Leitað er eftir duglegum einstaklingi, 18 ára eða eldri, sem er lipur í mannlegum samskiptum, skipulagður, ákveðinn og stundvís. Hann þarf að þekkja til garðyrkjustarfa og hafa bílpróf. Umsóknarfestur er til 1. maí næstkomandi. |
14:10 |
28. apr. 2020 |
Húnavatnssýslur hafa upp á margt að bjóða
Upplifðu Norðurland er opinber ferðavefur í umsjón Markaðsstofu Norðurlands. Á honum má finna ýmsar upplýsingar um áhugaverða staði á Norðurlandi að heimsækja. Ferðasumarið nálgast og í ljósi aðstæðna er líklegt að flestir kjósi að ferðast innanlands. Á vefnum eru m.a. upplýsingar um áhugaverða áningarstaði í Húnavatnssýslum. Og þar eru áhugaverðir bæir og þorp að heimsækja þar sem mannlíf og atvinnulíf er fjölbreytt. Er ekki upplagt að láta sem flesta vita af því? |
13:55 |
28. apr. 2020 |
Hugmyndir um heitar laugar og sjóböð við Hólanes á Skagaströnd
Sveitarfélagið Skagaströnd hefur síðustu misseri unnið að uppbyggingu ferðaþjónustu meðal annars með þátttöku í Cruise Iceland með það fyrir augum að fá skemmtiferðaskip til þess að koma við á Skagaströnd. Á sveitarstjórnarfundi 24. apríl síðastliðinn lagði sveitarstjóri fram minnisblað vegna hugmynda um hönnun og byggingu heitra lauga og sjóbaða við Hólanes. Þá var lögð fram kostnaðaráætlun upp á 5,6 milljónir króna vegna forgreiningar og gerð húsrýmisáætlunar vegna verkefnisins. |
13:49 |
28. apr. 2020 |
Bregðast við áhrifum COVID-19 á úthlutun og nýtingu byggðakvóta
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð um breytingu á úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020 til að bregðast við áhrifum COVID-19 veirunnar. Í tilkynningu segir að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu hafi borist ábendingar um bregðast þyrfti við þeim skilyrðum sem gilda vegna úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa þar sem markaðsaðstæður hafi breyst umtalsvert á síðustu vikum og dögum. |
09:22 |
28. apr. 2020 |
Heimsóknir leyfðar á HSN á Blönduósi með ákveðnum takmörkunum frá og með 4. maí nk.
Tilkynning frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heimsóknir verða leyfðar inn á Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi frá og með 4. maí næstkomandi með ákveðnum takmörkunum. Þó mikið hafi áunnist í baráttunni gegn COVID-19 erum við ekki komin í höfn og sýna þarf ítrustu varkárni og virða sóttvarnaráðstafanir í heimsóknum. Einnig er nauðsynlegt að takmarka þann fjölda sem kemur inn í heimilið á hverjum tíma. Vonir eru bundnar við að heimsóknir verði rýmkaðar enn frekar í júní 2020. Í fréttinni er bréf til aðstandenda. |
16:57 |
27. apr. 2020 |
Einstaklingum í sóttkví fjölgar
Samkvæmt nýjum tölum frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra fjölgar einstaklingum á svæðinu sem eru í sóttkví. Ástæðurnar eru sagðar af ýmsum orsökum, t.d. fólk sem kemur erlendis frá, tilflutningur á milli svæða og svo framvegis. Alls eru 13 einstaklingar í sóttkví, flestir í Skagafirði. Engin fjölgun hefur orðið á staðfestum smitum. Höldum áfram vöku okkar og munum að við erum öll almannavarnir, segir í tilkynningu frá aðgerðastjórninni. |
13:51 |
27. apr. 2020 |
Hróplegt ósamræmi í úthlutun úr framkvæmdasjóði
Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í dag var fjallað um styrki Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, sem er í vörslu Ferðamálastofu. Rætt var við Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóra Blönduósbæjar, sem benti á hróplegt ósamræmi við úthlutun styrkjanna. Veittir voru styrkir til 33 verkefna um land allt vegna ársins 2020 og nam heildarfjárhæðin rúmlega 500 milljónum króna. Einungis 34 milljónir runnu til verkefna á Norðurlandi vestra. |