Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:05 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:05 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:05 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:05 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:05 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:05 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Vegagerðinni líst vel á að setja hluta vegaframkvæmda í einkaframkvæmd. Svokallaða
Húnavallaleið (Svínavatnsleið) er nefnd sem dæmi um verkefni sem gæti hentað til
slíks. Þetta kemur fram á Vísi.is
en þar er rætt við Hrein Haraldsson vegamálastjóra um ummæli innanríkisráðherra
í Fréttablaðinu um að hún vildi aukið samstarf hins opinbera við einkaaðila í
vegaframkvæmdum.
„Miðað við þær forsendur sem ráðherrann leggur upp með
líst okkur vel á að setja hluta vegaframkvæmda í einkaframkvæmd,“ segir Hreinn
Haraldsson vegamálastjóri í samtali við Vísi.is.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra sagði við Fréttablaðið á dögunum
að hún vildi auka samstarf hins opinbera við einkaaðila í vegaframkvæmdum.
Hreinn segir að Vegagerðin sé nú að skoða þá kosti sem
í boði eru. Hann tekur sem dæmi að Sundabraut í Reykjavík, Svínvetningabraut í
Húnavatnssýslu og vegur um Öxi séu vegaframkvæmdir sem hægt væri að setja í
einkaframkvæmd. Þær uppfylli þau skilyrði sem innanríkisráðherra setur en það
er að slíkar framkvæmdir komi ekki til álita nema vegfarendur hafi kost á
annarri leið samhliða einkaframkvæmdinni.
Svínvetningabraut myndi liggja fyrir sunnan Blönduós og
stytta hringveginn um 12 til 15 kílómetra eftir því hvaða vegstæði yrði valið.
Vegfarendur hefðu val um hvort þeir færu um Blönduós eða færu Svínvetningaleið.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |