22:31 |
29. des. 2021 |
Dagbjört Dögg íþróttamaður USVH 2021
Dagbjört Dögg Karlsdóttir körfuknattleikskona hefur verið kjörin Íþróttamaður Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga árið 2021. Dagbjört Dögg var valin varnarmaður ársins í úrvalsdeild kvenna í vor og er byrjunarliðsmaður í A landsliði Íslands. Liðið hennar Valur varð Íslands- og deildarmeistari á síðasta tímabili. |
22:23 |
29. des. 2021 |
Tuttugu og þrír í einangrun á Norðurlandi vestra vegna COVID-19
Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra sendi frá sér tilkynningu í dag og birti nýjustu töfluna yfir kórónuveirusmit í landshlutanum. Samkvæmt henni eru 23 í einangrun og 39 í sóttkví vegna COVID-19. Aðgerðastjórnin minnir sérstaklega á handþvott, sprittun, fjöldatakmarkanir og nálgunarregluna og biður fólk að forðast hópamyndun. |
19:48 |
29. des. 2021 |
Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga í vetur
Veturinn 2022 býður Hestamannafélagið Neisti upp á eftirfarandi námskeið fyrir börn og unglinga í reiðhöllinni Arnargerði: Almennt reiðnámskeið fyrir 8 ára og eldri, almennt reiðnámskeið fyrir 7 ára og yngri og knapamerki 1, 2 og 3. Námskeiðin byrja í janúar, tímasetningar og hópaskiptingar verða auglýstar síðar. |
19:05 |
29. des. 2021 |
Skattabreytingar um áramót
Um áramót taka gildi ýmsar skattabreytingar sem snerta bæði heimili og fyrirtæki í landinu. Sem dæmi þá tekur gildi nýtt viðmið um þróun þrepa- og skattleysismarka tekjuskatts einstaklinga. Breytingin er síðasti áfangi skattkerfisbreytinga fyrir einstaklinga síðustu ár, þar sem tekjuskattur hefur lækkað, mest hjá tekjulægri hópum. Þrepa- og skattleysismörk munu þá þróast í takt við vísitölu neysluverðs að viðbættu mati á langtímaframleiðni. |
14:01 |
29. des. 2021 |
Flugeldasala Strandar og Fram
Flugeldasala Björgunarsveitarinnar Strandar og Ungmennafélagsins Fram á Skagaströnd opnaði í gær en hún er á Oddagötu 4, í húsnæði Rauðakrossins. Engin blysför og brenna verður í ár vegna gildandi samkomutakmarkana. Flugeldasýningin verður með öðru sniði vegna sömu ástæðna en hún hefst klukkan 21:30 á gamlárskvöld. |
12:32 |
28. des. 2021 |
Flugeldamarkaður Blöndu opnar í dag
Flugeldamarkaður Björgunarfélagsins Blöndu opnar í dag klukkan 16 en hann er til húsa á Hafnarbraut 6 á Blönduósi. Fólk er beðið um að gæta vel að smitvörnum og grímuskylda er á sölustaðnum. Í tilkynningu frá Blöndu segir að félagið standi nú í sinni stærstu fjárfestingu frá stofnun. Í vor hafi verið skrifað undir kaup á nýju húsnæði fyrir starfsemina og fljótlega á nýju ári fæst það afhent. |
10:33 |
28. des. 2021 |
Feykir velur mann ársins á Norðurlandi vestra
Eins og undanfarin ár stendur héraðsfréttamiðillinn Feykir fyrir kjöri á manni ársins á Norðurlandi vestra. Íbúum á svæðinu og öðrum lesendum Feykis gefst kostur á að velja úr hópi þeirra sem tilnefndir voru af lesendum. Í þetta skiptið bárust sjö tilnefningar sem teknar voru til greina, þarf af er einn Blönduósingur, Bóthildur Halldórsdóttir. |
10:01 |
28. des. 2021 |
Fékk bol með áletruninni Blönduós sefur aldrei
Á vef Feykis er skemmtileg frétt um Valdimar okkar Guðmannsson en hann er mjög ötull talsmaður Blönduóss og allt það sem húnvetnskt er. Hefur hann óspart notað Facebook til að segja frá því góða og skemmtilega sem fram fer í heimabæ sínum. Oftar er en ekki endar Valli, eins og hann er oftast kallaður, á orðunum Blönduós sefur aldrei. |
09:36 |
28. des. 2021 |
Gul veðurviðvörun í dag
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs á Ströndum og Norðurlandi vestra í dag. Spáð er norðaustan 10-18 m/s og snjókomu. Snjóað hefur og mun snjóa í köldu lofti með léttum snjó sem fer auðveldlega af stað og takmarkar skyggni mikið. Skafrenningur og versnandi akstursskilyrði. |
12:05 |
27. des. 2021 |
Sextán í einangrun vegna COVID-19 á Norðurlandi vestra
Kórónuveirufaraldurinn geysar hér á landi sem aldrei fyrr en í gær greindust 664 smit innanlands, þar af voru 255 í sóttkví við greiningu. Um metfjölda smita er að ræða hér á landi. Samkvæmt covid.is eru nú 16 í einangrun á Norðurlandi vestra og 29 í sóttkví.
Í gær voru 3.505 sýni tekin, þar af 2.244 einkennasýni. Alls voru rúmlega 26% einkennasýna jákvæða en það er hæsta hlutfall jákvæðra einkannasýna síðan í júlí á síðasta ári. |
07:18 |
27. des. 2021 |
Heiðarbraut 12 er Jólahús ársins 2021 á Blönduósi
Valið af lesendum Húnahornsins
Lesendur Húnahornsins hafa valið Heiðarbraut 12 sem Jólahús ársins 2021 á Blönduósi. Húsið er ríkulega skreytt jólaljósum sem fangar hinn sanna jólaanda og sannarlega vel að viðurkenningunni komið. Eigendur hússins eru Heiðbrá Hrund Kristjánsdóttir og Kristján Jóhannsson. Þetta er í annað sinn sem hús við Heiðarbraut fær viðurkenningu í jólaleiknum og var það árið 2014. |
14:02 |
26. des. 2021 |
Íbúafundur um endurskoðun aðalskipulags
Sveitarstjórn Skagastrandar boðar til íbúafundar um endurskoðun Aðalskipulags Skagastrandar 2019-2035. Í auglýsingu á vef Skagastrandar kemur fram að síðustu mánuði hefur verið unnið að heildarendurskoðun Aðalskipulags Skagastrandar en megin ástæður endurskoðunarinna eru að skipulagstímabili núverandi aðalskipulags er lokið, ný ákvæði skipulaglaga og reglugerða hafa tekið gildi sem og landsskipulagsstefna hefur verið staðfest. |
13:19 |
26. des. 2021 |
Úthlutar 1,5 milljón í viðbótarframlag vegna þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandi vestra
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra samþykkti fyrir jól tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 10. desember síðastliðnum um úthlutun sérstaks viðbótarframlags á árinu 2021 vegna þjónustu við fatlað fólk. Nemur upphæð framlagsins 400 milljónum króna. Sveitarfélagið Skagafjörður fær rúma eina og hálfa milljón í málefnið fyrir Norðurland vestra. |
12:53 |
26. des. 2021 |
Flugeldasýning en engin brenna á Hvammstanga
Björgunarsveitin Húnar verður með sína árlegu flugeldasýningu á Hvammstanga á gamlárskvöld klukkan 21 en vegna samkomutakmarkana verður engin brenna. Flugeldasýningin er í boði einstaklinga og fyrirtækja á svæðinu. Skotið verður upp af norðurgarði Hvammstangahafnar og er mælst til að áhorfendur hópist ekki saman niður við höfn vegna veirufaraldursins, heldur haldi sig með sínu fólki vítt og breytt um svæðið. |
11:12 |
26. des. 2021 |
Þakkar- og jólakveðja frá HSN Blönduósi
Hjúkrunar- og sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Blönduósi þakkar Hollvinasamtökum HSN á Blönduósi kærlega fyrir fallegan jólaglaðning fyrir deildina. Og óskum öllum aðstandendum og íbúum á svæðinu gleðilega hátíð. |