Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Þriðjudagur, 23. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 20:14 0 0°C
Laxárdalsh. 20:14 0 0°C
Vatnsskarð 20:14 0 0°C
Þverárfjall 20:14 0 0°C
Kjalarnes 20:14 0 0°C
Hafnarfjall 20:14 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 31-45 46-60 af 80 Næstu 61-75
KlukkanDagsetningFrétt
23:46 25. sep. 2021   Meirihluti íbúa Húnavatnshrepps vill sameiningarviðræður við Blönduósbæ
Meirihluti íbúa í Húnavatnshreppi vill að sameiningarviðræður fari fram á milli Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar. Samhliða alþingiskosningunum í dag fór fram skoðanakönnun á vegum sveitarstjórnar Húnavatnshrepps. Spurt var: Vilt þú að Húnavatnshreppur fari í sameiningarviðræður við Blönduósbæ. Alls tóku 227 íbúar þátt í skoðanakönnuninni eða um 75% þeirra sem voru á kjörskrá og sögðu 147 JÁ eða 65% og 76 sögðu NEI eða 34%.
09:40 25. sep. 2021   Alþingiskosningar 2021
Hvar og hvenær á að kjósa?
Í dag verður kosið til Alþingis á Íslandi. Tíu stjórnmálaflokkar bjóða fram lista í Norðvesturkjördæmi og eru 160 einstaklingar í framboði. Nöfn einstaklinga sem eru með lögheimili í Húnavatnssýslum, eru alls 20, og þar af eru ellefu með lögheimili á Blönduósi, fimm á Skagaströnd og þrír í Húnaþingi vestra. Kjörstaðir í sýslunum eru fimm, einn í hverju sveitarfélagi, og opna þeir flestir klukkan 10.
09:26 24. sep. 2021   Kosningakaffi VG á Blönduósi á kjördag
Af gömlum og góðum sið verður Vinstrihreyfingin grænt framboð með kosningakaffi á Blönduósi á morgun í sal Stéttarfélagsins Samstöðu á Þverbraut 1 frá klukkan 13-17. Frambjóðendur hreyfingarinnar í Norðvesturkjördæmi, þau Þóra Margrét Lúthersdóttir, Ólafur Halldórsson og Valdimar Guðmannsson verða á staðnum. Allir eru velkomnir.
15:27 23. sep. 2021   Samvinna um læsi
Tilkynning frá Blönduskóla
Fyrirlestur um læsi, lestrarnám og lestrarþjálfun barna verður haldinn þriðjudaginn 28. september í matsal Blönduskóla kl. 16:30. Fyrirlesari er Magdalena Berglind Björnsdóttir kennari og áhugamaður um læsi og lestrarnám.
12:25 23. sep. 2021   Kjörfundur vegna kjörs til Alþingis laugardaginn 25. september 2021
Tilkynning frá kjörstjórn Blönduósbæjar
Kjörstaður á Blönduósi verður í norðursal Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi. Gengið inn frá Melabraut. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og honum lýkur kl. 22:00.
12:09 23. sep. 2021   Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kosninga til Alþingis laugardaginn 25. september 2021
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra sendir frá sér tilkynningu vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar vegna kosninga til Alþingis laugardaginn 25. september 2021. Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins.
09:47 23. sep. 2021   Endurbygging Ásgarðs í Skagastrandarhöfn
Nauðsynlegt er að ráðast í endurbætur á Ásgarðsbryggju í Skagastrandarhöfn til þess að hún geti áfram þjónað sínum tilgangi og er verkefnið ærið, að því er fram kemur á vef Skagastrandar. Við bryggjuna hafa legið bátar af mismunandi stærðum í gegnum árin og hefur hún þjónað mikilvægu hlutverki fyrir hafnarstarfsemi á Skagaströnd. Í dag er ástand Ásgarðs ekki eins og best verður á kosið.
20:07 22. sep. 2021   Drottningin Dagrún HU 121 er 50 ára
Dagrún HU 121 rann úr slipp í gær en árið 1971 var báturinn fyrst sjósettur úr Bátasmiðju Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd og er því 50 ára um þessar mundir. Fyrstu fjögur árin hét báturinn Guðmundur Þór og var gerður út frá Skagaströnd. Lýður Hallbertsson og kona hans Guðbjörg Eiríksdóttir keyptu svo bátinn árið 1975 ásamt Karli Hallbertssyni og gáfu honum nafnið Dagrún. Lýður og Guðbjörg keyptu nokkrum árum síðar hluta Karls og hafa þau gert Dagrúnu út síðan.
