09:00 |
22. sep. 2021 |
Frá Þingeyraklaustursprestakalli
Fjölskyldumessa og Kveðjumessa í Blönduóskirkju sunnudaginn 26. september 2021 klukkan 17. Í messunni kveður sr. Úrsúla Árnadóttir söfnuðinn en hún hefur þjónað í prestakallinu síðastliðin tvö ár í leyfi sr. Sveinbjörns R. Einarssonar. Kór Blönduóskirkju syngur undir stjórn Eyþórs Franzsonar Wechner kórstjóra og organista. |
09:38 |
21. sep. 2021 |
Gul veðurviðvörun í dag
Lægð gengur nú yfir landið með roki og rigningu og hafa verið gefnar út gular og appelsínugular veðurviðvaranir, misjafnt eftir landshlutum. Gul veðurviðvörun er í gildi á Norðurlandi vestra í dag en spáð er norðaustan 15-23 m/s með snörpum vindhviðum við fjöll. Talsverð rigning fylgir þessu og má búast við slyddu á fjallvegum. Varasamt ferðaveður. |
15:15 |
20. sep. 2021 |
Bók um þróun byggðar á Hvammstanga
Út er komin bókin Hús og híbýli á Hvammstanga: Húsaskrá 1989-1972 eftir Þórð Skúlason. Í bókinni rekur Þórður þróun byggðar á Hvammstanga frá 1898 til 1972. Þórður er gjörkunnugur byggð og mannlífi á þessum gamla verslunarstað, enda borinn þar og barnfæddur. Hann hefur víða leitað fanga, bæði í opinberum gögnum og óbirtum heimildum, en þó ekki síst með samtölum við eldri og yngri Hvammstangabúa. |
14:08 |
20. sep. 2021 |
Gönguleiðir á stafrænu formi nálgast 100
Alls hafa 94 gönguleiðir á Norðurlandi vestra verið hnitsettar og skráðar stafrænt og er hægt að finna þær á vefsíðunni Wikiloc. Þá eru leiðirnar einnig aðgengilegar á yfirlitskorti á vefsjá Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Verkefnið hófst í fyrrasumar en þá voru um 30 gönguleiðir skráðar og í sumar hafa rúmlega 60 leiðir bæst við. Verkefnið var skilgreint eitt af átaksverkefnum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru og sem slíkt fjármagnað með sérframlagi stjórnvalda í gegnum Uppbyggingasjóð Sóknaráætlunar Norðurlands vestra. |
11:45 |
18. sep. 2021 |
Laxveiðitímabilið vonbrigði
Laxveiðitímabilið er að renna sitt skeið þetta árið en flestar húnvetnskar laxveiðiár loka í þessum mánuði. Eins og margoft hefur komið fram í laxveiðifréttum Húnahornsins hefur verið rólegt yfir laxveiðinni í Húnavatnssýslum í sumar. Ágætis aflabrögð hafa þó verið í sumum ám í haust. Mest hefur veiðst í Miðfjarðará eða um 1.600 laxar, sem er svipuð tala og í fyrra. Í Víðidalsá hafa veiðst 630 laxar en lokatölur í fyrra voru 546 laxar. Þetta er í fyrsta skiptið sem veiðin í ánni nær ekki að fara yfir þúsund laxa fimm ár í röð. |
11:21 |
18. sep. 2021 |
Nýr starfsmaður hjá Textílmiðstöðinni
Tilkynning frá Textílmiðstöð Íslands
Nýr starfsmaður tekur til starfa hjá okkur sem verkefnisstjóri TextílLabs þann 1.október. Hún heitir Margrét Katrín, er Guttormsdóttir og flytur úr borginni hingað til okkar á Blönduós til að leggja okkur lið við uppbyggingu og þróun hjá Textílmiðstöðinni. |
10:56 |
17. sep. 2021 |
Biskupsbeygjan á Holtavörðuheiði er öll
Opnað var fyrir umferð á nýjum vegarkafla um Heiðarsporð á Holtavörðuheiði í júlí en þar með var kvödd varasöm beygja á Hringveginum sem í daglegu tali er kölluð Biskupsbeygja. Engum er söknuður að beygjunni sem var stórvarasöm og völd að ófáum slysum í gegnum árin, segir á vef Vegagerðarinnar. Verkið snérist um endurbyggingu á 1,8 kílómetra kafla á Hringvegi um Heiðarsporð í sunnanverðri Holtavörðuheiði þar sem hún tekur að lækka í átt að Norðurárdal. |
10:05 |
17. sep. 2021 |
Verkefni á Norðurlandi vestra fá styrki úr Matvælasjóði
Í vikunni var úthlutað 567 milljónum króna úr Matvælasjóði til 64 verkefna sem eiga uppsprettu vítt og breitt um landið. Hlutverk sjóðsins er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Þetta er í annað sinn sem úthlutað er úr sjóðnum og er hlutur Norðurlands vestra að þessu sinni 14% af heildarúthlutuninni. |
09:40 |
17. sep. 2021 |
Örkin komin á safnið á Reykjum
Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði barst góður gripur í fyrradag þegar Örkin var sett niður á safnasvæðið. Um er að ræða bát í eigu Guðjóns Kristinssonar frá Dröngum en smíðaður af föður hans Kristni Jónssyni. Sagt er frá þessu á vef Feykis. Þar er haft eftir Gunnari Rögnvaldssyni, starfsmanni safnsins, að báturinn hafi verið smíðaður í fjárhúsunum á Seljanesi og tilbúinn árið 1981. |
09:32 |
17. sep. 2021 |
Frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kosninga til Alþingis laugardaginn 25. september 2021. Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins sem hér segir: Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 09:00 til 15:00.
Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 09:00 til 15:00. Á öðrum stöðum fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla fram sem hér segir: |
16:09 |
16. sep. 2021 |
Fá rými til að vaxa á Norðurlandi
Fréttatilkynning
Fyrstu regnhlífarsamtök nýsköpunar á landsbyggðinni hafa verið sett á laggirnar undir nafninu Norðanátt. Um er að ræða samstarfsverkefni stuðningsaðila í nýsköpunarumhverfinu á Norðurlandi sem miða að því að skapa kraftmikið umhverfi í landsfjórðunginum fyrir nýsköpun. Að verkefninu koma Eimur, SSNV, SSNE, Nýsköpun í norðri og RATA. Norðanáttar leggur áherslu á nýsköpun á sviði sjálfbærni, orku, vatni og mat. |
14:48 |
16. sep. 2021 |
Framkvæmdir hefjast í hlíðum Spákonufells
Framkvæmdir eru hafnar í hlíðum Spákonufells, ofan þéttbýlisins á Skagaströnd, vegna skógræktarverkefnis Skógræktarinnar og One Tree Planted um gróðursetningu 180 þúsund trjáplantna. Verkefninu á að ljúka haustið 2024 og í kjölfarið vex upp skógur sem meðal annars nýtist íbúum Skagastrandar, nágrönnum þeirra og gestum til útivistar. |
14:36 |
16. sep. 2021 |
Skoðanakönnun um sameiningarviðræður Skagabyggðar og Skagastrandar
Sveitarstjórnir Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar hafa ákveðið að kanna hug íbúa til þess hvort hefja skuli sameiningarviðræður. Hafi íbúar áhuga á að sameiningarviðræður fari fram, er stefnt að því að kosið verði um sameiningu þeirra í byrjun árs 2022 með það fyrir augum að kosið yrði til nýrrar sveitarstjórnar í maí 2022. Áður en til þess kemur myndi fara fram almenn kynning og umræða eins og lög gera ráð fyrir við sameiningarviðræður. |
21:27 |
15. sep. 2021 |
Tilkynning frá sóknarnefndum Þingeyraklaustursprestakalls
Sóknarprestur sr. Sveinbjörn R. Einarsson hefur verið ráðinn prestur í Garðasókn og er því hættur störfum í Þingeyraklaustursprestakalli. Sóknarnefndirnar þakka sr. Sveinbirni langt og farsælt starf í þágu safnaðarins og óska honum og fjölskyldu hans velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Sr. Bryndís Valbjarnardóttir á Skagaströnd hefur verið settur sóknarprestur ótímabundið í hlutastarf til að þjóna íbúum prestakallsins. |
21:21 |
15. sep. 2021 |
Aðstaða til sýningahalds ótrygg í bíósal Félagsheimilisins á Blönduósi
Leikfélag Blönduóss skorar á Blönduósbæ að gera ráð fyrir endurnýjun á bíóstólum og lagfæringu á gólfi í bíósal Félagsheimilisins í fjárhagsáætlun ársins 2022 og bendir á að vel væri hægt að áfangaskipta verkefninu. Leikfélagið áréttar mikilvægi þess að ráðast í verkefnið fyrir menningarlíf og arfleið Blönduósinga. Þetta kemur fram í erindi sem leikfélagið hefur sent Blönduósbæ. |