Nýtt bætiefni sem dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda í nautgriparækt

Vistbót frá Líflandi!
Skref í átt að kolefnisjöfnun í nautgriparækt á Íslandi
 
Lífland kynnir Vistbót sem er fyrsta bætiefni sinnar tegundar á Íslandi.
 
Vistbótin er einstök að því leiti að hún dregur úr metanlosun að lágmarki um 10% og bætir nýtingu fóðurs um 6% hjá nautgripum.
 
Fóðursérfræðingar hjá Líflandi hafa unnið að því undanfarna mánuði að koma þessari nýjung á markaðinn í samstarfi við Trouw Nutrition, sem er alþjóðlegt rannsóknarfyrirtæki á sviði fóðurfræða og leiðandi á sínu sviði í heiminum.
 
Þessi góði árangur Vistbótar næst með samspili á milli náttúrulegra kjarnaolía og lifandi góðgerils þannig að bæði bændur og umhverfi njóta góðs af.
 
Til þess að útskýra þetta aðeins nánar þá er metan lofttegund sem myndast að hluta til vegna iðragerjunar í nautgripum og öðrum jórturdýrum, en oft er miðað við að metan sé um 28 sinnum virkari gróðurhúsalofttegund en koltvísýringur. Því er til mikils að vinna að reyna að minnka þessa losun eins og mögulegt er.
 
Með Vistbót hefur tekist að framleiða bætiefni sem er spor í rétta átt, því segja má að ef Vistbót væri gefin öllum nautgripum á Íslandi í eitt ár minnkar metanlosun nautgripa um 10% sem jafngildir kolefnisjöfnun um 7600 fólksbifreiða á ári, samkvæmt upplýsingum um meðalútblástur bensínknúinna fólksbifreiða frá Samgöngustofu og Orkusetri.
 
Í dag eru fjölmargar lausnir að ryðja sér til rúms sem eru til þess fallnar að minnka umhverfisáhrif og bæta nýtingu aðfanga í landbúnaði. Það er von okkar hjá Líflandi að Vistbót verði mikilvægt innlegg inn í þessa vegferð og liður í að gera íslenskan landbúnað enn grænni, bændum, neytendum og umhverfinu til hagsbóta.

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana