Fyrri mynd
Nćsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Húnahornið
Open Menu Close Menu
Húnahornið
Þriðjudagur, 21. mars 2023
   m/s
C
Ókeypt
huni.is - RSS-efnisveita
 
Mars 2023
SMÞMFL
2627281234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 10:30 NA 12 -6°C
Laxárdalsh. 10:30 ANA 12 -4°C
Vatnsskarð 10:30 A 11 -6°C
Þverárfjall 10:30 ANA 12 -6°C
Kjalarnes 10:30 ANA 13 3°C
Hafnarfjall 10:30 NNA 10 -1°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
30. október 2022
Stutt hugleiðing um íslenskuna
Sumum finnst ókurteisi að einhver tali íslensku og jafnvel móðgast fyrir hönd þeirra sem ekki tala hana.
::Lesa

SSNV

Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
16. mars 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
11. mars 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. mars 2023
43. þáttur. Eftir Jón Torfason
06. mars 2023
Eftir Eyjólf Ármannsson
04. mars 2023
Pistill Péturs Bergþórs Arasonar, sveitarstjóra Húnabyggðar
01. mars 2023
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
26. febrúar 2023
Spaugið | 09. apríl 2014 - kl. 11:32
Kæra dagbók

Jæja kæra dagbók,
ég er byrjaður í ræktinni.
Ég fór í fyrsta sinn í dag.  Þegar ég var búinn í sturtunni hringdi GSM síminn. Ég svaraði símanum. "Halló" "Hæ, ástin mín þetta er ég. Ertu enn í ræktinni."
"Já ég var að koma úr sturtunni."
"Allt í lagi, ég ætla ekki að trufla þig lengi. Ég er niðri í bæ. Mig langaði bara að spyrja þig hvort ég mætti kaupa pelsinn sem ég sýndi þér um daginn. Hann kostar ekki nema 450.000,-"
"Jæja ástin mín, fyrst þér líkar hann svona vel skaltu bara kaupa hann"
"Æi krúttið mitt þú ert svo góður við mig. Ég set hann þá á kortið. Heyrðu og svo var það þetta með bílinn, ætlarðu að koma við og skoða bílinn sem við vorum að spá í."
"Æi nei, nú vil ég að þú farir og gangir frá kaupum á nýjum bíl. Ég hugsa meira að segja að við ættum að leyfa okkur að kaupa nýjan Porsche frá Bílabúð Benna. Komdu mér á óvart og vertu búin að ganga frá því þegar ég kem heim, og hafðu hann með öflugum aukahlutum."
"Ohh ástin mín þetta er aldeilis ólíkt þér. Þú sem ert alltaf að leggja áherslu á að spara, en ég geri þetta. Heyrðu fyrst þú ert í svona miklu stuði. Ég sá að húsið sem okkur langaði svo í á Arnarnesinu er enn til sölu.  Það eru settar á það 45 milljónir. Ættum við kannski bara að slá þessu upp í kæruleysi og kaupa það."
"Æi hjartað mitt, ég hef ekki tíma í það, getur þú gengið frá því. Við þyrftum reyndar að taka 100% lán fyrir því en það er nú í góðu lagi. Bjóddu 42 milljónir og vittu hvað kemur út úr því."
"Ohhhh spennó, ég er alveg viss um að við fáum húsið, það er búið að vera svo lengi á sölu. Sjáumst svo í kvöld ástin mín. Bless"
"Bless", sagði ég og lagði á.
Að þessu loknu ákvað ég að hegða mér heiðarlega, veifaði símanum og spurði viðstadda, "Á einhver ykkar þennan síma."

Höf. ass
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2023 Húnahornið