Bókhald fyrir græna framtíð
Framtíðarsýn okkar er sjálfbær heimur, knúinn endurnýjanlegri orku. Í þeirri vegferð leggjum við allt kapp á að fara áfram vel með þá fjármuni sem okkur er treyst fyrir. Við leitum að liðsinni í því verkefni og auglýsum eftir bókara til að starfa í deild reikningshalds. Sameiginlegt verkefni deildarinnar er að styðja við vegferð Landsvirkjunar og felur í sér samvinnu við starfsfólk þvert á fyrirtækið.
Eitt af verkefnum deildarinnar er að þróa notkun nýs bókhaldskerfis og opna þar fyrir spennandi og skemmtileg tækifæri.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- almenn bókhaldsstörf
- þróun á notkun bókhaldskerfisins D365F
- þróun og sjálfvirknivæðing á stafrænum ferlum
- önnur tilfallandi verkefni
Hæfni og reynsla:
- menntun sem nýtist í starfi
- þekking og reynsla af færslu bókhalds er skilyrði
- áhugi á tækni og stafrænni þróun
- góð samskiptahæfni, þjónustulund og ánægja af teymisvinnu
- skipulagsfærni, frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
Fyrirspurnir má senda á netfangið mannaudur@landsvirkjun.is
- Umsóknarfrestur frá: 11.04.2024
- Umsóknarfrestur til: 21.04.2024
- Hafa samband: Anna Rut Þráinsdóttir (mannaudur@landsvirkjun.is)