18:12 22. sep. 2021   Barnabær auglýsir eftir starfsmanni
Leikskólinn Barnabær á Blönduósi auglýsir eftir leikskólakennara eða leiðbeinanda til afleysinga á deildum. Um er að ræða tímabundna ráðningu í 100% stöðu frá og með 15 október. Leikskólinn Barnabær er 5 deilda leikskóli með börn á aldrinum 8 mánaða til 5 ára. Leikskólinn starfar eftir kenningum John Dewee að læra í gegnum leik. Lögð er áhersla á mál og læsi stefnu í skólanum og hefur hann nýlega lokið við þróunarverkefni því tengdu.
12:17 22. sep. 2021   Fjöldi umsókna í Vaxtarrými
Fjölmargar umsóknir bárust í viðskiptahraðalinn Vaxtarrými en umsóknarfrestur rann út 20. september síðastliðinn. Um er að ræða átta vikna viðskiptahraðall fyrir frumkvöðla, ný fyrirtæki og nýsköpunarverkefna innan starfandi fyrirtækja á Norðurlandi. Áhersla hraðalsins er sjálfbærni, matur, vatn og orka. Fimmtungur umsókna koma frá Austur-Húnavatnssýslu en flestar koma þær frá Norðurlandi eystra.
10:38 22. sep. 2021   Haustið minnir á sig
Haustið er farið að minna á sig og í nótt hvítnað vel í fjöll í Húnavatnssýslum. Hálka eða hálkublettir eru á helstu fjallvegum svo eru vegfarendur beðnir um að fara varlega. Í dag eru haustjafndægur en þá er sólin beint yfir miðbaug og dagur og nótt eru jafnlöng um alla jörð. Eftir haustjafndægur tekur svo nóttina að lengja og daginn að stytta. Dagurinn í dag markar því upphaf hausts á norðurhveli jarðar.
09:00 22. sep. 2021   Frá Þingeyraklaustursprestakalli
Fjölskyldumessa og Kveðjumessa í Blönduóskirkju sunnudaginn 26. september 2021 klukkan 17. Í messunni kveður sr. Úrsúla Árnadóttir söfnuðinn en hún hefur þjónað í prestakallinu síðastliðin tvö ár í leyfi sr. Sveinbjörns R. Einarssonar. Kór Blönduóskirkju syngur undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner kórstjóra og organista.
09:38 21. sep. 2021   Gul veðurviðvörun í dag
Lægð gengur nú yfir landið með roki og rigningu og hafa verið gefnar út gular og appelsínugular veðurviðvaranir, misjafnt eftir landshlutum. Gul veðurviðvörun er í gildi á Norðurlandi vestra í dag en spáð er norðaustan 15-23 m/s með snörpum vindhviðum við fjöll. Talsverð rigning fylgir þessu og má búast við slyddu á fjallvegum. Varasamt ferðaveður.
15:15 20. sep. 2021   Bók um þróun byggðar á Hvammstanga
Út er komin bókin Hús og híbýli á Hvammstanga: Húsaskrá 1989-1972 eftir Þórð Skúlason. Í bókinni rekur Þórður þróun byggðar á Hvammstanga frá 1898 til 1972. Þórður er gjörkunnugur byggð og mannlífi á þessum gamla verslunarstað, enda borinn þar og barnfæddur. Hann hefur víða leitað fanga, bæði í opinberum gögnum og óbirtum heimildum, en þó ekki síst með samtölum við eldri og yngri Hvammstangabúa.
14:08 20. sep. 2021   Gönguleiðir á stafrænu formi nálgast 100
Alls hafa 94 gönguleiðir á Norðurlandi vestra verið hnitsettar og skráðar stafrænt og er hægt að finna þær á vefsíðunni Wikiloc. Þá eru leiðirnar einnig aðgengilegar á yfirlitskorti á vefsjá Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Verkefnið hófst í fyrrasumar en þá voru um 30 gönguleiðir skráðar og í sumar hafa rúmlega 60 leiðir bæst við. Verkefnið var skilgreint eitt af átaksverkefnum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru og sem slíkt fjármagnað með sérframlagi stjórnvalda í gegnum Uppbyggingasjóð Sóknaráætlunar Norðurlands vestra.
Fyrri 31-45 1 2 3 4 5 6 Næstu 61-75
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið