07:14 |
25. jan. 2020 |
Kirkjustarfið 2020 hefst með messu
Kirkjustarf Skagastrandarprestakalls árið 2020 hefst með messu í Hólaneskirkju á morgun, sunnudaginn 26. janúar klukkan 11. Í henni sameinast kynslóðir í lofgjörð og bæn. Kór Hólaneskirkju syngur og sunnudagaskólabörnin og söfnuðurinn lætur heldur ekki sitt eftir liggja að taka undir í söng. Organistinn Hugrún Sif spilar undir og Bryndís prestur þjónar fyrir altari og predikar. Gengið verður til altaris. Eftir stundina er boðið upp á veitingar og föndur á kirkjuloftinu. |
07:10 |
25. jan. 2020 |
Hans klaufi á Blönduósi og Hvammstanga
Leikhópurinn Lotta sýnir leikritið Hans klaufi í Félagsheimilinu á Hvammstanga mánudaginn 27. janúar klukkan 17:30 og í Félagsheimilinu á Blönduósi þriðjudaginn 28. janúar næstkomandi klukkan 17:30. Leikhópurinn er landsmönnum að góðu kunnur en hann hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið. Hópurinn, sem hefur sérhæft sig í sýningum utandyra, er nú þriðja veturinn í röð komin inn í hlýjuna. Hópurinn setti Hans klaufa fyrst upp árið 2010, en nú tíu árum síðar, verður rykið dustað af þessu skemmtilega verki og fært nýjum og gömlum áhorfendum í glænýjum búningi. |
11:00 |
24. jan. 2020 |
Samantekt íbúafundar í Húnavatnshreppi
Húnavatnshreppur hélt íbúafund í Húnavallaskóla í lok nóvember á síðasta ári og sóttu um 40 íbúar hann. Jón Gíslason, oddviti sveitarfélagsins setti fundinn og fór yfir áherslur í fjárhagsáætlun fyrir árið 2020. Því næst fór fram vinnustofa sem ráðgjafar KPMG stýrðu. Á vef Húnavatnshrepps má finna samantekt frá fundinum sem inniheldur niðurstöður vinnustofunnar sem settar eru fram sem vinnugögn til frekari úrvinnslu. |
15:45 |
23. jan. 2020 |
Tilkynning frá Sundlauginni á Blönduósi
Vinsamlegast athugið.
Rarik hefur beðið okkur um að draga úr heitavatnsnotkun í sundlauginni vegna bilana hjá þeim. Við höfum brugðist við því með því að lækka hitastig í sundlaug, loka gufu og lækka hitastig í öðrum heita pottinum.
Stærri heiti potturinn verður áfram opin.
Við látum vita um leið og við getum opnað aftur.
Við biðjumst velvirðingar á óþægindunum sem þetta kann að valda. |
14:32 |
23. jan. 2020 |
Alþjóðleg brúðuhátíð á Hvammstanga í haust
Hvammstangi International Pubbet Festival er heiti á nýrri alþjóðlegri brúðuhátíð sem haldin verður á Hvammstanga 9.-12. október í haust. Handbendi brúðuleikhús hefur veg og vanda af hátíðinni og samkvæmt heimasíðu hennar verður boðið upp á þrjú sýningarpláss við höfnina og í miðbæ Hvammstanga. Verið er að velja þátttakendur á hátíðina sem koma víðsvegar að úr heiminum en einnig er leitað eftir áhugasömu brúðugerðar- og brúðusýningarfólki, sem og brúðuframleiðendum til að taka þátt. |
13:19 |
23. jan. 2020 |
Húnavatnshreppur frestaði afgreiðslu á kauptilboði Brunavarna A-Hún.
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps frestaði í gær afgreiðslu á kauptilboði og veitingu á einfaldri ábyrgð vegna fyrirhugaðra kaupa og lántöku Brunavarna Austur-Húnvetninga á fasteign að Efstubraut 2 á Blönduósi. Blönduósbær samþykkti kauptilboðið nýverið og að veita ábyrgð. Í fundargerð sveitarstjórnar Húnavatnshrepps frá því í gær kemur fram að núgildandi samþykktir Byggðasamlags um brunavarnir í Austur-Húnavatnssýslu sé ástæða frestunarinnar. Samkvæmt þeim sé stjórn Brunavarna A-Hún. ekki rétt kjörin og nauðsynlegt sé að breyta þeim áður en lengra er haldið. |
12:45 |
23. jan. 2020 |
Styrkur og þakkir fyrir ómetanlegt framlag
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps þakkar Björgunarfélaginu Blöndu fyrir ómetanlegt framlag í þágu sveitarfélagsins og íbúa þess og hefur ákveðið að styrkja félagið um 450 þúsund krónur. Þetta var ákveðið á fundi sveitarstjórnar í gær þar sem eftirfarandi bókun var samþykkt:
Á síðustu vikum hefur geisað ofsaveður á landinu sem hafði mikil áhrif á daglegt líf íbúa m.a. á Norðurlandi vestra og enn er ekki útséð með hversu miklum skaða veðrið hefur valdið. Það er ljóst að björgunarsveitirnar gegndu veigamiklu hlutverki og án þeirra getum við ekki verið......" |
10:45 |
23. jan. 2020 |
Skorað á stjórnvöld vegna Blönduósflugvallar
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps skorar á stjórnvöld að tryggja að Blönduósflugvöllur fái viðhald og aðbúnað sem nauðsynlegt er svo að hann geti sinnt hlutverki sínu sem sjúkraflugvöllur. Hér er í húfi tenging svæðisins við sjúkraflug sem er órjúfanlegur hluti af uppbyggingarhugmyndum um hátæknisjúkrahús á Landspítalareitnum, segir í bókun sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar í gær. |
10:07 |
23. jan. 2020 |
Garðfuglahelgi Fuglaverndar
Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar verður dagana 24.-27. janúar. Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma einhvern þessara daga. Athugendur velja hvaða dag þeir fylgjast með garðfuglunum eftir veðri og aðstæðum. Þátttakendur skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og þá er miðað við mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir. |
09:16 |
23. jan. 2020 |
Gulur dagur
Gul viðvörun er í gildi í dag á Norðurlandi vestra. Samkvæmt Veðurstofu Íslands er spáð hvassviðri eða stormi með vindhraða á bilinu 18-25 metrum á sekúndu. Búast má við talsverðum éljagangi með skafrenningi og lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Samgöngutruflanir og lokanir á vegum eru líklegar, einkum á fjallvegum. Samkvæmt Vegagerðinni er vegurinn um Vatnsskarð lokaður og einnig um Þverárfjall. |
12:10 |
22. jan. 2020 |
Skýrsla um kolefnisspor Norðurlands vestra
Út er komin skýrslan Kolefnisspor Norðurlands vestra sem unnin var af Stefáni Gíslasyni hjá Environice fyrir Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Hún er hluti af áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra árin 2018-2019. Í skýrslunni segir að langmesta losun gróðurhúsalofttegunda á Norðurlandi vestra komi frá framræstu landi eða tæp 90% enda sé svæðið eitt mesta landbúnaðarhérað landsins. Árangursríkasta leiðin til að draga úr losun gróðurhúsaloftegunda sé endurheimt votlendis á óræktuðum framræstum jarðvegi. |
10:23 |
22. jan. 2020 |
Auglýst eftir tilnefningum um framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra kalla eftir tilnefningum til framúrskarandi verkefna á Norðurlandi vestra á árinu 2019. Um er að ræða nýjung í starfinu en viðurkenningin verður framvegis veitt á úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra. Viðurkenningarnar eru veittar í tveimur flokkum; verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og verkefni á sviði menningar. |
10:20 |
22. jan. 2020 |
Styrkur vegna frístundakorts
Sveitarfélagið Skagaströnd vekur athygli á því á vef sínum að foreldrar barna með lögheimili á Skagaströnd eiga rétt á styrk fyrir hvert barn á grunnskólaaldri sem tekur þátt í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Frestur til þess að skila gögnum vegna frístundaþátttöku á síðasta ári er í síðasta lagi 31. janúar næstkomandi. Eftir það fellur rétturinn niður.
Sveitarfélagið hvetur foreldra til að nýta styrkinn áður en fresturinn rennur út. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu sveitarfélagsins. |
10:49 |
21. jan. 2020 |
Sveitarfélög á Norðurlandi vestra á móti frumvarpi um Hálendisþjóðgarð
Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra, Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur hafa sent sameiginlega umsögn við frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð inn í Samráðsgátt stjórnvalda. Sveitarfélögin eru landstór og liggja mörk þeirra á Langjökul, Hofsjökul og Kjöl og ná yfir víðáttumikil landsvæði innan miðhálendisins. Málefnið varðar sveitarfélögin og íbúa þess miklu og leggjast þau gegn framgangi frumvarpsins í núverandi mynd. |
15:34 |
20. jan. 2020 |
Stafræn leið til markaðar - Digi2Market
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra leitar að tíu fyrirtækjum til að taka þátt í Norðurslóðaverkefninu Digi2Market. Verkefnið snýst að mestu leyti um heildstæða stafræna tækni, 360 gráðu myndbönd, aukinn raunveruleika og sýndarveruleika og hvernig nýta megi þessa tækni í markaðssetningu. Markmið verkefnisins er að hjálpa litlum og meðalstórum fyrirtækjum á jaðarsvæðum að auka markaðshlutdeild sína með stafrænni tækni. |