Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 22:22 0 0°C
Laxárdalsh. 22:22 0 0°C
Vatnsskarð 22:22 0 0°C
Þverárfjall 22:22 0 0°C
Kjalarnes 22:22 0 0°C
Hafnarfjall 22:22 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
Fyrri 61-75 76-90 af 92 Næstu 91-92
KlukkanDagsetningFrétt
11:17 18. maí 2021   Kynningarbæklingur um sameiningartillögu
Kynningarbæklingi um sameiningartillöguna samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu er dreift í hvert hús í sýslunni þessa vikuna, í samstarfi við Feyki. Í Feyki eru einnig viðtöl og umfjöllun um verkefnið. Kosið verður um sameiningu Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar laugardaginn 5. júní 2021.
11:11 18. maí 2021   Fyrsti íbúafundurinn um sameiningu sveitarfélaga í A-Hún. er á Skagaströnd í kvöld
Í dag fer fram fyrsti íbúafundurinn þar sem tillaga samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu verður kynnt. Fundurinn fer fram í Fellsborg á Skagaströnd og hefst klukkan 20 í kvöld. Annar fundur verður haldinn á morgun í Félagsheimilinu á Blönduósi og hefst einnig klukkan 20. Íbúum í Austur-Húnavatnssýslu er frjálst að sækja fundi á þeim stöðum og tímasetningum sem þeim best henta.
11:26 17. maí 2021   Afhending verðlauna í Ullarþoni og formleg opnun TextílLabs
Það er stór vika framundan hjá Textílmiðstöð Íslands en hún stendur fyrir tveimur viðburðum tengdum HönnunarMars 2021; afhending verðlauna í Ullarþoni og formleg opnun TextílLabs á Blönduósi. Verðlaunin í Ullarþoninu verða afhent af Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, fimmtudaginn 20. maí klukkan 17 á svæði Textílfélagsins á Hafnartorgi. Formleg opnun TextílLabs verður á Blönduósi 21. maí klukkan 14.
11:14 17. maí 2021   Barnamenningarhátíð á Norðurlandi vestra
Barnamenningarhátíð verður haldin í fyrsta sinn á Norðurlandi vestra dagana 14.-24. október næstkomandi. Ýmis námskeið, vinnustofur og listviðburðir munu prýða dagskrá hátíðarinnar, sem hefur fengið nafnið Skrúnaskrall og fer hún fram víðs vegar í landshlutanum. Áhersla verður lögð á fjölbreytni í dagskrá og gott aðgengi.
11:01 17. maí 2021   Handbendi hlýtur Eyrarrósina 2021
Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins, var afhent í sautjánda sinn í gær við hátíðlega athöfn á Patreksfirði. Frú Eliza Reid forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar veitti verðlaunin. Handbendi brúðuleikhús á Hvammstanga hlýtur viðurkenninguna að þessu sinni og er það í fyrsta sinn sem Eyrarrósin fellur í skaut verkefnis á Norðurlandi vestra.
21:33 15. maí 2021   Sérstökum takmörkunum aflétt í Skagafirði
Á fundi aðgerðastjórnar almannavarna á Norðurlandi vestra fyrr í dag var tekin sú ákvörðun að óska ekki eftir því við heilbrigðisráðuneytið að framlengd verði sú reglugerð sem sett var fyrir sveitafélagið Skagafjörð og Akrahrepp, vegna hópsmits sem upp kom á svæðinu um og fyrir síðastliðna helgi. Jafnframt munu aðrar sóttvarnaraðgerðir sem aðgerðastjórn greip til og gilda til og með sunnudagsins 16. maí ekki verða framlengdar.
20:18 15. maí 2021   Grátlegt tap í fyrsta leik
Fyrsta umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, 4. deild D-riðill, hófst í dag á fjórum leikjum. Þar á meðal var leikur Léttis og Kormáks/Hvatar sem hófst klukkan 14 á Hertz vellinum í Reykjavík. Leikurinn var stórskemmtilegur og spennandi. Léttismenn mættu einbeittir til leiks og skoruðu fyrst tvö mörkin en Kormákur/Hvöt náði að minnka muninn áður en flautað var til hálfleiks með marki frá Akil de Freitas. Staðan 2-1 í hálfleik fyrir Létti.
23:06 14. maí 2021   Þriðjungur einstaklinga í nefndum og ráðum ríkisins séu búsettir á landsbyggðinni
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra telja mikilvægt að íbúar utan höfuðborgarsvæðisins hafi aðkomu að stjórnum, ráðum og nefndum hins opinbera. Á síðasta stjórnarfundi SSNV var lögð fram ályktun ársþings Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra um skipan hins opinbera í stjórnir og nefndir.
21:23 13. maí 2021   Ný húsakynni SSNV á Hvammstanga
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa flutt starfsemi skrifstofunnar á Hvammstanga í húsnæði Landsbankans, Höfðabraut 6. Á næstunni verður opnað skrifstofusetur í sama rými. Þar verður boðið upp á skrifstofuaðstöðu fyrir þá sem vinna störf án staðsetningar og aðra þá sem þurfa á vinnuaðstöðu að halda.
19:23 12. maí 2021   Óvissu stig vegna hættu á gróðureldum á Norðurlandi vestra
Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjórana á Norðurlandi Vestra hafa ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum. Þessi ákvörðun er byggð á því að lítið hefur rignt á svæðinu undanfarið og veðurspá næstu daga sýnir heldur ekki neina úrkomu af ráði.
09:16 12. maí 2021   Aðalfundur Krabbameinsfélags A-Hún.
Frá stjórn
Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 19. maí 2021 klukkan 18:00 á Tene Blönduósi. Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Félagsmenn hvattir til að mæta og nýir félagar velkomnir á fundinn. Við minnum á minningarkort Krabbameinsfélags A-Hún. Sem fást í Lyfju Blönduósi, Lyfju Skagaströnd og á síðu félagsins á www.krabb.is.
22:35 11. maí 2021   Boðað til íbúafunda um sameiningartillögu
Íbúafundir til kynningar á tillögu samstarfsnefndar um sameiningu Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar hafa verið boðaðir á næstu vikum. Kosið verður um tillöguna 5. júní næstkomandi. Fundirnir verða haldnir í öllum sveitarfélögunum en þeim verður einnig streymt og geta þátttakendur sent spurningar rafrænt til samstarfsnefndarinnar.
22:33 11. maí 2021   Fundað með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Oddvitar og sveitarstjórar sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu áttu fund með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nýverið til að fylgja eftir áherslum Húnvetninga sem ræddar hafa verið við þingflokka á Alþingi á undanförnum viku. Ráðherra voru kynnt áform um stofnun Umhverfisakademíu á Húnavöllum sem bjóði upp á nám í umhverfisfræðum og óskað eftir stuðningi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga við stofnun félagsins, að því er fram kemur á vefnum Húnvetningi.
22:21 11. maí 2021   Níu taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi
Níu frambjóðendur, fjórar konur og fimm karlar, taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi sem fram fer dagana 16. og 19. júní næstkomandi. Í prófkjörinu velja þeir sem taka þátt fjóra frambjóðendur. Einn frambjóðandi er úr Húnavatnssýslum en það er Magnús Magnússon sóknarprestur í Húnaþingi vestra.
22:15 11. maí 2021   Listi Samfylkingar í NV-kjördæmi ákveðinn
Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið framboðslista sinn fyrir komandi alþingiskosningar 25. september. Á auka kjördæmaþingi í mars var kosið í þrjú efstu sætin en uppstillingarnefnd sá um að stilla upp á listann frá fjórða sæti. Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar leiðir listann og í öðru sæti er Jónína Björg Magnúsdóttir.
Fyrri 61-75 1 2 3 4 5 6 7 Næstu 91-92
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið