14:48 |
22. sep. 2023 |
Plokkuðu saman 50 kíló af rusli
Fyrsti sameiginlegi Umhverfisdagur leik-, grunn- og tónlistarskóla var haldinn í Húnaþingi vestra í gær. Áhersla dagsins var hreinsun á Hvammstanga og gekk það vonum framar að því er fram kemur á vef sveitarfélagsins. Á um klukkustund tókst nemendum og starfsfólki að plokka saman 50 kíló af rusli. Sveinn húsvörður sá um að fara með ruslið í Hirðu sem var með auka opnun fyrir íbúa vegna dagsins. Nytjamarkaðurinn var einnig með opið, bæði í verslun og að taka á móti vörum frá íbúum. |
13:48 |
22. sep. 2023 |
Hreyfivika í Húnaþingi vestra
Hreyfivika í Húnaþingi vestra hefst á morgun og stendur til 29. september. Íbúar eru hvattir til að taka þátt og ættu allir að geta fundið hreyfingu við sitt hæfi í fjölbreyttri dagskrá sem finna má á vef Húnaþings vestra. Meðal viðburða á nefna Boccia æfingar, Jiu Jitzu, fjölskylduratleik, sund, Badminton, Kundalini jóga, Gong slökun og fótbolta. Staðsetning viðburða er í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga nema annað sé tekið fram. |
13:09 |
21. sep. 2023 |
Nóg um að vera hjá Félagi eldri borgara í Húnaþingi vestra
Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra gefur reglulega út fréttabréf þar sem fjallað er um það helsta sem er á döfinni hjá félaginu. Eitt slíkt er nýútkomið og þar er m.a. sagt frá því að kóræfingar hjá Kór eldir borgara hefjast 29. september. Æft er klukkan 14 til 15:30 í salnum í Nestúni á föstudögum. Stjórnandi og meðleikari eru sem fyrr Ólafur E Rúnarsson og Elínborg Sigurgeirsdóttir. Nýir félagar eru hvattir til að mæta á æfingar. |
12:05 |
21. sep. 2023 |
Heilsudagar í Húnabyggð
Heilsudagar í Húnabyggð hefjast á laugardaginn og standa yfir í viku en þeir eru hluti af Íþróttaviku Evrópu dagana 23.-30. september. Markmið heilsudaga er að hvetja fólk til að hreyfa sig og huga að heilsunni. Frítt er á alla viðburði og fyrirlestra í dagskránni sem finna má á vef Húnabyggðar. Má nefna að frítt verður í sundlaugina á Blönduósi þessa daga, með því skilyrði að syntir verði 100 metrar. Sá sundkappi sem syndir lengst þessa viku fær verðlaun. |
11:52 |
21. sep. 2023 |
Vilja höfuðstöðvar RARIK á landsbyggðina
Fimm þingmenn Framsóknarflokksins og þrír þingmenn Flokks fólksins hafa lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um flutning höfuðstöðva RARIK ohf. á landsbyggðina. Vilja þau að Alþingi feli fjármála- og efnahagsráðherra að stefna að flutningi höfuðstöðvanna og að hann kanni á grundvelli hagsmuna félagsins hvar væri hentugast að byggja upp höfuðstöðvarnar og efla starfsstöðvar RARIK um landið. Þingsályktunartillagan hefur tvisvar áður verið lögð frá, á 151. löggjafarþingi og því 153. |
21:46 |
20. sep. 2023 |
Fræðsluferð SSNV og SSV til Skotlands
Sextíu manna hópur sveitarstjórnarfulltrúa, bæjar- og sveitarstjóra auk starfsmanna Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi hélt í víking til Skotlands síðustu vikuna í ágúst. Um fræðsluferð var að ræða og tilgangur hennar var að kynnast helstu áherslum Skota í byggða- og sveitarstjórnarmálum. Á vef SSNV er sagt frá ferðinni og þar kemur fram að ferðir sem þessar víkki sjóndeildarhring sveitarstjórnarfólks. |
21:21 |
20. sep. 2023 |
Sýning á vinnslu rekaviðar að fornum hætti
Föstudaginn 22. september klukkan 16:30 heldur Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum sýningu á vinnslu rekaviðar og kennir gestum tökin. Rekaviður sem berst hingað til lands kemur alla leið frá Síberíu. Rekaviðurinn var mikil hlunnindi hér áður fyrr og notaður við nánast alla trévinnu hér á landi því skógar voru engir. Allir eru velkomnir og það verður heitt á könnunni og frítt inn á sýningar safnsins. |
21:12 |
20. sep. 2023 |
Nafn Húnaskóla málað á stigahús skólans
Búið er að mála nafn Húnaskóla á stiga hús skólans. Unnið hefur verið að viðgerð á stigahúsinu að undanförnu, sem er nú lokið. Inese, myndmenntakennari skólans, bjó til skapalón með stöfum Húnaskóla og málaði hún ásamt Ástmari málara stafina á stigahúsið í dag. Sagt er frá þessu á facebooksíðu Húnaskóla og af myndum af dæma kemur þetta ljómandi vel út. |
15:17 |
19. sep. 2023 |
Slagarasveitin með tvenna tónleika um helgina
Hin margrómaða húnvetnska Slagarasveit heldur útgáfutónleika í Iðnó í Reykjavík á föstudaginn og hefjast þeir klukkan 20:30. Tilefnið er útgáfa fyrstu hljómplötu sveitarinnar. Um er að ræða tólf laga plötu sem ber nafn sveitarinnar. Sólarhring síðar heldur hjómsveitin tónleika í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Það verður engu til sparað hjá sveitinni á tónleikunum sem hefur fengið aukalega til liðs við sig fjölda tónlistarmanna. |
14:59 |
19. sep. 2023 |
Frístundadagskrá fyrir 60 ára og eldri í Húnabyggð
Á vef Húnabyggðar er athygli vakin á frístundadagskrá fyrir 60 ára og eldri í sveitarfélaginu, sem gildir fyrir september-desember 2023. Virk þátttaka í félagslífi lífgar upp daginn og getur stuðlað að betri andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu, segir á vefnum. Frístundadagskráin er fjölbreytt og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Í henni má einnig finna dagsetningar og upplýsingar um hina ýmsu viðburði sem verða frá byrjun október og til jóla. |
14:42 |
19. sep. 2023 |
Tilkynning frá Krabbameinsfélagi Austur-Húnavatnssýslu
Í tilefni af íþróttaviku Evrópu (Be Active) verður Krabbameinsfélag Austur-Húnavatnssýslu með tvo viðburði. Þorri Snæbjörnsson sem starfar sem sálfræðingur hjá Ráðgjafaþjónustu Krabbameinsfélags Íslands verður með báða viðburðina. Laugardaginn 23. september kl. 12 verður hann með erindi um þreytu og jafnvægi milli virkni og hvíldar (ca. 45 mín.) í matsal Húnaskóla á Blönduósi. Sunnudaginn 24. september kl. 14 verður hann með námskeið um bjargráð gegn kvíða (ca. 3 kls.) í Bjarmanesi á Skagaströnd. |
14:15 |
19. sep. 2023 |
Vilja Alexandersflugvöll sem varaflugvöll
Bjarni Jónsson og Bergþór Ólason, báðir þingmenn Norðvesturkjördæmis, hafa lagt fram á Alþingi í fimmta sinn tillögu til þingsályktunar um Alexandersflugvöll sem varaflugvöll fyrir Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli. Vilja þeir að innviðaráðherra geri ítarlega athugun á kostum þess að gera Alexandersflugvöll á Sauðárkróki að varaflugvelli og að niðurstöður verði kynntar á Alþingi eigi síðar en 30. apríl 2024. Þingsályktunartillaga sama efnis var lögð fram á 144., 150., 151. og 152. löggjafarþingi. |
13:50 |
19. sep. 2023 |
Kaffispjall í Bjarmanesi
Frá Félagi eldri borgara í Húnaþingi
Félag eldri borgara í Húnaþingi verður með kynningar- og spjallfund í Bjarmanesi á Skagaströnd föstudaginn 22. september 2023, klukkan 14.00. Hittumst í kaffispjalli. |
13:46 |
19. sep. 2023 |
Skrifstofur sýslumannsins á Norðurlandi vestra lokaðar föstudaginn 22. september
Tilkynning
Skrifstofur sýslumannsins á Norðurlandi vestra verða lokaðar föstudaginn 22. september nk. vegna sameiginlegs starfsdags sýslumannsembættanna. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Erindum má beina á netföngin nordurlandvestra@syslumenn.is eða á innheimta@syslumenn.is og verður þeim svarað næstkomandi mánudag. |
22:10 |
18. sep. 2023 |
Glæsileg dagskrá sett saman á Skagaströnd fyrir Íþróttaviku Evrópu
Íþróttavika Evrópu verður haldin dagana 23.-30. september í yfir 30 Evrópulöndum. Markmiðið með vikunni er að kynna íþróttir og aðra hreyfingu og koma með því í veg fyrir hreyfingarleysi á meðal almennings. Á Skagaströnd hefur Ungmennafélagið Fram sett saman glæsilega dagskrá fyrir vikuna í samstarfi við sveitarfélagið og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sem veitti 500.000 króna styrk vegna verkefnisins. |