Fyrri mynd
Næsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Þriðjudagur, 16. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Ágúst 2019
SMÞMFL
28293031123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 19:43 0 0°C
Laxárdalsh. 19:43 0 0°C
Vatnsskarð 19:43 0 0°C
Þverárfjall 19:43 0 0°C
Kjalarnes 19:43 0 0°C
Hafnarfjall 19:43 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-15 af 15  
KlukkanDagsetningFrétt
14:48 16. apr. 2024   Háskólinn á Hólum hlýtur viðurkenningu fyrir framsækið og metnaðarfullt háskólastarf
Tilkynning frá Háskólanum á Hólum
Háskólinn á Hólum hlýtur Byggðagleraugu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fyrir framsækið og metnaðarfullt starf. Námið við háskólann er sértækt að því leyti að það byggir á traustum grunni fyrir mikilvægar framtíðar atvinnugreinar í samfélaginu þar á meðal íslenska hestinn, ferðaþjónustu í dreifbýli og fiskeldi, en skólinn hefur dregið til sín nemendur víðsvegar að úr heiminum. Í Háskólanum á Hólum er öflugt háskólastarf sem er í stöðugum vexti og nýsköpun.
05:32 16. apr. 2024   Íbúafundur á Skagaströnd
Sveitarfélagið Skagaströnd heldur íbúafund í Fellsborg miðvikudaginn 17. apríl klukkan 17:00. Á dagskrá eru fjölmörg mál eins og staðan á hafnarframkvæmdum, breyting á námsstofu, sorpmál, vinnuskóli, gjaldskrár og kjarasamningar.
05:27 16. apr. 2024   Nýr prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir sóknarprestur í Skagafjarðarprestakalli hefur verið skipuð prófastur í Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi. Hún tekur við af sr. Döllu Þórðardóttur á Miklabæ, sem lét af störfum 1. desember síðastliðinn. Frá þeim tíma hefur sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum gegnt prófstsstörfum.
05:17 16. apr. 2024   Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra verður haldinn miðvikudaginn 17. apríl 2024 klukkan 14:00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skýrsla og tillögur ferðanefndar og margt fleira. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri verður gestur fundarins. Kaffiveitingar að hætti kaffinefndar. Nýir félagar ávallt velkomnir.
05:13 16. apr. 2024   Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi
Frá stjórn
Aðalfundur Hollvinasamtaka heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi verður haldinn í fundarsal HSB föstudaginn 26. apríl næstkomandi klukkan 16.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
09:43 15. apr. 2024   Kormákur Hvöt úr leik í Mjólkurbikarnum
Knattspyrnulið Kormáks Hvatar mætti í Fífuna í Kópavogi í gær og spilaði gegn Augnabliki í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og vel fyrir gestina því Papa Diounkou Tecagne skoraði fyrsta mark leiksins á 9. mínútu. Heimamenn voru ekki lengi að svara með marki á 13. mínútu og öðru marki á 31. mínútu. Staðan í hálfleik 2-1 fyrir Augnablik. Í seinni hálfleik voru skoruð fjögur mörk, þrjú af heimamönnum og einn af gestunum, en það gerði Kristinn Bjarni Andrason. Leikurinn endaði því 5-2 fyrir Augnablik.
10:27 13. apr. 2024   Ársþing SSNV á Blönduósi heppnaðist vel
Þrítugasta og annað ársþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra var haldið á fimmtudaginn í Félagsheimilinu á Blönduósi og heppnaðist vel, að því er segir á vef samtakanna. Góð mæting var á þingið en á meðal gesta voru kjörnir fulltrúar á Norðurlandi vestra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjölbreytt og áhugaverð erindi voru flutt og ný samgöngu- og innviðaáætlun kynnt. Fram kemur á vef SSNV að frekari upplýsinga er að vænta um það sem fram fór á þinginu.
10:16 13. apr. 2024   Hvammstangavöllur verður Sjávarborgarvöllur
Stjórn meistaraflokks Kormáks Hvatar og veitingastaðurinn Sjávarborg á Hvammstanga hafa skrifað undir samning um að Hvammstangavöllur í Kirkjuhvammi beri nafn Sjávarborgar í sumar. Þetta er fyrsta sinn sem knattspyrnuvöllurinn ber nafn styrktaraðila, að því er segir á Aðdáendasíðu knattspyrnuliðsins Kormáks-Hvatar á Facebook. Í sumar fara fjórir meistaraflokksleikir fram á Sjávarborgarvellinum, auk leikja í yngri flokkum.
13:25 12. apr. 2024   Starf og rekstur björgunarfélagsins gengur vel
Aðalfundur Björgunarfélagsins Blöndu var haldinn í vikunni og að því er fram kemur á facebooksíðu félagsins var mæting félaga mjög góð, bæði hjá gömlum og nýjum. Þar segir að starf félagsins gangi mjög vel sem og rekstur þess. Húsnæði félagsins hafi tekið til sín mikinn tíma félaga en nú sé markmiðið að efla starfið enn frekar. Ný stjórn var kosin á fundinum og var þeim sem stigu til hliðar færðar þakkir fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
15:20 11. apr. 2024   Engin sameining 1. júní næstkomandi
Ekki liggur fyrir hvenær boðað verður til íbúakosninga um sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar en til stóð að hún færi fram í þessum mánuði og að sameining tæki gildi 1. júní næstkomandi, yrði hún samþykkt. Samstarfsnefnd um sameininguna, sem skipuð er átta fulltrúum, fjórum frá hvoru sveitarfélagi, hefur það verkefni að skipuleggja sameiningarvinnuna, m.a. að setja upp verk- og tímaáætlun og leggja fram sameiningartillögu.
14:48 11. apr. 2024   Grunnskólar fá gjafir frá velunnurum
Kvenfélagið Freyja færði nýverið Grunnskóla Húnaþings vestra hjartastuðtæki að gjöf. „Gjöfin mun vonandi aldrei koma að notum en við erum þó svo þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem er mikilvæg viðbót í öryggisbúnað skólans,“ segir á vef hans. Höfðaskóli á Skagaströnd fékk líka gjöf nýverið, frá foreldrafélagi skólans, en það voru tvær tifsagir, „sem munu koma sér vel líkt og styrkurinn til bókakaupa gerði í haust,“ segir á vef skólans.
13:57 11. apr. 2024   Lárus Ægir skákmeistari Skagastrandar 2024
Skákmót Skagastrandar 2024 fór fram í síðasta mánuði en ekki hefur verið keppt um titilinn skákmeistari Skagastrandar í meira en áratug. Átta skákmenn tóku þátt í mótinu sem lauk þannig að Martin Krempa sigraði með sex vinninga. Hann keppti sem gestur á mótinu og því varð Lárus Ægir Guðmundsson krýndur skákmeistari Skagastrandar með fimm vinninga. Einkahlutafélagið H-59 stóð að mótinu og var það opið öllum.
13:44 11. apr. 2024   Húnaþing vestra gerir gjaldskrárbreytingar
Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur samþykkt gjaldskrárbreytingar vegna stöðuleikasamninganna sem aðilar vinnumarkaðarins gerðu fyrir skömmu en þær miða að mestu við gjaldskrár er varða barnafjölskyldur. Þannig verður hækkunin 2,5% frá árinu 2023 í stað 5,5%, eins og áður hafi verið ákveðið, og taka breytingarnar almennt gildi 1. júní næstkomandi, með þeim fyrirvara að niðurstaða kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við stéttarfélög starfsmanna sveitarfélagsins verði í tekt við stöðugleikasamninganna.
15:52 09. apr. 2024   Tónleikar á Hvammstanga á vegum Soroptimistaklúbbsins við Húnaflóa
Tónleikar á vegum Soroptimistaklúbbsins við Húnaflóa verða haldnir laugardaginn 13. apríl í Hvammstangakirkju og hefjast klukkan 15. Boðið er upp á söng, hljóðfæraleik og ljóðaflutningur, sem m.a. nemendur tónlistaskóla Húnavatnssýslna taka þátt í. Einnig ætlar Karlakórinn Lóuþrælar að syngja. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana en tekið verður við frjálsum framlögum við innganginn.
15:43 09. apr. 2024   Húnaþing vestra - lifandi samfélag
Húnaþing vestra - lifandi samfélag fékk flest atkvæði í könnun á tillögum að slagorði fyrir sveitarfélagið og hefur byggðarráð samþykkt það fyrir sitt leyti. Í síðasta mánuði gátu íbúar valið á milli fimm tillagna að slagorði, sem öll áttu að lýsa kjarna samfélagsins og hægt væri að nota í kynningarskyni. Tillögurnar komu úr íbúakönnun sem framkvæmd var síðastliðið haust. Einnig var hægt að koma með nýjar tillögur.
   
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið