09:39 |
05. nóv. 2021 |
Lélegt GSM samband á þriðjungi sveitabæja
Slæmt farsímasamband er á allt að þriðjungi sveitabæja á Norðurlandi vestra. Þetta sýnir könnun á vegum Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem hefur skorað á stjórnvöld að aftengja ekki síma í gegnum koparlínur fyrr en almennilegt GSM samband er komið á svæðið. Rætt var við Unni Valborgu Hilmarsdóttur, framkvæmdastjóra SSNV í Ríkisútvarpinu á dögunum um málið. |
14:49 |
04. nóv. 2021 |
Menntabúðir í Höfðaskóla
Nemendur í Höfðaskóla á Skagaströnd héldu menntabúðir á þriðjudaginn fyrir gesti skólans. Í þeim miðluðu nemendur í 1.-10. bekk hugmyndum sínum og reynslu með því að sýna, sjá og ræða saman. Á vef Höfðaskóla kemur fram að mæting í menntabúðirnar hafi verið frábær og að stuðningur og áhugi á skólastarfinu skipti alla máli. |
09:16 |
04. nóv. 2021 |
Vegir á Norðurlandi vestan Eyjafjarðar
Húnvetningurinn Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri, flytur í dag á opinn málstofu í HA erindið Vegir á Norðurlandi vestan Eyjafjarðar: Geta Blönduós, Skagaströnd og Sauðárkrókur orðið eitt atvinnusvæði? Í erindinu verða möguleikar á betri vegum milli bæjanna Blönduóss, Skagastrandar og Sauðárkróks skoðaðir. |
15:57 |
03. nóv. 2021 |
Íbúum Blönduóss fækkar
Íbúum Blönduóss hefur fækkað um 27 frá tímabilinu 1. desember 2020 til 1. nóvember síðastliðinn eða um 2,8%. Íbúum í Húnavatnshreppi hefur fjölgað um 14 á sama tímabili eða um 3,8% og á Skagaströnd hefur fjölgað um tvo íbúa eða um 0,4%. Íbúum í Húnaþingi vestra hefur fjölgað um 11 eða 0,9% en það fækkar um einn íbúa í Skagabyggð. |
10:10 |
02. nóv. 2021 |
Verkís opnar starfsstöð á Hvammstanga
Verkfræðistofan Verkís opnaði starfsstöð á Hvammstanga í september með ráðningu Þóreyjar Eddu Elísdóttur umhverfisverkfræðings. Starfsstöðin er sú ellefta sem Verkís opnar á landsbyggðinni en þess má geta að í mars á þessu ári var starfsstöð opnuð á Blönduósi. Í síðustu viku styrkti Verkís starfsemi sína á Norðurlandi enn frekar með undirskrift viljayfirlýsingar við Ráðbarð sf. um að nýta slagkrafta hvors fyrirtækis fyrir sig til jákvæðs þjónustuframboðs á svæðinu með samstarfi. |
20:11 |
01. nóv. 2021 |
Frítt í sund í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi dagana 1. til 5. nóvember
Þarf einungis að synda 50 metra til að fá frítt
Í tilefni af landsátaki í sundi dagana 1.-28. nóvember n.k. ætlar Blönduósbær að bjóða í sund dagana 1.-5. nóvember með því skilyrði að synda lámark 50 metra. |
16:15 |
01. nóv. 2021 |
Íþróttamiðstöðin auglýsir eftir starfsmanni
Íþróttamiðstöðin á Blönduósi óskar eftir að ráða karlmann í 20% - 40% starfshlutfall og afleysingar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. |
16:12 |
01. nóv. 2021 |
Viðburðadagatal um aðventuna
Blönduósbær ætlar að gefa út viðburðadagatal með dagskrá flestra þjónustuaðila, kirkjunnar, félaga, safna og skóla auk upplýsinga um tónleika, jólamarkaði og fleira sem fylgir aðventunni. Fyrirtæki, stofnanir, félög og einstaklingar sem standa fyrir viðburðum og þjónustu á aðventunni eru hvött til að senda inn upplýsingar. Viðburðadagatalinu verður dreift á öll heimili og fyrirtæki á Blönduósi og sveitum í kring. |
15:26 |
29. okt. 2021 |
Fyrirlestrar í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi
Haldnir verða tveir áhugaverðir fyrirlestrar í Heimilisiðnaðarsafninu, laugardaginn 30. október klukkan 14. Jón Torfason flytur fyrirlesturinn Saga af sulli og er þar rakin saga ungs manns frá ofanverðri 19. öld sem veikist af sullaveiki. Fyrirlesturinn byggir á rannsókn þar sem fetað var í slóð hins unga manns. Sigríður Sigurðardóttir, fyrrum safnvörður Byggðasafnsins í Glaumbæ, flytur fyrirlestur um Þrif í torfbæjum. |
13:45 |
29. okt. 2021 |
Stíflan við Laxárvatnsvirkjun þarfnast viðgerðar
Steypuskemmdir eru í vegg Laxárvatnsvirkjunar við Laxá á Ásum og hefur RARIK óskað eftir heimild frá Húnavatnshrepps til viðgerða á stíflunni. Að mati RARIK er nauðsynlegt að þétta stífluna og styrkja og verður það gert með því að klæða hana að innan með dúk og fylla þar að með möl og kjarnaefni. Að framan verður stíflan styrkt með grófum kjarna og grjóti. |
12:09 |
29. okt. 2021 |
Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2021
Veiðitímabil rjúpu verður frá 1. - 30. nóvember í ár. Heimilt er að veiða fimm daga í viku, frá föstudegi til þriðjudags, en eins og síðustu ár er veiðibann á miðvikudögum og fimmtudögum. Sú breyting er þó gerð á að ekki verður heimilt að hefja leit eða veiði á rjúpu fyrr en klukka 12 þá daga sem heimilt er að veiða og skal veiði eingöngu standa á meðan birtu nýtur. |
11:29 |
29. okt. 2021 |
Samstarf um nýja slökkvistöð ekki verið á jafnréttisgrundvelli
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps finnst að samstarf Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps í Byggðasamlagi um brunavarnir hafi ekki verið á jafnréttisgrundvelli er varðar framgang uppbyggingar nýrrar slökkvistöðvar á Blönduósi. Þetta kemur fram í bókun sveitarstjórnarfundar þann 27. október síðastliðinn. |
09:48 |
29. okt. 2021 |
Skýrsla um stefnumörkun ferðaþjónustu í Húnavatnshreppi
Á sveitarstjórnarfundi Húnavatnshrepps í vikunni var lögð fram skýrsla vegna stefnumörkunar ferðaþjónustu í sveitarfélaginu. Skýrslan var unnin í samstarfi við Björn H. Reynisson og í henni eru margar áhugaverðar tillögur eins og uppbygging á útsýnisstað á Þrándarhlíðarfjalli, lýsing og bætt aðgengi að Hvammsfossi, uppbygging við Gullstein, útsýnispallur við Auðkúlurétt og gönguleið meðfram ströndinni frá Blönduósi að Þingeyrum og þaðan að Hvítserk. |
09:20 |
28. okt. 2021 |
Fundur eldri borgara vel sóttur
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi
Fundur eldri borgara sem haldinn var í Félagsheimilinu á Blönduósi var vel sóttur og skemmtilegur. Formaður landssambands eldri borgara, Helgi Pétursson, var gestur fundarins og sagði hann frá starfi sambandsins og áhersluatriðunum fimm sem samþykkt voru á Landsfundi LEB síðastliðið vor, og áður hafa verið kynnt. |
09:17 |
28. okt. 2021 |
Aðalfundur Leikfélags Blönduóss
Frá stjórn LB
Aðalfundur Leikfélags Blönduóss verður haldinn fimmtudaginn, 4. nóvember 2021 klukkan 20:00 í Félagsheimilinu á Blönduósi. Hvetjum alla áhugasama um menningarmál að mæta til skrafs og ráðagerða. Það er er spennandi leikár í vændum og allir geta lagt hönd á plóg. |