09:35 |
27. ág. 2021 |
Opið hús í Textílmiðstöðinni 27.-29. ágúst
Frá Textílmiðstöð Íslands
Helgin verður viðburðarík í Textílmiðstöðinni á Blönduósi. Við bjóðum ykkur velkomin í opið hús í TextílLabinu að Þverbraut 1 föstudag (27.8), laugardag (28.8) og sunnudag (29.8). Á staðnum eru geislaskeri, vínyl prentari, útsaumsvél, nálaþæfingarvél og stafrænn vefstóll. Smiðjustjóri mun aðstoða við notkun á smiðjunni. Aðgengi er frítt, en greitt fyrir það efni sem notað er. |
09:33 |
27. ág. 2021 |
Miðfjarðará fjórða aflamesta laxveiðiá landsins
Nú er liðið á seinni hluta laxveiðisumarsins og veiðitölur eftir því. Eins og margoft hefur komið fram í laxveiðifréttum Húnahornsins hefur veiðin verið dræm í sumar og það hefur lítið breyst síðustu vikuna. Miðfjarðará stendur sig best af helstu laxveiðiánum í Húnavatnssýslum. Alls veiddust þar 94 laxar síðustu vikuna og er áin komin í 1.217 laxa. Í Víðidalsá veiddust rúmlega 30 laxar síðustu vikuna og stendur áin í 492 veiddum löxum. |
12:20 |
26. ág. 2021 |
Loftslagsbúskapur á Fjarðarhorni í Hrútafirði
Fyrsta vottaða kolefnisbindingarverkefninu sem íslenskt fyrirtæki ræðst í hefur verið valinn staður á Fjarðarhorni í Hrútafirði. Þar verða næstu 50 árin bundin um 90.000 tonn af koltvísýringi í nýjum skógi sem ræktaður verður á 250 hekturum lands. Ræktun og umhirða skógarins skapar atvinnutækifæri í byggðarlaginu auk þess sem tún verða áfram nýtt til landbúnaðar og hús á jörðinni fyrir vaxandi hóp starfsfólks í Staðarskála. |
12:16 |
26. ág. 2021 |
Skoðanakönnun um sameiningu sveitarfélaga samhliða alþingiskosningum
Samhliða alþingiskosningunum 25. september næstkomandi geta íbúar Húnavatnshrepps, sem náð hafa 18. ára aldri þann dag og hafa kjörgengi í sveitarstjórnarkosningum, tekið þátt í skoðanakönnun um hvort fara eigi í sameiningarviðræður við Blönduósbæ. Fyrr í sumar óskaði Blönduósbær eftir formlegum sameiningarviðræðum og tók sveitarstjórn Húnavatnshrepps jákvætt í þá ósk með þeim fyrirfara um að gerði yrði skoðanakönnun fyrir íbúa til að umboð sveitarstjórnar væri ljós. |
11:45 |
26. ág. 2021 |
Menningarminjadagar Evrópu í Byggðasafninu
Byggðasafnið á Reykjum í Hrútafirði tekur þátt í evrópskum menningarminjadögum í næstu viku. Áhersla þeirra er að kynna hverfandi menningararf og stuðla þannig að vitund og virðingu fyrir hefðum og kunnáttu sem brátt heyra sögunni til. |
21:25 |
24. ág. 2021 |
Með grjót í vösunum - bókarkynning
Ævisaga Sveins Torfa Þórólfssonar (1945-2016) verkfræðings frá Skagaströnd kemur út laugardaginn 28. ágúst næstkomandi. Bókin verður kynnt og frumsýnd almenningi í Gamla kaupfélagshúsinu á Skagaströnd klukkan 15 þann dag. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm og reglur um sóttvarnir leyfa. Kaffi og kleinur verða í boði útgefenda. |
20:48 |
24. ág. 2021 |
Alþjóðleg brúðulistahátíð á Hvammstanga
Alþjóðlega brúðulistahátíðin Hvammstangi International Puppetry Festival eða HIP Fest fer fram í annað sinn dagana 8.-10. október næstkomandi. Á hátíðina koma á þriðja tug erlendra listamanna frá átta löndum sem bjóða upp á fjölda sýninga og vinnusmiðja, auk fyrirlestra og kvikmyndasýninga með umræðum við listamennina á eftir. |
14:28 |
23. ág. 2021 |
Auglýst eftir styrkumsóknum
Félagasamtök og einstaklingar í Húnaþingi vestra sem hafa hug á að sækja um styrki frá sveitarfélaginu til einstakra verkefna á næsta ári geta nú fyllt út þar til gert eyðublað og sent ásamt fylgigöngum til skrifstofu sveitarfélagsins að Hvammstangabraut 5 Hvammstanga eða á netfangið skrifstofa@hunathing.is. Frestur er til 10. september næstkomandi. |
14:24 |
23. ág. 2021 |
Fyrirlestraröð Selasetursins hefst í kvöld
Í vetur ætlar Selasetur Íslands að halda áfram með opna fyrirlestraröð þar sem fræðimenn úr ýmsum áttum koma og halda fyrirlestra. Vísindamenn setursins í sumar, þær Bronte Harris frá Englandi og Laura Redaelli frá Ítlaíu, ríða á vaðið með fyrirlestra í kvöld í Selasetrinu á Hvammstanga klukkan 20. Fyrirlestrarnir verða á ensku og verður boðið upp á kaffi og konfekt. |
09:10 |
23. ág. 2021 |
Samherjar lagðir í síðasta leik riðlakeppninnar
Kormákur/Hvöt mætti Samherjum í Hrafnagili í Eyjafirði á laugardaginn þegar síðasta umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, 4. deild D-riðli var leikin. Fyrir leikinn var liðið búið að tryggja sig inn í úrslitakeppni 4. deildar og Samherjar áttu enga möguleika á að ná í slíkt sæti. Leikurinn einkenndist af því og var fátt um fína drætti og aðeins eitt mark skorað í leiknum. |
12:45 |
20. ág. 2021 |
Skólasetning Húnavallaskóla
Skólasetning grunnskóladeildar Húnavallaskóla verður þriðjudaginn 24. ágúst klukkan 13. Skólastjóri mun fara yfir upphaf skólaársins og þær breytingar sem verða á hópi starfsmanna og skipulagi skólaársins. Að því loknu taka umsjónakennarar á móti sínum nemendum í kennslustofum, afhenda stundarskrár og fara yfir fyrirkomulag kennslu. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikdaginn 25. ágúst. |
12:35 |
20. ág. 2021 |
Sálfræðiþjónusta barna efld
Félags- og skólaþjónusta Austur-Húnavatnssýslu og Sensus slf. undirrituðu nýverið tveggja ára samning um sálfræðiþjónustu í leik- og grunnskólum sýslunnar og aukið samstarfi við barnavernd á svæðinu. Ester Ingvarsdóttir hefur starfað fyrir Félags- og skólaþjónustu A-Hún. síðastliðinn sex ár og hefur haft fasta viðveru í hverjum mánuði. Markmiðið með nýjum samningi er að efla sálfræðiþjónustu á svæðinu. |
09:42 |
20. ág. 2021 |
Frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra
Vegna breytinga á skrifstofunni á Blönduósi er ekki hægt að afgreiða vegabréf í dag, föstudaginn 20. ágúst. Opið er á skrifstofu embættisins á Sauðárkróki. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. |
11:56 |
19. ág. 2021 |
Grunnverð hækkar um 5,5 prósent
Norðlenska og SAH Afurðir hafa gefið út sameiginlega afurðaverðskrá fyrir komandi sláturtíð en félögin hafa fengið heimild til að sameinast, eins og fram hefur komið í fréttum. Grunnverð í nýju verðskránni er 5,5% hærra að meðaltali fyrir dilka en grunnverð í verðskrá Norðlenska var á síðasta ári. |
11:37 |
19. ág. 2021 |
Húnvetnsku laxveiðiárnar nálgast 3000 laxa
Laxveiði í sjö helstu laxveiðiánum í Húnavatnssýslum er komin í 2.919 laxa sem af er sumri. Miðfjarðará er eina áin sem náð hefur 1.000 laxa markinu en veiðst hafa 1.123 laxar í ánni og gaf síðasta vika 134 laxa. Næst mest hefur veiðst í Víðidalsá eða 461 lax og gaf síðasta vika 50 laxa. Veiðst hafa 444 laxar í Laxá á Ásum og þar af 26 síðustu vikuna. |