Fyrri mynd
Nćsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Mánudagur, 2. október 2023
   m/s
C
Ókeypt
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2023
SMÞMFL
30123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031123
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 00:50 N 6 2°C
Laxárdalsh. 00:55 0 0°C
Vatnsskarð 00:50 NNA 8 5°C
Þverárfjall 00:55 0 0°C
Kjalarnes 00:55 0 0°C
Hafnarfjall 00:50 ANA 12 9°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
18. ágúst 2023
Okur, íslenska og illgresi
Já komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. september 2023
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
27. september 2023
Eftir Sigurjón Þórðarson
25. september 2023
58. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. september 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
23. september 2023
Eftir Bjarna Jónsson
19. september 2023
Eftir Svölu Runólfsdóttur, Elínu S. Sigurðardóttur og Dagnýju Sigmarsdóttur
13. september 2023
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
12. september 2023

Senda Húnahorninu fréttaskot

N 65° 39' 32.04" V 20° 16' 55.2"
 Frá:   Til: 
Orðaleit:
 Birta   línur
  1-15 af 15  
KlukkanDagsetningFrétt
21:22 01. okt. 2023   Október er bleikur mánuður
Október er genginn í garð og er hann bleiki mánuðurinn, tileinkaður árvekni um baráttuna gegn krabbameini hjá konum. Bleika slaufan 2023 er komin í sölu og hefur hún sjaldan verði bleikari og fegurri en í ár. Slaufan er úr bleikum steinum sem eru misjafnir í lögun sem er vísun í það hvað mannfólkið er ólíkt. Bleika slaufan í ár er hönnið af gullsmíðameisturunum Lovísu Halldórsdóttur Olesen og Unni Eir Björnsdóttur.
21:08 01. okt. 2023   Dýralæknisfræðilegt afrek unnið á Bessastöðum í Húnaþingi vestra
Vísir.is segir frá því að dýralæknisfræðilegt afrek hafi verið unnið á Bessastöðum í Vestur-Húnavatnssýslu í gær þegar slasaðri meri var kippt í lið. Dýralæknirinn veit ekki til þess að þetta hafi áður verið gert hér á landi. Á dögunum lenti merin Gáfa í áflogum við aðra hesta og slasaðist nokkuð alvarlega við það. Hún var mjög bólgin en í gær var dýralæknirinn Ingunn Reynisdóttir kölluð til.
19:45 01. okt. 2023   Heilsudögum lokið í Húnabyggð
Heilsudögum í Húnabyggð lauk í gær en þeir hófust 23. september og voru hluti af Íþróttaviku Evrópu. Markmiðið var að hvetja fólk til að hreyfa sig og huga að heilsunni. Fjölmargir viðburður voru í boði og má nefna frisbíbolfmót, gönguferðir, jóga, heilsufarsmælingar, fyrirlestra, sundæfingar, og frjálsíþróttaæfingar. Þá tóku veitingastaðir á Blönduósi þátt í heilsudögunum og buðu upp á holla rétti, sannkallaða heilsumatseðla.
19:29 01. okt. 2023   Kindur sóttar út í hólma á Blöndulóni
Í síðustu viku óskaði Landsvirkjun eftir aðstoð Björgunarfélagsins Blöndu en verkefnið sérist um að ná átta kindum úr hólma á Blöndulóni. Fimm félagar úr björgunarfélaginu fóru á Auðkúluheiðina með bátinn Gunnar Sig og nutu þeir aðstoðar Helga Páls bónda á Höllustöðum og Bjarka á Breiðavaði ásamt tveimur hundum frá honum. Á facebooksíðu Björgunarfélagsins Blöndu kemur fram að allt hafi gengið vel enda blíðskaparveður á svæðinu.
14:31 29. sep. 2023   Sýningunni Heima/Home lýkur um helgina
Hillebrandtshús, í Gamla bænum á Blönduósi. Opið laugardag og sunnudag kl. 14-17. Síðasti opnunardagur sýningarinnar er sunnudagurinn 1. október 2023. Komið við um helgina! Við höfum notið þess að sýna verk eftir listafólkið okkar og heyra ykkar sögur af heimilinu! Við viljum einnig sérstaklega þakka öllum þeim sem hafa styrkt og aðstoðað okkur við sýninguna:
14:10 29. sep. 2023   Lélegu laxveiðisumri að ljúka
Lélegu laxveiðisumri er að ljúka og eru flestar laxveiðiár að loka eða þegar búnar að því. Laxveiði er lokið í Miðfjarðará og veiddust þar 1334 laxar í sumar á 10 stangir en það er 188 löxum færra en í fyrra þegar 1522 laxar veiddust. Sömu sögu má segja um allar helstu laxveiðiárnar í Húnavatnssýslum, fækkun varð fjölda veiddra laxa, og það á einnig við um flestar ár landsins. Miðfjarðará endaði í þriðja sæti yfir aflamestu árnar á landinu.
12:58 29. sep. 2023   Helgihald í Blönduóskirkju og Hólaneskirkju sunnudaginn 1. október
Helgihald í Blönduóskirkju sunnudaginn 1. október. Guðsþjónusta klukkan 11:00. Almennur safnaðarsöngur við undirleik Eyþórs Franzsonar Wechner. Sr. Edda Hlíf þjónar fyrir altari. Sunnudagaskóli klukkan 13:00. Bænir, söngur, Biblíusaga og brúðuleikhús. Skemmtileg samverustund fyrir alla fjölskylduna. Helgihald í Hólaneskirkju sunnudaginn 1. október. Sunnudagaskóli klukkan 15:00, Bænir, söngur, Biblíusaga og brúðuleikhús. Skemmtileg samverustund fyrir alla fjölskylduna. Kvöldmessa klukkan 20:00. Kór Hólaneskirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur. Sr. Edda Hlíf þjónar fyrir altari.
11:45 29. sep. 2023   Andrés Þór Tríó í Blönduóskirkju
Tónleikar í Blönduóskirkju laugardaginn 30. september sem hefjast kl. 16:00.
12:45 28. sep. 2023   Ungmennaráðstefna haldin á Reykjum
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði fór fram í húsnæði Skólabúðanna á Reykjum í Hrútafirði um síðustu helgi. Umfjöllunarefnið á ráðstefnunni voru umhverfis- og loftslagsmál og voru endurnýting, umhverfisspor fyrirtækja og neytenda og fleira í þeim dúr ofarlega á baugi. Ungmennaráð UMFÍ stóð fyrir ráðstefnunni og buðu um 70 þátttakendum á hana, þar á meðal ungmennaráðum sveitarfélaga og félagasamtaka.
11:30 28. sep. 2023   Sveitarfélög í Húnavatnssýslum fá tæpan milljarð úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
Innviðaráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaðar úthlutanir framlaga á árinu 2024. Áætluð útgjaldajöfnunarframlög til sveitarfélaga á Íslandi nema alls 15.800 milljónum króna og þar af fara um 934 milljónir til sveitarfélaga í Húnavatnssýslum, mest til Húnabyggðar eða um 303 milljónir. Áætlunin, sem er 1.800 milljón króna hærri en áætlun framlaga á þessu ári, verður tekin til endurskoðunar í apríl á næsta ári á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2024.
14:15 27. sep. 2023   Kynningarfundur um styttu af Vatnsenda-Rósu
Kynningarfundur um fyrirhugaða styttu af Vatnsenda-Rósu, sem ráðgert er að koma upp á Hvammstanga, verður haldinn í safnaðarheimili Hvammstangakirkju sunnudaginn 8. október klukkan 14-16. Menningarfélag Húnaþings vestra ákvað það á síðasta ári og stóra verkefni félagsins næstu tvö árin yrði að koma upp styttu af Vatnsenda-Rósu á Hvammstanga. Félagið telur að styttan gæti orðið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Myndhöggvarinn Ragnhildur Stefánsdóttir hefur tekið að sér að gera styttuna.
11:28 26. sep. 2023   Uppbyggingarsjóður auglýsir eftir umsóknum
Uppbyggingarsjóður Norðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna ársins 2024. Veittir eru atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrkir, verkefnastyrkir á menningarsviði og stofn- og rekstrarstyrkir á menningarsviði. Á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er að finna úthlutunarreglur, matsblað og ýmsar leiðbeiningar um gerð umsókna. Þar segir að góð umsókn auki möguleika umsækjanda á að fá styrk úr sjóðnum, svo mikilvægt er að vanda vel til verka. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember næstkomandi.
10:14 25. sep. 2023   Við bíðum... EKKI LENGUR!
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi
LEB - Landssamband eldri borgara stendur fyrir málþingi um kjör eldra fólks mánudaginn 2. október kl. 13.00-16.00 á Hótel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Málþingið fer fram í fyrirlestrarsal Grósku á 1. hæð. Ókeypis aðgangur og öllum opið meðan húsrúm leyfir. Málþinginu verður streymt á vef LEB www.leb.is og víðar á öðrum vefsíðum.
14:48 22. sep. 2023   Plokkuðu saman 50 kíló af rusli
Fyrsti sameiginlegi Umhverfisdagur leik-, grunn- og tónlistarskóla var haldinn í Húnaþingi vestra í gær. Áhersla dagsins var hreinsun á Hvammstanga og gekk það vonum framar að því er fram kemur á vef sveitarfélagsins. Á um klukkustund tókst nemendum og starfsfólki að plokka saman 50 kíló af rusli. Sveinn húsvörður sá um að fara með ruslið í Hirðu sem var með auka opnun fyrir íbúa vegna dagsins. Nytjamarkaðurinn var einnig með opið, bæði í verslun og að taka á móti vörum frá íbúum.
13:48 22. sep. 2023   Hreyfivika í Húnaþingi vestra
Hreyfivika í Húnaþingi vestra hefst á morgun og stendur til 29. september. Íbúar eru hvattir til að taka þátt og ættu allir að geta fundið hreyfingu við sitt hæfi í fjölbreyttri dagskrá sem finna má á vef Húnaþings vestra. Meðal viðburða á nefna Boccia æfingar, Jiu Jitzu, fjölskylduratleik, sund, Badminton, Kundalini jóga, Gong slökun og fótbolta. Staðsetning viðburða er í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga nema annað sé tekið fram.
   
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2023 Húnahornið